Læknablaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 62
752
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði
Undanfarin ár hafa verið 30
rúm á endurhæfin^ardeild
Heilsustofnunar NLFI. Sjúk-
lingar hafa verið í þessum rúm-
um án endurgjalds. Hins vegar
hafa þjónustugjöld verið greidd
fyrir 130 rúm. Tekjur af þessum
þjónustugjöldum hafa greitt um
20 af hundraði rekstrarkostnað-
ar Heilsustofnunar.
Á þessu ári hafa orðið tals-
verðar launahækkanir hjá flest-
um starfshópum heilbrigðis-
stofnana. Heilsustofnun NLFÍ,
sem er á föstum fjárlögum, hef-
ur að óverulegu leyti fengið
aukinn launakostnað bættan.
Til að létta greiðsluerfið-
leika, sem þetta hefur skapað,
hefur heilbrigðisráðherra sam-
þykkt fyrir sitt leyti, að Heilsu-
stofnun NLFI taki þjónustu-
gjöld fyrir öll rúm. Þessi breyt-
ing tók gildi frá og með 1.
septeniber 1995. Eftir þann tíma
eru 160 rúm Heilsustofnunar
gjaldskyld.
(Fréttatilkynning)
Rannsóknastofnun
Jónasar Kristjánssonar læknis,
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði
Sett hefur verið á fót rann-
sóknastofnun í minningu Jónas-
ar Kristjánssonar læknis og í til-
efni af 40 ára afmæli Heilsu-
stofnunar NLFÍ í Hveragerði.
Tilgangur rannsóknastofnunar-
innar er að veita þeim sem
stunda vilja rannsóknir sem
tengjast starfsemi Heilsustofn-
unar tækifæri til dvalar- og
vinnuaðstöðu í fallegu og frið-
sælu umhverfi. Möguleiki er á
að nýta þjálfunar- og meðferð-
araðstöðu.
Heilsustofnun NLFÍ er nátt-
úrulækningastofnun sem byggir
starf sitt á fræðslu um heilsu-
samlegt líferni, líkamsþjálfun
og mataræði. f heilsustofnun er
auk þess rekin umfangsmikil
endurhæfingarstarfsemi.
Sérstök stjórn fjallar um
væntanlegar umsóknir en gert
er ráð fyrir að rannsóknartími
geti orðið allt að tveir til þrír
mánuðir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Björnsson yfir-
læknir í síma 483-0300.