Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 881 voru ákveðnir í því að berjast gegn þessu ákvæði og túlka breytinguna sem uppsögn. Undir lok október 1995 stefndi í fjöldaútgöngu spítalalækna 1. nóvember því þegar sérfræðing- ar fundu hörku unglækna bætt- ust í hópinn svæfingalæknar, hjartaskurðlæknar, barnalækn- ar og kvensjúkdómalæknar. Á 11. stundu bakkaði spítalinn með áform sín, við unnum varn- arsigur. Utanríkismál I nefndinni voru Drífa Freys- dóttir sem formaður og Gunnar Auðólfsson - Páll Matthíasson tók við sæti Gunnars eftir að hann gekk í norska herinn. FUL tók á árinu virkan þátt í starfi PWG (Permanent Work- ing Group of European Junior Doctors), en við erum eitt af stofnfélögum í þeim samtökum. Fundir: í desember fóru Drífa Freysdóttir og Gunnar Auðólfsson á fund í Brússel um vinnutíma - ásamt kennslustjór- um stóru spítalanna, Sigurði Guðmundssyni og Steini Jóns- syni. Báðum fulltrúum ung- lækna var boðið, sem sparaði FUL mikið. í maí fóru Drífa Freysdóttir og Páll Matthíasson á misserisfund PWG í Helsinki, og var það jafnframt 20 ára af- mælisfundur samtakanna I septemberlok fóru Drífa Freysdóttir og Páll Matthíasson á formannaráðstefnu norrænna unglækna og í framhaldi af því á misserisfund PWG í október- byrjun. Báðir fundirnir voru haldnir í Kaupmannahöfn, með fjögurra daga millibili. Af þeim fjölmörgu málum sem tekin voru fyrir á árinu voru nokkur sérstaklega í deiglunni. Vinnutímalöggjöfin er mikið hitamál í Evrópu. Fjörtíu og átta tíma hámarks vinnuvika er orðin að lögum víða í Evrópu - og sem EES þjóð munum við þurfa að fylgja þeim hámörkum líka. Nokkrar stéttireruþó und- anþegnar - meðal annars „doctors in training“. PWG berst fyrir því að vinnutímalög- gjöfin verði líka látin ná til ung- lækna, en það hefur gengið illa. Nokkur lönd hafa þó tekið upp slíkar reglur, meðal annars Danmörk og Holland. í Finn- landi er komið 300 klukku- stunda hámarksyfirvinnuþak á ári á unglækna. Hér á landi er baráttan skemmra á veg komin. Gera þyrfti athugun á því en mín tilfinning er sú að íslenskir unglæknar hefðu fæstir nokkuð á móti því að stytta vinnuvikuna - ef það kæmi ekki niður á laun- um! Viðhöfum spurst fyrir í Fé- lagsmálaráðuneytinu um það hvað menn hyggist fyrir í vinnu- tímamálum - en fengum þar engin vitræn svör. Ákveðin hætta er á því að reglurnar verði keyrðar yfir okkur - þar sem fæst okkar teljast „doctor in training“ það er að segja læknar í skipulögðu framhaldsnámi. Slíkt er þó ólíklegt miðað við erfiðleikana sem eru nú þegar við mönnun í stöður unglækna. Kjaramál eru víða til um- ræðu. Ymsir grannar okkar hafa náð athyglisverðum ár- angri þar, sérstaklega Norð- menn, sem náðu fram 20-25% launahækkun með skæruverk- föllum og yfirvinnubanni nú í sumar. Enskir læknar krefjast nú 53% launahækkunar (grunn- laun breskra unglækna eru 150- 300 þús ísl. kr. á mánuði og 25% skattar). Frakkar eru á leið í verkfall og svo mætti lengi telja. Almennt má segja að kjör okkar séu miklu lakari en gengur og gerist í Norður- og Mið- Evrópu, þótt við berum svipað úr býtum í heild vegna allrar okkar yfirvinnu. Hins vegar er- um við miklu betur stödd en Suður- og Austur-Evrópubúar - þar sem ástand kjara- og rétt- indamála er víða skelfilegt. Staða Iækna innan heilbrigð- iskerfísins, sívaxandi kerfis- kallamennska og hjúkrunar- veldi er samevrópskt áhyggju- efni. Víða í Evrópu eru læknar komnir með fjölmennt lið markaðs- og fjölmiðlafólks í vinnu. Farið er að leggja mikla áherslu á markaðssetningu og fjölmiðlakynningu á sjónarmið- um lækna. Víða hafa samtök lækna hafið samvinnu við rétt- indasamtök sjúklinga, í baráttu gegn því að fjárhagslegir hags- munir ríkisins ráði öllu í rekstri heilbrigðiskerfisins. Parna er- um við langt á eftir erlendum kollegum okkar og getum margt lært. Skipulag á sérnámi og sam- eiginlegar kröfur innan Evrópu að því er varðar sérfræðiréttindi í einstökum sérgreinum eru víða komnar vel á veg. PWG tekur virkan þátt í þeirri vinnu. Framtíðarspár um læknis- þörf og fleira. PWG hefur gert ítarlegar rannsóknir á fjölda unglækna í Evrópu og spár um læknaþörf langt fram á næstu öld.Víða vantar lækna - hér verður þó ekki skortur fyrr en 2000-2010. Nú er í gangi rann- sókn á högum og viðhorfum unglækna í öllum aðildarríkjum PWG og verða frumniðurstöð- ur kynntar næsta vor. Ný lög PWG voru samþykkt nú í Kaupmannahöfn. Meðal nýmæla var það að nafni sam- takanna var breytt og þau eru ekki lengur eingöngu fyrir spítalalækna heldur einnig ung- lækna sem vinna í heilsugæslu eða á rannsóknarstofum. (Hétu áður Permanent working group of European Junior Hospital Doctors, en nú er búið að taka „hospital" úr nafninu.) Sérmál Nokkur mál einstakra ung- lækna komu upp, sérstaklega í kringum uppsagnir heilsugæslu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.