Læknablaðið - 15.12.1996, Qupperneq 54
878
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Frá Félagi ungra lækna
Kæru félagar, nú er aðalfundur FUL liðinn og ný stjórn tekin til starfa. Hér á eftir mun fráfarandi
formaður tíunda helstu störf stjórnar á síðastliðnu ári. Síðan verður fjallað um aðalund FUL, stjórnar-
skipti, lagabreytingar, helstu verkefni framundan og tilkynningar til unglækna. Mjög mikilvægt er að
allir unglæknar lesi þetta yfir og kynni sér þannig lauslega þau hagsmuna- og kjaramál sem stjórn FUL
hefur barist fyrir undanfarin ár, með ágætum árangri.
Skýrsla stjórnar FUL 1995-1996
Starfsárið sem er að baki hef-
ur síður en svo verið tíðinda-
laust. Hæst ber baráttuna fyrir
því að hnekkja aðgengistak-
mörkunarákvæðinu í samningi
stofusérfræðinga og Trygginga-
stofnunar ríkisins. Annað er
barátta fyrir bættri stöðu FUL
innan LÍ, mál sem þokaðist
nokkuð á árinu - ekki síst vegna
vikulegra „Perlufunda“ í sum-
ar, þar sem stjórnin og fleiri
hittust og skipulögðu stefnu
FUL fyrir aðalfund LI í septem-
ber. Annað mikilvægt mál hefur
verið baráttan við LIN sem
virðist engan endi ætla að taka.
Kjaradeilur hefur okkur ekki
með öllu tekist að forðast, þó
hefur verið rólegra á þeim víg-
stöðvum en oft áður. Tíminn
hefur í staðinn verið nýttur í það
að setja niður á blað kröfur fyrir
næstu baráttu. Fræðsluvika LI
var með hefðbundnum hætti og
kom félagið nokkuð að skipu-
lagningu hennar ásamt öðrum.
Einkamál einstakra unglækna
hafa líka tekið töluvert á. Lítill
tími hefur því gefist til að sinna
öðrum hlutum eins og uppbygg-
ingu safns með upplýsingum um
nám erlendis, almennum
fræðslu- og menntunarmálum
og svo framvegis. Þó var á árinu
haldið námskeið á vegum fé-
lagsins um ákvarðanatöku varð-
andi sérnám. Mæltist það vel
fyrir og er vonandi að framhald
verði á slíku.
Barátta gegn aðgengis-
takmörkunum i samningi
LR og TR
Hvers vegna viljum við ekki
samning af þessu tagi?
Fyrir það fyrsta teljum við
samninginn stríða gegn sam-
keppnislögum (nr. 8/1993 m.br.
nr. 24/1994). í öðru lagi veltum
við því fyrir okkur hvort óeðli-
lega hafi verið staðið að sam-
þykkt samningsins og í þriðja
lagi veltum við því fyrir okkur
hvort sérfræðingar er sam-
þykktu samninginn hafi gerst
brotlegir við 29. grein siða-
reglna lækna.
Hvað höfum við gert ?
Stjórn félagsins hófst þegar
handa við að kanna möguleika á
úrsögn úr LÍ samkvæmt sam-
þykktri ályktun almenns félags-
fundar FUL þann 14. mars 1996.
Að lokum ákváðum við að láta
slíkt ógert að sinni, enda von
okkar að fleira sameini lækna
en sundri. Nýafstaðinn aðal-
fundur LÍ, þar sem friðar- og
sáttavilji ríkti. styrkti okkur í
þeirri von um samstöðu meðal
lækna.
Við ákváðum einnig að höfða
ekki mál fyrir dómstólum út af
formlegri gerð samningsins og
kæru til siðanefndar létum við
einnig eiga sig. Frá upphafi
töldum við hins vegar að okkar
mikilvægasti mótleikur yrði að
fá aðgengisákvæðinu hnekkt út
frá samkeppnislögum. Lög-
fræðingar voru því sammála,
bæði Ágúst Sindri Karlsson sem
rekur málið og Arnmundur
Bachmann. FUL sendi kæru til
Samkeppnisstofnunar í nóv-
ember 1995. Búið er að taka
málið til fyrri afgreiðslu í Sam-
keppnisráði. Samkvæmt heim-
ildum okkar fengu sjónarmið
unglækna þar góðan hljóm-
grunn og er endanlegs svars
Samkeppnisráðs að vænta í nóv-
ember eða desember.
Við settum svo mikla orku í
áframhaldandi baráttu innan LI
fyrir því að samningur af þessu
tagi verði ekki gerður aftur. Það
var ljóst að það yrði helst með
því að fá samþykkta ályktun á
aðalfundi LÍ sem myndi binda
hendur samninganefndar LI.
a) Því studdum við á auka-
aðalfundi LI sem haldinn var
um skipulag heilbrigðismála
4. september síðastliðinn,
ályktun frá sérfræðilæknum!
sem fjallaði um að einn hópur
lækna geti ekki gert samninga