Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 13

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 13
(flúoxetín) árangursríkt íslenskt geðlyf Seról (flúoxitín) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Hylki; N 06 A B 03 R B Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Töflur; N 06 A B 03 Hver tafla inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN10 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila. Lyfið hefur lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni í heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingun- artími flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álika virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyf fyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá því að töku flúoxetins er hætt. Ekki ætti að nota tryptófan með þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf því að fylgjast vel með litíummagni í blóði. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Við mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Hylki 20 mg: 30 stk. - 4686 kr.; 100 stk. - 14374 kr. Töflur 10 mg: 30 stk. - 2443 kr.; 100 stk. - 7887 kr. Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiöslu, stofnaö 1990

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.