Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
213
Table II. Questionnaire data.
Questions n/Total N (%)
Q 1. Have you had wheezing or whistling in your chest at any time in the last 12 months? 94/567 (16.6)
If yes: Q 1.1. Have you been at all breathless when the wheezing noise was present? 35/93 (37.6)
Q 1.2. Have you had this wheezing or whisling when you did not have cold? 53/93 (57.0)
Q 2. Have you woken up with a feeling of tightness in your chest at any time in the last 12 months? 51/562 (9.1)
Table III. Questionnaire data.
Questions n/Total N (%)
Q 3. Have you had an attack of shortness of breath that came on during the day when you were at rest at any time in the last 12 months ? 16/567 (2.8)
Q 4. Have you had an attack of shortness of breath that came on following strenuous activity at any time in the last 12 months ? 115/567 (20.3)
Q 5. Have you been woken by an attack of shortness of breath at any time in the last 12 months? 9/567 (1.6)
Q 6. Have you been woken by an attack of coughing at any time in the last 12 months? 121/567 (21.3)
Q 7. Do you have any nasal allergies including „hay fever“? 131/567 (23.1)
vegna hjartaáfalla á síðustu þremur mánuðum
eða vegna meðferðar á hjartasjúkdómum,
fimm vegna notkunar flogaveikilyfja, fjóra
vegna notkunar betablokkerandi lyfja, 16
ófrískar konur og 12 konur með börn á brjósti.
Einnig voru útilokaðir frá metakólínprófinu
níu einstaklingar sem féllu um > 10% í FEVj 0
við að anda að sér 0,9% saltvatni í upphafi
prófsins og fjórir sem höfðu FEVj 0% lægra en
70% af viðmiðunargildi.
Ofnœmispróf: Ofnæmispróf voru gerð með
pikkaðferð hjá 540 þátttakendum og prófað
fyrir 12 ofnæmisvökum (12). Einnig voru mæld
í sermi sértæk IgE-mótefni fyrir fimm ofnæmis-
vökum (Pharmacia CAP system) (19).
Skilgreining astma: Uppsöfnuð algengi
astma (cumulative prevalence) voru öll þau
tilvik þegar fyrri saga var um astma staðfestan
af lækni. Algengi astma á einu ári (current
prevalence) var metið út frá sögu um píp (ýl)
eða surg fyrir brjósti á síðastliðnum 12 mánuð-
um ásamt sögu um astmagreiningu staðfesta af
lækni og/eða berkjuauðreitni og sögu um píp
(ýl) eða surg fyrir brjósti á síðustu 12 mánuð-
um.
Tölfrœði: Gildi eru birt sem meðalgildi með
einu staðalfrávik (±SD). Samanburður á hóp-
um var gerður með kí-kvaðratsprófum.
Niðurstöður
Alls svöruðu 567 spurningalista, 535 fóru í
blásturspróf, 470 í berkjuauðreitnipróf og 540 í
húðpróf (tafla I).
Öndunarfœraeinkenni: Tæplega 17% höfðu
tekið eftir pípi (ýli) eða surgi fyrir brjósti síð-
ustu 12 mánuði og rúmlega helmingur þeirra
hafði haft surg án þess að vera kvefaður (tafla
II). Níu af hundraði höfðu vaknað með þyngsli
fyrir brjósti (tafla II) og 2,8% höfðu fengið
mæðiskast í hvfld að degi til (tafla III). Tuttugu
og þrír af hundraði sögðust hafa haft ofnæmi í
nefi, þar með talið frjókvef (tafla III). Meðal
karla gáfu 19,6% upp surg fyrir brjósti síðustu
12 mánuði en 13,7% kvenna (p=0,06). Þetta
snerist við varðandi næturhósta og marktækt
fleiri konur en karlar höfðu vaknað vegna
hóstakasta einhvern tímann síðustu 12 mánuði
(25,7% á móti 16,7%) (p<0,01). Ekki var
marktækur munur á kynjum varðandi önnur
öndunarfæraeinkenni (töflur II og III).
Þrjátíu og tveir (5,6%) svöruðu jákvætt
spurningunni: Hefurðu nokkurn tímann fengið
astma? (tafla IV). Hjá öllum nema fjórum
hafði greiningin verið staðfest af lækni. Upp-
safnað algengi astma (cumulative prevalence)
samkvæmt þessari skilgreiningu er því 4,9%.
Fjórtán (2,5%) höfðu fengið astmakast síðustu