Læknablaðið - 15.04.1997, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
215
Algengi astma: Alls höfðu 10 (36%) af þeim
28, sem fengið höfðu astma staðfestan af
lækni, sögu um píp (ýl) eða surg fyrir brjósti
síðustu 12 mánuði (tafla IV). Meðal 41 ein-
staklings með auðreitni voru 17 (42%) með
sögu um píp (ýl) eða surg fyrir brjósti síðustu 12
mánuði (tafla IV). Fjórir tilheyra báðum skil-
greiningunum og er heildarfjöldi einstaklinga
með astma þannig: 10+17-4=23 eða um 5%
einstaklinga á aldrinum 20-44 ára. Meðal þess-
ara 23 einstaklinga voru 15 konur, en átta karl-
ar (p=0,2).
Önnur öndunarfæraeinkenni síðustu 12
mánuði (töflur II og III) voru marktækt
(p<0,01) algengari meðal astmasjúklinga,
65% höfðu sögu um mæði samfara pípi fyrir
brjósti og 57% höfðu tekið eftir pípi eða surgi
án þess að vera kvefaðir. Alls höfðu 43% vakn-
að með þyngsl fyrir brjósti og 52% fengið mæð-
iskast sem kom eftir mikla áreynslu. Meðal
þeirra níu einstaklinga sem höfðu vaknað
vegna mæðiskasta (tafla III) voru fimm líka
meðal þeirra 23 sem töldust hafa astma.
Bráðaofnæmi var algengara meðal þessara 23
einstaklinga eða 44% samanborið við 18% hjá
hinum (p<0,01) og meðalgildi FEV, 0% var
lægra (98±12 á móti 105+12, p<0,05). Alls
reyktu 12 (52%, p=0,5), einn var hættur en 10
höfðu aldrei reykt. Saga um frjókvef í nefi var
ekki marktækt algengari (35% á móti 23%,
p=0,2). Ættarsaga foreldra um astma og of-
næmi var ekki marktækt mismunandi, nema
hvað oftar var saga um astma hjá móður (17%
á móti 6%, p<0,05).
Umræða
Hér er á ferðinni viðamikil íslensk þver-
skurðarrannsókn á algengi astma og öndunar-
færaeinkenna. Aðferðir eru staðlaðar og
heimtur með besta móti hér á landi miðað við
aðra rannsóknarstaði (22) enda þótt þær séu
nokkuð lakari en í fyrri hluta rannsóknarinnar
(11).
Ekki er almennt samkomulag um skilgrein-
ingu astma í faraldsfræðirannsóknum og hafa
kostir og gallar mismunandi aðferða verið
raktir ýtarlega í nýlegri yfirlitsgrein (21). Ef
eingöngu er stuðst við mælingar á berkjuauð-
reitni við skilgreiningu á astma er næmi (sens-
itivity) hátt en sértækni (specificity) lág (21).
Öndunarfæraeinkenni (töflur II og III) eru
alltíð og oft einkenni um astma. Algengi astma
er einnig talsvert (um 5%) hvort sem miðað er
við uppsafnað algengi (cumulative prevalence)
eða algengi astma síðustu 12 mánuði (current
prevalence). Þó er mat okkar á algengi astma
líklega of lágt því búast má við, að meðal þeirra
sem útilokaðir voru frá metakólínprófi vegna
teppu eða auðreitni fyrir saltvatni (alls 13 þátt-
takendur) leynist einstaklingar með astma.
Hlutfallslega fáir voru meðhöndlaðir með
astmalyfjum (tafla IV). Nýleg íslensk rannsókn
á notendum astmalyfja leiddi í ljós að megin-
þorri þeirra voru börn eða gamalt fólk, en
astmalyfjum er hlutfallslega sjaldnar ávísað til
einstaklinga á aldrinum 20-44 ára (24). Einnig
er hugsanlegt að fólk á þessum aldri leiti
sjaldnar til lækna og greinist því síður með
astma. I öllu falli hefur notkun astmalyfja verið
lægri á íslandi en til dæmis í Svíþjóð, eða 40
dagskammtar á íbúa árið 1990 miðað við 53 í
Svíþjóð (23). Aftur á móti er hlutfallslega lítill
munur á algengi þeirra astmaeinkenna sem tal-
in eru í töflum II og III á milli sambærilegra
hópa á Norðurlöndunum (22,23). Og þegar
bornir voru saman einstaklingar á íslandi og í
Svíþjóð með sams konar öndunarfæraeinkenni
nota Svíar helmingi oftar astmalyf en íslend-
ingar (23). Ekki er ljóst hvers vegna. Hugsan-
lega eru einkennin meiri í Svíþjóð eða að ís-
lenskir læknar séu tregari til lyfjagjafar. Ekki
er umdeilt í dag að líta beri á astma sem bólgu-
sjúkdóm sem eigi að meðhöldla snemma með
bólgueyðandi lyfjum (25).
Fyrri rannsóknir á Norðurlöndum (1-3),
Englandi (4-6), Bandaríkjunum (7) og Asíu
(8, 9) gefa allar vísbendingar urn aukningu á
algengi astma að minnsta kosti meðal barna og
ungmenna. Hvað mest virðist þessi aukning
hafa orðið í Astralíu þar sem algengi astma
meðal fólks á aldrinum 18-55 ára hefur aukist
úr 9,0% í 16,3% á árunum 1981 til 1990 (26).
Ymsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna astma-
sjúklingum fjölgar og hefur verið spurt hvort
það geti verið vegna vaxandi ofnæmis. Að
minnsta kosti í Astralíu er það ekki svo, en þar
eru 40-50% þjóðarinnar með ofnæmi, hefur
tíðnin ekki farið vaxandi undanfarin áratug
(27). Aftur á móti fjölgar þeim innan hópsins
sem eru með ofnæmi er fá astma og/eða frjó-
kvef (27). Umhverfisþættir, svo sem reykingar
og önnur mengun, hafa verið nefndir til sög-
unnar en ólíklegt er talið að þeir skýri ofan-
greinda aukningu. Algengi astma virðist vera
minna á menguðustu svæðum Austur-Evrópu,
en á „hreinustu“ svæðum Evrópu og einnig