Læknablaðið - 15.11.1995, Page 40
800
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Mynd 2a) og 2b). Tölvusneiðmynd í febrúar 1984. Greinileg Mynd 3a) og 3b). Segulómun í desember 1993. Greinileg
beineyðing hœgra megin í höfuðkúpubotni. fyrirferð í höfuðkúpubotni sem þrýstir á heilastofn.
un var mun ófullkomnara en þau sem síðar
komu. Við endurskoðun má ætla að meinsemd
hafi verið byrjuð á þessum tíma.
I ársbyrjun 1984 fór sjúklingurinn að fá
ógleði og uppköst ásamt lömun á sjöttu heila-
taug (n.abducens). Tölvusneiðmyndaskoðun í
febrúar 1984 (mynd 2) leiddi í ljós allstóra bein-
eyðingu hægra megin í höfuðkúpubotni, sem
náði inn í gólf tyrkjasöðuls (sella turcica).
Mjúkpartafyrirferð bungaði inn í fleygbeins-
holuna (sinus sphenoidalis) og niður í nefkok-
ið. Heilaæðarannsókn hægra megin var túlkuð
á þann veg að um æðaríkan æxlisvef væri að
ræða. Sjúklingi voru gefin steralyf sem drógu
verulega úr einkennum. Þrívegis (í febrúar,
mars og nóvember) á árinu 1984 voru tekin sýni
í gegnum nefkok án þess að sjúkdómsgreining
fengist staðfest.
Heilaæðarannsókn var gerð hægra megin í
ágúst 1986 og var hún talin sýna eðlilegt ástand.
í ársbyrjun 1988 versnaði höfuðverkur viðkom-
andi og einnig fór hann að fá smánefblæðingar.
Tölvusneiðmyndaskoðun í febrúar 1988 sýndi
aukna beineyðingu í höfuðkúpubotni. Heila-
æðarannsókn sem gerð var báðum megin í apr-
íl 1988 var eðlileg.
í apríl 1988 var framkvæmd aðgerð gegnum
fleygbeinsholuna og kom í ljós stórt æxli úr
bandvef með mörgum holrúmum sem inni-
héldu mismunandi gamalt blóð. Æxlið var
numið brott svo sem kostur var. Heilahimnan
(dura mater) sem var ósködduð var opnuð við
aðgerðina og staðfest að heiladingullinn væri
eðlilegur. Meinafræðingar töldu fyrst í stað að
hér væri um hvernuæðaæxli (cavernous hem-
angioma) að ræða en staðfestu síðar að sjúk-
dómsgreining væri óviss. Eftir aðgerðina gekk
allt vel í fyrstu en í ágúst sótti í sama far.
Tölvusneiðmyndarannsókn í ágúst 1988 sýndi
endurvöxt á aðgerðarsvæði. Önnur skurðað-
gerð var framkvæmd í október og æxlið numið
brott eins og áður.
Vefjasýni voru nú send til þriggja stofnana
erlendis, í Washington DC, Gautaborg og Ed-
inborg. Niðurstaða sýndi æðaríkan bandvef og
talið var að þessar vefjabreytingar gætu hafa
komið eftir áverka. Næstu fimm ár hélst ástand
sjúklings að mestu óbreytt.Tölvusneiðmynda-