Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 59

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 59
í ráðuneytinu eru allir með í vegna lyfjakostnaðar Zantac getur linað þœr þjáningar 45% verðlækkun Einkaleyfi á Zantac er nú aö falla út í Evrópu og því hefur Glaxo Wellcome ehf. ákveðiö aö lækka veröiö á frumlyfinu Zantac um 45%. Þaö þýöir aö nú fæst frumlyfið á lægra eöa sama veröi og eftirlíkingarlyfin sem hafa verið til sölu á markaðnum. Zantac Töflur: Hver tafla inniheldur: Ranitidinum INN, klórið, samsvarandi Ranitidinum INN 150 mg eða 300 mg. Eiginleikar: Lvfiö blokkar histamínviðtæki (H2) og dregur þannig úr myndun saltsýru i maga. Eftir inntöku vara áhrif lyfsins a.m.k. 8 klst. Helmingunartími í blóði er 2-3 klst. Abendingar: Sársjúkdómur i skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (reflux oesophagitis). Zollinger-Ellison syndrome. Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Varnandi meðferó við endurteknu sári i skeifugörn. Til að hindra sármyndun i maga og skeifugórn vegna streitu hjá mikio veikum sjúklingum. Varnandi meðfero við endurteknum blæðingum frá maga eða skeifugörn. Töflur 150 mg: Sýrutengd meltingaróþægindi án sára. Maga- eða skeifugarnarsár af völdum gigtarlyfja. Bólga og sár i vélinda vegna bakflæðis. Langtímameðferð til varnar bólgu og sármyndun í vélinda vegna bakflæðis. Frábendingar: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið vanfærum eða mjólkandi konum nema brýn ástæða sé til. Ofnæmi fyrir lyfinu. Aukaverfcanir: Þreyta, niðurgangur eða hægðatregða. Höfuðverkur, stundum mjög slæmur. Svimi getur komið fyrir. Stöku tilviki af timabundnu rugli og ofskynjunum, einkum hjá mikið veiku og öldruðu fólki. óskýr sjón, liklega af völdum sjónstillingartruflana. Ofnæmi (ofnæmislost, hiti, útbrot, anpioneurotiskt ödem, samdráttur í berkjum) kemur fyrir einstaka sinnum. Fækkun hvitra blóðkorna og blóðflagna hefur komið fyrir, en gengur venjulega til baka þegar lyfjagjöf er hætt. Agranulocvtosis og pancytopenia jafnvel merg aplasia hefur verið lýst. Timabundnar breytingar á lifrarstarfsemi með eða an gulu. Brjostastækkun hjá körlum hefur örsjaldan verið lýst. Hægur hjartsláttur sést einstaka sinnum. AV-leiðslurof og jafnvel asystola. Liðverkjum og verkium fyrir brjósti hefur verið lýst, en þó sjaldan. Eiturverkanir: Mjög litil reynsla er enn komin af eiturverkunum ranitidin. Einkenni: Hægur hjartsláttur og andþrengsli. Medferd: Magatæming, lyfjakol. Reyna má atrópin við hægum hjartslætti. Að öðru leyti symptómatísk meðferð. Varúd: Við nýrnabilun getur þurft að gefa lægri skammta lyfsins. Varað er við langtimanotkun hærri skammta af lyfinu en mælter með. Skammtastærðir handa fullorðnum: Töflur.SI ið sárasjukdómi í skeifugörn oa maga: 150 mg tvisvar í dag eða 300 mg að kvöldi. Meðferðin á að standa í a.m.k. 4 vikur, jafnvel þótt einkenni hverfi fyrr. Við reflux oesophagitis: 150 mg tvisvar á dag eða 300 mg að kvöldi. I svæsnum tilfellum, sem staðfest hafa verið með speglun, má hækka skammta í 300 mg fjórum sinnum á dag. Meðferðin á að standa i 8 vikur. Við Zollinper-Ellison syndrome: í upphafi 150 mg þrisvar á dag. Ekki er mælt með stærri dagskömmtum en 900 mg. Varnandi meðferð við sári í skeifugörn: 150 mg fyrir svefn. Syrutengd meltingaróþægindi án sára: 150 mg tvisvar sinnum á dag i 4-6 vikur. Maga- eða skeifugarnarsár af völdum gigtarlyfja: 150 mg tvisvar á dag eða 300 mg að kvöldi. Meðferöin getur þurft að standa i 8-12 vikur, ef gjöf gigtarlyfja er jafnframt haldið áfram. Langtimameðferð til varnar bólgu og sármyndun í vélinda vegna bakflæðis: 150 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa börnum: Reynsla af notkun lyfsins handa börnum er takmörkuð. Við sársjúkdómi i skeifugörn og maga er hæfilegt að gefa 2-4 mg/kg tvisvar á dag, pó ekki meira en 300 mg á dag. Pakkningar og verð: Töflur 150 mg: 20 stk. (þynnupakkað) - 1.267 kr.; 60 stk. ... ........ (þynnupakkað) - 3.653 kr. Tötlur 300 mg: 30 stk. (þynnupakkað) - 3.388 kr. Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, ef hlýtt er gildandi fyrirmælum þar að lútandi, sbr. ákvæði í viðauka 4 við reglugerð nr. 421/1988 um gerð lyfseðla og ávisun lyfja, afgreiðslu þeirra og merkingu. Hámarksmagn i meðlyf '*■ ■ ! GlaxoWellcome 1‘rrrhnlli N • 10.5 lln ■kjnrik • SiniiöO / 69.70 sem ávisa má meðlyfseðli er sem svarar 30 daga skammti.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.