Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 4
indlMurini)!1 Praz©l Áhrifaríkt íslenskt magalyf sem vinnur á sýruvandanum Sýruhjúphylki; A 02 B C 01 Afgreiðslutilhögun: Greiðsluþátttaka: E. Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+,H+- ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aögengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóöi er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfiö umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út meö þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur í og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtímanotkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn. Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar: Engar þekktar. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukinn vindgangur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi veriö lýst í tengslum við ómeprazól meöferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liöverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýkingar í munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrabólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða díazepams, warfaríns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar ekki þekktar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka lyfið þannig inn en innihaldið má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróiö, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtímameðferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna síendurtekins sársjúkdóms í maga eða skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar og verð: 14 stk.(kr.3681), 28 stk.(kr.6439), 56 stk.(kr.11685) og 100 stk.(kr.19591). Mars 1997
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.