Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 4

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 4
MA951001 GOTTFÓLK- Áhrifavaldur í lífi margra Veldu íslenskt magalyf sem stenst fyllilega samanburð við frumlyfið(1) og er auk þess ódýrara(2) Veldu fyrst það besta Omezól omeprazol Framleióandi: Lyfjaverslun íslands hf., Borgartúni 7, 105 Reykjavík. SÝRUHJÚPHYLKI; A 02 B C 01 Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar. Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+,H+-ATPasa) í parletalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu maga- sýru, bæði hvíldarframleiöslu og við hvers kyns örvun. Lyfiö frá- sogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aögengi nálægt 35% eftir ein- stakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóöi er um 95%. Helmingunartlmi lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en þv( samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aöallega (lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábend- ingar: Sársjúkdómur ( skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bak- flæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtímanotkun við bólgu ( vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum ( maga eöa skeifugörn. Ekki er mælt meö notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar: Engar þekktar Meóganga og brjóstagjöff: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægöatregða; einnig höfuðverkur. Algengar{> 1%); Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, uppköst, hægöatregöa, kviðverkir og aukinn vindgangur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húö: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liöverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Ttmabundiö rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga f munni, sveppasýkingar (munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukiö Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkaö umbrotshraða díazepams, warfaríns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal meö sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru því ekki þekktar. Skammtastæróir handa fullorönum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil meö a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna (t.d. skeið og taka lyfið þannig inn en innihaldið má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag (2 vikur. Hafi sárið ekki gróiö, má halda meðferö áfram í 2 vikur (viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferö, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sáriö ekki gróið, má halda meðferð áfram ( 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag veriö gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæöis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag (4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúkl- ingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag veriö gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome)-. Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum ( tvær lyfjagjafir. Langtíma meöferö vegna bakflæöis I vélinda eöa vegna síendurtekins sársjúkdóms í maga eöa skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag, sem má hækka ( 40 mg á dag, ef þörf krefur. Skammtastæróir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar 14 stk. kr. 3.953.-, 28 stk. kr. 7.546.-. Tilvísanir: (1) Dugger III, H.A. et al.: Bioequivalence evaluation of 20 mg omeprazole capsules. Pharmaconsult, Flemington, N.J., USA. (2) Lyfjaverðskrá II, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 1. apr(l 1995.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.