Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
207
Gram jákvæðra baktería ónæmum fyrir B-lakt-
am sýklalyfjum. Sem forvarnarsýklalyf hjá
sjúklingum með æðaleggi (hvort sem þeir eru í
nriðbláæð eða útlimabláæð) eða æðagrafta.
Sem upphafsmeðferð við sýklalyfjatengdri rist-
ilbólgu. Sem forvarnarsýklalyf hjá fyrirburum.
Sem forvarnarsýklalyf hjá sjúklingum með-
höndluðum með kviðskilun.
Teknar voru saurræktanir frá öllum sjúkling-
um og starfsfólki viðkomandi deildar. Frá
þeim sjúklingum sem ekki gátu skilað saur-
prufum voru tekin endaþarmsstrok í flutnings-
æti (Culturette®, Becton and Dickinson,
USA).
Aðrar aðgerðir á Landspítalanum: Teknar
voru ræktanir úr frárennsli Landspítalans á
þann hátt að sýni fengjust frá öllum helstu
álmum spítalans. Samkvæmt því voru tekin
vökvasýni úr holræsum spítalans á fimm stöð-
um. Jafnframt var ákveðið að taka skimrækt-
anir frá sjúklingum á gjörgæsludeild, krabba-
meinslækningadeild, einni skurðdeild og einni
barnadeild. Teknar voru ræktanir frá þeim
sjúklingum þessara deilda sem höfðu verið á
spítalanum lengur en sjö daga eða höfðu fengið
sýklalyf í meira en 48 klukkustundir. A gjör-
gæsludeild voru tekin sýni frá þeim sem höfðu
verið þar lengur en 48 klukkustundir.
Teknar voru saurræktanir frá öllum sem
gátu skilað hægðaprufu en hjá hinum var tekið
endaþarmsstrok í flutningsæti (Culturette®).
Meðferð sýna, greining: Öllum sýnum var
sáð á sýklaæti innan sex klukkustunda frá sýna-
töku. Saursýnum var sáð á Kanamycin aesculin
agar (valæti fyrir enterókokka, Oxoid, Eng-
land), S-S agar (valæti fyrir bæði streptókokka
og stafýlókokka, Oxoid, England) og í genta-
mícín saltbroð (6,5% NaCl og 4 mg/1 genta-
mícín, valæti fyrir enterókokka). A öðrum
degi var sáð úr gentamícínsaltbroðinu á Kana-
mycin aesculin agarinn. Þyrpingar með dæmi-
gert útlit voru greindar með hefðbundnum
hætti. Næmispróf voru gerð á öllum enteró-
kokkum með skífuprófum að hætti Kirby og
Bauer (18). Þeir enterókokkar sem reyndust
vera ampicillín ónæmir voru greindir til teg-
undar með API Strept prófi (API20Strep,
bioMérieux sa, Frakkland) og/eða Vitek grein-
ingarspjaldi (Vitek®GPI, bioMérieux Vitek,
Inc., USA). Lágmarksheftistyrkur ampicillín
ónæmra stofna var mældur með E-test®
strimlaprófi (AB Biodisk, Svíþjóð).
Nœmi enterókokka í sýnitm sendum til sýkla-
frœðideildar Landspítalans: Algengast er að
enterókokkar séu greindir í þvagsýnum og þá
er einnig líklegast að næmi þeirra fyrir sýkla-
lyfjum sé athugað, þar sem þeir eru algengir
sýkingarvaldar í þvagfærum. Því var farið yfir
allar þvagræktanir fyrir tímabilið 01.01.1994 til
31.12.1995. Næmi höfðu verið gerð fyrir amp-
icillíni, tetracýklíni, erýtrómýcíni, trímetó-
prím-súlfa, nítrófúrantóíni og vankómýcíni
með aðferð Kirby og Bauer (18) og voru niður-
stöður þeirra skráðar.
Niðurstöður
Sjúklingar sem greindust með ampicillín
ónœma enterókokka fyrir aðgerðir:
1) Sjúklingur með samfallsbrot á hrygg, sem
átti margar sjúkrahúslegur að baki. Var með
inniliggjandi þvaglegg og greindist með þvag-
færasýkingu af völdum ampicillín ónæmra ent-
erókokka eftir þriggja vikna legu. Hafði ekki
verið á sýklalyfjum.
2) Sjúklingur lagður inn á viðkomandi deild
með blóðugan niðurgang, en fór þaðan í ristil-
aðgerð og síðan á skurðdeild. Fór á breiðrófs-
sýklalyf eftir aðgerðina og um tveimur vikum
síðar ræktuðust ampicillín ónæmir enteró-
kokkar úr skurðsárinu.
3) Sjúklingur með alnæmi á lokastigi. Hann
hafði fengið mikið af sýklalyfjum, var með
inniliggjandi miðbláæðalegg og fékk blóðsýk-
ingu af völdum enterókokkanna.
Skimrœktanir: Á þeirri sjúkradeild, þar sem
ampicillín ónæmu stofnarnir höfðu fundist,
voru teknar ræktanir frá 11 sjúklingum og 19
starfsmönnum. Einn sjúklingur reyndist vera
með ampicillín ónæma enterókokka í saur svo
og einn starfsmaður. Sjúklingurinn hafði marg-
oft legið á Landspítalanum og hafði verið á
sýklalyfjum vegna lungnabólgu. Starfsmaður-
inn var hraustur og hafði ekki verið á sýklalyfj-
um, en hafði unnið mikið með þá sjúklinga sem
voru með ónæmu stofnana. Aðrir voru aðeins
með næma enterókokka.
Teknar voru 23 skimræktanir frá sjúklingum
á öðrum deildum (níu á krabbameinslækninga-
deild, sjö á skurðdeild, fjórar á barnadeild og
þrjár gjörgæsludeild). Engir ampicillín ónæmir
enterókokkar fundust í sjúklingunum á þessum
deildum.
Engir ampicillín ónæmir enterókokkar fund-
ust í holræsum spítalans.
Bakterían: Ampicillín ónæmi enterókokka-
stofninn var Enterococcus faecium (GPI