Læknablaðið - 15.11.1995, Side 26
788
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
efnisins, en afhenti Claessen það til lækninga-
nota. Síðar varð radíumið hluti þeirra gagna og
gæða er féllu Landspítalanum í skaut við opn-
un hans 1930.
Enda þótt orkugjafi rafalsins í Pósthússtræti
7 væri mun virkari og öruggari en gufuketillinn
í Völundi, var afkastagetan takmörkuð og ekki
alltaf hægt að ná þeirri orku sem til þurfti. Það
var því allri starfseminni mikil lyftistöng, er
nýja Elliðaárstöðin var tekin í gagnið árið 1921.
Með þessari nýju orkulind urðu talsverð
þáttaskil, meðal annars varð mögulegt fyrir
Claessen að hefja ljósalækningar, bæði með
kvarts- og kolbogaljósum, sem á þeim tíma var
álitin mjög ntikilvæg í meðferð ýmissa sjúk-
dóma þar með talinna berkla. Gagnsemi ljósa-
lækninga er nú talin nokkuð vafasöm, en rétt
er að hafa í huga þær hörntulegu aðstæður sem
ríktu á þessum áratugum vegna berklafarald-
urs og leiddu til þess að allar hugsanlegar lækn-
ingaaðferðir til líknar eða bata voru reyndar til
hlítar. Claessen trúði mjög á ljósalækningarn-
ar, sem meðal annars má sjá af því, hve mikið
rými þeim var ætlað er ný röntgendeild á
Landspítalanum var undirbúin, en ljósalækn-
ingar voru stundaðar þar fram unt 1950.
Röntgendeild á Landspítalanum 1930
Umsvif Röntgenstofunnar jukust ár frá ári á
þeint rúma áratug, sem leið frá stofnun hennar
þar til Landspítalinn reis og röntgendeild tók
til starfa þar, fyrst deilda í desember 1930.
Umræður um byggingu Landspítala höfðu
staðið áratugum saman, og var haldið vakandi
af eldhugum í læknastétt, en ákvarðanir og
efndir þar að lútandi urðu lengi vel engar. Þess
má geta, að Gunnlaugur Claessen var nteðal
þeirra sem framarlega stóðu í baráttunni fyrir
Landspítala og má telja, að hann hafi átt veru-
legan þátt í að endurvekja umræðuna og þrýst-
inginn með grein er hann skrifaði í Læknablað-
ið 1916. Enn vantaði þó lokaátakið, en það
kom er kvenfélagasambönd landsins tóku
höndum saman með allsherjar fjársöfnun um
1925, sem aftur leiddi til þess að Alþingi tók
loks ákvörðun um bygginguna. Það kemur
ekki á óvart, að Claessen var meðal þeirra er
sæti tóku í bygginganefnd, og nú opnuðust
honum tækifæri til að hanna og koma upp
nýrri, nútímalegri röntgendeild frá grunni. í
þeim undirbúningi kappkostaði hann sem
endranær, að til deildarinnar fengist besti bún-
aður síns tíma og hún skyldi standa jafnfætis
filPiTOfA
HWKMH.
hlAFl
lcKhhhRHihf
F/iTAKA.
e/fiir. rwn.
3 (
RÓHT/iClfSMOÞUN
\ci.dhvo.
ft. YJtLHK
Röntgendeild Landspítalans. Þessari yfirlitsmynd Gösta Forssell frá 1925 var fylgt að mestu við hönnun og innréttingu
deildarinnar 1930.