Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
241
væg. Stigun á æxlum í meltingarfærum fyrir að-
gerð er ónákvæm. Þrátt fyrir eðlilega sneiðmynd
reynist sjúkdómur í um það bil 50% tilfella vera
dreifður við skurðaðgerð. Þetta má bæta með
kviðsjárspeglun og fá stigun sem er rétt í allt að
90% tilfella. Sé einnig notuð ómun um kviðsjá
verður stigunin mun nákvæmari. Á handlækn-
ingadeild Landspítalans fara nú sjúklingar með
krabbamein í efri hluta meltingarfæra fyrst í kvið-
sjárspeglun og ómun til stigunar áður en skurðað-
gerð er framkvæmd.
Sýnd verða myndbönd af stigunaraðgerðum og
tillögur að uppvinnslu sjúklinga með krabbamein
í efri hluta meltingarvegar. Tilgangurinn er að
ræða kosti og galla þessarar áætlunar.
E-49. Stillanleg sultaról með kviðsjá við
sjúklegri offítu
TómasGuðbjartsson,Jörgen Weimer, Dag Arvids-
son
Frá skurðdeild sjúkrahússins í Helsingjaborg
Sænskri stillanlegri sultaról (Swedish Adjusta-
ble Gastric Banding, SABG) hefur verið beitt í
Svíþjóð hjá offitusjúklingum frá 1985. í dag hafa
yfir 800 aðgerðir verið framkvæmdar í Svíþjóð og
er aðgerðin talin bæði örugg og árangursrík. Síð-
ustu ár hefur áhugi á stillanlegri sultaról aukist
samfara örri þróun kviðsjáraðgerða.
Tuttugu kviðsjáraðgerðir með stillanlegri sult-
aról hafa verið framkvæmdar á sjúkrahúsinu í
Helsingjaborg á síðustu tveimur árum. Sýnt verð-
ur myndband með helstu skrefum aðgerðarinnar
og birtar fyrstu niðurstöður af árangri þeirra.
Kviðarholið er blásið upp (13 mm Hg) og að-
gerðin framkvæmd í gegnum fimm 10/11 holstingi.
Byrjað er á að opna gat á burðarband (suspensory
ligament) á milli vinstri crus og stuttu magaæð-
anna á stóru magabugðunni. Pví næst er gert svip-
að gat við litlu magabugðuna, um það bil 2-3 cm
frá maga/vélindamótunum. Sérstaklega hönnuð
verkfæri og 70° kviðsjá eru síðan notuð til að
útbúa göng á bak við efsta hluta magans frá litlu
yfir á stóru magabugðuna. Sultarólinni, sem er
kísil- (silicon-) blaðra með dacronstyrktri ól, er
komið fyrir í kviðarholinu í gegnum 18 mm hol-
sting, hún dregin á bak við magann og endarnir
hnýttir inni í kviðarholinu með þræði sem ekki
eyðist. Til að ólin færist síður úr stað er hluti af
botni (fundus) saumaður fastur við cardia á fram-
vegg magans. Loks er slangan sem tengist kísil-
blöðrunni tengd lyfjabrunni (Port-a-Cath®) sem
er festur yfir brjóstbeininu.
Myndband með stillanlegri sultaról verður sýnt
til að kynna aðgerðartæknina.
E-50. Vefjastrekkjarar. Ný aðferð til
Iokunar á stórum sárum eða misfellum á
yfírborði líkamans
Rafn A. Ragnarsson
Frá lýtalœkningadeild Landspítalans
Mikilvægur þáttur í starfi lýtalækna er að græða
stór sár og lagfæra missmíðar á yfirborði líkam-
ans. I því augnarmiði hafa margar hugvitsamar
lausnir litið dagsins ljós eins og til dæmis húð-
ágræðsla, margar tegundir misflókinna flipa og
vefþenslupokar. Á allra síðustu árum hafa skotið
upp kollinum einföld tæki sem nýta sér innbyggð-
an teygjanleika húðarinnar. Fyrirbæri þetta hefur
verið þekkt í yfir 30 ár og byggir á hæfni kollag-
enþráða leðurhúðarinnar til þess að rétta úr sér og
lengjast við álag.
Aðferð þessi hefur verið reynd við lýtalækn-
ingadeild Landspítalans við nokkur valin tilfelli
og gefið góða raun þó að í ljós hafi komið ákveðn-
ir annmarkar. Hér virðist þó komin einföld og
hagkvæm nýjung sem kemur til með að bætast í
verkfærakistu lýtalækna og auðvelda starf þeirra.
E-51. Frír flutningur á taug og vöðva til
lagfæringar vegna helftarlömunar í and-
liti
Rafn A. Ragnarsson*, Hannes Hjartarson**
Frá *lýtalœkningadeild Landspítalans, **háls-,
nef- og eyrnardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
Tilkoma og þróun smásjárskurlækninga hefur á
tveimur áratugum valdið byltingarkenndum
breytingum fyrir þá sem sinna sjúkdómum og
áföllum er skerða yfirborð og starfsgetu líkam-
ans. Upphaflega var aðeins um að ræða flutning
húðar með fitu niður að vöðvahimnu. Nákvæm og
kerfisbundin kortlagning líkamans með það fyrir
augum að uppfylla sem flestar þarfir tilfallandi
vefjaskorts hefur síðan getið af sér aragrúa frírra
flipa þar sem hver hefur eithvað til síns ágætis.
Lömun á andlitstaug (nervus faciali) veldur
áberandi lýti og verulegri starfrænni fötlun. Við-
gerðin fram að þessu hefur þrátt fyrir flóknar
aðgerðir ekki svarað væntingum. Með tækni smá-
sjárskurðlækninga hefur opnast sá möguleiki að
flytja vöðvahluta með æðum og afltaug frá stað
þar sem ærin starfsgeta er fyrir hendi og tengja inn
í lamaða andlitshelminginn. Þetta er varanleg og
góð lagfæring sem bæði bætir úr starfsgetu og
aflögun andlits. Á síðasta ári voru framkvæmdar
þrjár slíkar aðgerðir á íslandi með ágætum ár-
angri.