Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 76
264
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Dreifibréf landlæknisembættisins nr. 4/1997
Bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðhundum (MMR)
Árið 1989 hófst almenn bólu-
setning með þrígildu bóluefni
gegn mislingum, hettusótt og
rauðhundum (MMR) á 18 mán-
aða gömlum börnum á íslandi
sem endurtaka skyldi við 12 ára
aldur. Farsóttanefnd ríkisins
mælti hins vegar með því árið
1994 í samráði við heilsugæslu-
lækna að endurbólusetning
skyldi fara fram við níu ára ald-
ur.
Landlæknir vill minna á að á
þessu ári er komið að því að
endurbólusetja þau börn sem
bólusett voru með þrígilda
bóluefninu við 18 mánaða aldur
1989. Jafnframt er mælt með að
börn sem ekki voru bólusett þá,
verði bólusett nú. Því er í reynd
mælt með að öll níu ára börn
veri bólusett með MMR án til-
lits til bólusetningar áður.
Ástæður þessa eru eftirfar-
andi:
1. Örva ónæmissvörun þeirra
níu ára barna sem þegar
hafa verið frumbólusett
með MMR.
2. Ná til þeirra sem ekki náð-
ist að bólusetja við 18 mán-
aða aldur eða þar sem bólu-
setning mistókst af ein-
hverjum ástæðum.
3. Flýta útrýmingu mislinga,
hettusóttar og rauðhunda á
íslandi.
Að gefnu tilefni skal á það
minnt að endurbólusetning er
framhald frumbólusetningar og
hafi lögráðamaður barns gefið
samþykki fyrir frumbólusetn-
ingu ber að líta svo á að sam-
þykkið nái einnig til endurbólu-
setningar.
Dreifíbréf landlæknisembættisins nr. 5/1997
Nýbúar og erlend ættleiðingarbörn
Ráðleggingar varðandi ónæmis-
aðgerðir á börnum með engar
eða óþekktan fjölda fyrri ónæm-
isaðgerða
Þegar ekki fylgja börnum
nýbúa eða ættleiðingarbörnum
frá öðrum löndum upplýsingar
um ónæmisaðgerðir er æskilegt
að gefa forráðamönnum barns-
ins stuttan frest til að afla
þeirra. Nægjanlegt er að fá ljós-
rit eða símbréf frá fyrra heima-
landi.
Vísað er til upplýsinga í
„Ungbarnavernd - Leiðbeining-
ar um heilsugæslu barna“, bls.
42, útg. af landlæknisembættinu
1996, að því er varðar almennar
leiðbeiningar um ónæmisað-
gerðir barna.
Bólusetning gegn mislingum,
hettusótt og rauðhundum
(MMR).
MMR er ráðlegt að gefa sem
fyrst eftir komu til landsins og
síðan aftur við níu ára aldur.
Börn sem eldri eru en níu ára
við komu fái eina sprautu. Hafi
þau fengið fyrri sprautuna inn-
an eins til eins og hálfs árs mið-
að við níu ára aldur þarf ekki að
endurbólusetja.
Bólusetning gegn Haemoptúl-
us Influenzae gerð b (Hib).
Börn yngri en 12 mánaða
þrjár ónæmisaðgerðir.
Börn 12-15 mánaða tvær
ónæmisaðgerðir.
Börn 14 mánaða til fimm ára
ein ónæmisaðgerð.
Börn eldri en fimm ára engin
ónæmisaðgerð.
Bólusetning gegn mænusótt.
Mælt er með að gefa mænu-
sóttarbóluefni á eftirfarandi
hátt án tillits til aldurs:
Polio 1 sem fyrst.
Polio 2 einum til tveimur mán-
uðum eftir Polio 1.
Polio 3 sex til átta mánuðum eft-
ir Polio 2.
Polio 4 tveimur til þremur árum
eftir Polio 3.
Polio 5 fimm árum eftir Polio 4.
Bólusetning gegn barnaveiki,
kíghósta og stífkrampa.
Mælt er með að gefa DPT
bólusetningu á eftirfarandi hátt:
DPT 1 sem fyrst.
DPT 2 einum mánuði eftir DPT
1.
DPT 3 sex til átta mánuðum eft-
ir DPT 2.