Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 10

Læknablaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 10
838 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 og 7, 571,0 úr ICD 8 og 571,0, 571,1, 571,2 og 571,3 úr ICD 9. Klínísk tíöni: Klínísk tíðni var metin með tveimur nátengdum aðferðum: Aðferð 1: Greiningarskrár þriggja stærstu sjúkrahúsanna í Reykjavík og Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri voru kannaðar fyrir tímabilið 1971-1990. Ef þar var skráð skorpulif- ur, hækkaður portæðarþrýstingur, vökvi í kviðarholi eða blæðing frá æðagúlum í vélinda, annað hvort sem aðal- eða meðfylgjandi sjúk- dómsgreining var leitað að lifrarsýnum og þau endurskoðuð. Ef vefjagreiningin stóðst skil- merki (25) voru sjúkraskýrslur kannaðar og sjúklingar flokkaðir eftir orsakavaldi sjúk- dómsins. Þess var vandlega gætt að telja hvert tilfelli aðeins einu sinni og greiningardagur var talinn sá er lifrarsýnið var tekið. Aðferð 2: í greiningarskrá Rannsóknarstofu Háskóla íslands í meinafræði var leitað að öll- um lifrarsýnum teknum á tímabilinu. Öll sýni sem greind höfðu verið sem skorpulifur voru endurmetin af Bjarka Magnússyni. Lifrarsýna- skráin var síðan borin saman við greiningar- skrár sjúkrahúsanna. Horfur sjúklinga í klínísku rannsókninni voru rnetnar með tveimur aðferðum: Aðferð 1: Nöfn látinna íslendinga eru tekin úr þjóðskrá ári eftir dauðsfall. Fimm ára lifun var því metin fyrir tímabilið 1970-1985 með því að kanna þjóðskrá sex árum eftir greiningu. Ef nöfnin voru ekki í þjóðskrá var sjúklingur tal- inn látinn. Aðferð 2: Fjöldi dauðsfalla í dánartíðnirann- sókninni var borinn saman við fjölda greindra tilfella í klínísku rannsókninni. Með því fæst óbeint mat á lifun en takmörk þeirrar aðferðar er að ekki er mögulegt að staðhæfa að skorpu- lifur hafi verið dánarorsökin. Þessi aðferð var því aðallega notuð til að sannreyna gildi þeirra upplýsinga sem fengust úr dánarvottorðum. Krufningarrannsókn: Allar krufningar- skýrslur fyrir árin 1971-1990 voru kannaðar og leitað að skorpulifur. í öllum þeim tilvikum þar sem skorpulifur hafði greinst í krufningu voru lifrarsýni endurmetin. Upplýsingar um áfengisneyslu: Upplýsingar um sölu áfengra drykkja voru fengnar frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Neyslutöl- ur voru reiknaðar sem lítrar af hreinum vín- anda á hvern íbúa, 15 ára og eldri. Mannfjöldi: íslendingum fjölgaði úr 150.000 árið 1951 í 250.000 árið 1990. Flutningur úr landi var innan við 1% á ári. Vegna fámennis þjóðarinnar er ekki mögulegt að gera ná- kvæma aldurs- og kynjaskiptingu. Meðal- mannfjöldi á hverju fimm ára tímabili var reiknaður út svo og meðaltíðni fyrir hverja milljón íbúa á ári í aldursflokkunum 20-49, 50-69 og eldri en sjötugt. Þessi flokkun aldurs var valin til að fá vísbendingar um breytingar hjá ungu, miðaldra og gömlu fólki. Ekki er mögulegt að gera sérstaka kynjaskiptingu. Þar sem aðeins fundust þrír sjúklingar innan við tvítugt (allir með meðfæddan galla í gallvegum og/eða enga gallvegi) þá nær rannsóknin ekki til allrar þjóðarinnar, heldur er hún takmörkuð við 20 ára og eldri. Staðtölulegar aðferðir: Gert var ráð fyrir að sá fjöldi tilfella sem fyndist á hverju tímabili eða í hverjum aldurshópi fylgdi Poisson dreif- ingu og samkvæmt þeirri forsendu voru 95% öryggismörk reiknuð og síðan fjöldi tilfella á milljón íbúa. Tíma- og aldursleitni var prófuð með kí-kvaðratsprófi og marktækni sett við p<0,05. Forsendur prófsins voru að tölugildi næðu fimm í hverju hólfi töflunnar. Ef þessar forsendur voru brotnar var sett spurningar- merki við p-gildi. Kí-kvaðratsprófið fyrir tvö óháð sýni var einnig notað til að meta mismun milli kynja. Niðurstöður Dánartíðni: Alls lést 121 sjúklingur af völdum skorpulifrar á tímabilinu (tafla I). Tuttugu og níu (24%) létust af völdum áfengisskorpulifr- ar. Hlutfall karla og kvenna er 3,8 fyrir áfengis- skorpulifur og 1,1 fyrir skorpulifur af öðrum orsökum (X2 = 5,6, p<0,025). í töflu II ersýnd tíðni í aldursflokkum og í töflu III tíma- og aldursleitni fyrir áfengisskorpulifur og skorpu- lifur af öðrum orsökum. Tíðni fer marktækt lækkandi með tíma fyrir áfengisskorpulifur í aldursflokknunt 20-49 ára og hjá þeim sem eru eldri en tvítugir, en engin tímaleitni var fyrir Table I. Number of deaths from alcoholic and non-alcoholic cirrhosis in Iceland 1951-1990. 1951- 1970 1971- 1990 Males Females Males Females Total (%) Alcoholic cirrhosis 16 3 7 3 29 (24) Non-alcoholic cirrhosis 26 22 22 22 92 (76) Total 42 25 29 25 121 (100)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.