Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1995, Síða 10

Læknablaðið - 15.11.1995, Síða 10
774 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Merkileg uppgötvun Þegar rafmagn er látið streyma gegnum glerpípu eða glerkúlu með mátulega þynntu lopti í, verður það lýsandi. Slíkar pípur eru mjög notaðar við efnafræðislegar rannsóknir (spektralanalysis) og vanalega kenndar við Geissler nokkurn, þýzkan verkfærasmið. Ef loptið er þynnt enn þá meira, hættir það aptur að lýsa, en þar á móti verður glerið sjálft lýs- andi, einkum beint á mót vírenda þeim, sem rafmagnsstraumurinn fer um út úr pípunni; or- sökin er sú, að frá vírnum leggur geisla, sem ekki lýsa í sjálfu sjer, en gjöra glerið lýsandi, þar sem þeir falla á það. Geislar þessir eru nefndir katóðugeislar* og eru þeir frábrugðnir Ijós- og hitageislum, einkum í því, að segul- magn hefur áhrif á þá, og að þeir ganga gegn- um ýmsa hluti, sem ljós kemst eigi í gegnum, t.d. þunnar málmflögur. Hittorf nokkur, þýzk- ur náttúrufræðingur, tók fyrstur eptir geislum þessum, en seinna hafa þeir meðal annars verið rannsakaðir af enskum náttúrufræðingi, Crookes að nafni, og eru glerpípur þær eða glerkúlur, sem þeir myndast í, kenndar við hann. Nýlega hefur prófessor RÖNTGEN í Wúrzburg tekið eptir því, að einkennilega geisla leggur út frá Crookes kúlum, þegar kat- óðugeislar myndast í þeim; hvort það eru kat- óðugeislarnir sjálfir, sem ganga gegnum glerið, eða nýir geislar, sem koma frá sjálfu glerinu, þar sem það er lýsandi, er ekki víst. Þeir líkjast þó katóðugeislum í því, að flestir hlutir eru miklu gagnfærilegri fyrir þá, en fyrir ljósgeisla, en ekki lítur út fyrir að segulmagn hafi nein áhrif á þá; þeir brotna líka miklu minna en ljósgeislar, en hafa líkar efnafræðislegar verk- anir, svo að myndir má taka með þeim, eins og ljósmyndir, að sínu leyti, og það er einmitt * Þegar rafmagnsstraumur er látinn renna gegnum lopt eöa lög, er leiðandi sá, sem straumurinn fer inn um, nefndur anóða (innleið, inngangur, myndað af ana, inn eða upp á við, og ódós, leið, vegur), en'sá, sem rafmagnið fer út um, katóða (útleið, útgangur, af katá, út eða niður á við, og ódós). Wilhelm Konrad Röntgen. þessi eiginleiki geislanna, sem gjörir uppgötv- un þessa svo eptirtektaverða. Af því að menn hafa ekki enn fundið neitt efni, sem brýtur þessa Röntgens-geisla að ráði, verða þó ekki teknar vanalegar ljósmyndir með þeim, heldur einungis skuggamyndir. Einna mesta eptirtekt hefur það vakið, að Röntgens-geislar ganga gegnum líkama manna og dýra, en þó ekki eins vel gegnurn beinin eins og aðra hluta líkamans; ef geislarnir eru látnir leggja gegnum mann og falla á glerflögu, sem er undirbúin öldungis eins og við vanalega ljósmyndun, þá kemur skugginn af beinagrindinni fram á glerflög- unni. Líklegt þykir að uppgötvun þessi geti orðið læknum að góðu liði við rannsóknir á beinum manna, en þó einkum til að finna óvið- komandi hluti í líkamanum, t.a.m. kúlur og kúlubrot, steinmyndanir eða þvíumlíkt, því hlutir þessir eru ógagnfærilegri en líkaminn, og skuggi þeirra kemur þess vegna fram á mynd- inni. Að öllum líkindum á uppgötvun þessi mikla framtíð fyrir höndum, en hún er svo ný, að enn er ekki hægt að sjá fyrir, hverju hún kemur til leiðar. N.R.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.