Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 43

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 867 Ósjálfráð þvaglát meðal skólabarna á Akureyri Inga María Jóhannsdóttir, Magnús L. Stefánsson Jóhannsdóttir IM, Stefánsson ML Enuresis amongst schoolchildren in an Icelandic town Læknablaðið 1996; 82: 867-71 Enuresis is defined as uncontrolled voiding during day or night after normal control is expected. It is a common disorder, which can be divided into pri- mary and secondary. We looked at the health files from children born between 1986-1988, written when they started school. There were 62 children which were said to have enuresis matched with 62 controls of same sex and from the same class. Ques- tionnaires were sent to the parents of each child. That way five more children were found. A total of 101 took part in the study, 52 patients and 49 con- trols. The prevalence of enuresis was 9.8%, boys being almost two thirds. 69% had primary enuresis, 56% only/also at daytime. Over 44% of patients had a parent with history of enuresis and 48% other relatives too. 88% said that the disorder influenced their children’s lives. Many parents worried and sought advice. Urinary infection was commoner among patients but not other diseases. Many chil- dren were evaluated and therapy attempted in 54%, mostly drugs and/or alarm device. Permanent re- sults were disappointing. Our results are similar to other studies. Most of our patients still had enuresis when the study took place but 15-17% should spon- taneously cure each year. A few still might have this problem in adulthood. Ágrip Ósjálfráð þvaglát (enuresis) eru skilgreind sem þvagmissir að nóttu eða degi, eftir að börn hafa náð þeim aldri að þau eiga að hafa stjórn á Frá barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Fyrir- spurnir, bréfaskipti: Inga María Jóhannsdóttir, Eiríksgötu 31, 101 Reykjavík. Lykilorð: Schoolchildren, enuresis. þvaglátum. Þetta er nokkuð algengur kvilli sem ýmist hefur ávallt verið til staðar eða hætt um tíma og byrjað aftur. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni kvillans meðal skólabarna á Akureyri, hugsanlega sjúkdóma sem að baki gætu legið og áhrif kvillans á líf barna og foreldra þeirra. Skoðaðar voru heilsufarsskrár barna í grunnskólum Akureyrar, sem fædd eru á árun- um 1986-1988. Alls fundust 62 börn með þenn- an kvilla við upphaf skólagöngu. Til viðmiðun- ar voru fengin börn úr sama bekk og af sama kyni. Spurningalisti var sendur foreldrum og þannig fundust fimm börn til viðbótar. Alls tók 101 barn þátt í könnuninni, 52 sjúklingar og 49 börn í viðmiðunarhópi. Algengi reyndist 9,8%, drengir voru 64%. Alls höfðu 69% haft kvillann frá upphafi, 56% einnig eða eingöngu að degi til. Um 44% sjúk- linga áttu foreldri með sögu um kvillann en alls 48% foreldra og/eða aðra ættingja. Þetta ástand var talið hafa haft áhrif á sálarlíf 88% barnanna. Margir foreldrar höfðu áhyggjur og leituðu ráða. Þvagfærasýking var algengari meðal sjúklinga, en ekki aðrir sjúkdómar. Mörg barnanna voru rannsökuð og meðferð reynd hjá 54%, aðallega lyf og/eða ýlutæki. Langtímaárangur var lélegur. Niðurstöður okkar eru sambærilegar við niðurstöður annarra rannsókna. Um 50% sjúklinganna inisstu enn þvag er rannsóknin var gerð en talið er að 15-17% lagist sjálfkrafa á hverju ári. Kvillinn fylgir þó einstaka sjúkling- um fram á fullorðinsár. Inngangur Ósjálfráð þvaglát (enuresis) hafa verið skil- greind sem þvagmissir eftir að börn hafa náð þeim aldri, að þau eiga að hafa náð stjórn á þvaglátum. Þvagmissir að degi til telst ekki vandamál fyrr en börn eru tveggja og hálfs til

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.