Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1995, Side 42

Læknablaðið - 15.11.1995, Side 42
r I skálarræðunni var pabba óþægilega tíðrætt um leiðina að hjartanu sem liggur í gegnum... Lómex (ómeprazól) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Sýruhjúphylki; A 02 B C 01 R E Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+H+-ATPasa) ( paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvfldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt. en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins I blóði er u.þ.b. 40 mlnútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en þvf samsvarar og er talið að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega f lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur f skeifugörn og maga. Bólga I vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtlmanotkun við bólgu ( vélinda vegna bakflæðis eða við sfendurteknum sárum I maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í þrjú ár Frabendingar Engar þekktar. Aukaverkanir Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur. ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar(>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, uppköst. hægðatregða, kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0.1-1%): Almennar: Svimi. syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. I stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst I tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tlmabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga I munni, sveppasýking I munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvftum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. VJS / VJOiSVONISAlOnV riNÍIJH

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.