Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1997, Page 29

Læknablaðið - 15.04.1997, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 221 Þing Skurðlæknafélags íslands 11.-12. apríl 1997 Scandic Hótel Loftleiðum Ágrip erinda og veggspjalda E-l. Launeistaaðgerðir á Landspítalan- um 1970-1980 Drífa Freysdóttir, Guðmundur Bjarnason Frá Barnaspítala Hringsins Landspítalanum Tilgangur: Að kanna hvað einkennir drengi sem greinast með launeistu og árangur aðgerða á launeistum á Landspítalanum 1970-1980. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var aftur- skyggn. Sjúkraskrár drengja/karla sem gengust undir aðgerð vegna launeista voru yfirfarnar. Þrjú hundruð og áttatíu drengir/karlar fundust, fæddir 1924-1978. Athuguð voru aldur við greiningu, fæðingarþyngd, hvorum megin eistað var uppi, staðsetning eistans á leið niður í pung, tegund aðgerðar, fylgikvilla, enduraðgerðartíðni og meðfylgjandi galla. Niðurstöður: Meðalþyngd við fæðingu var 3506 g (staðalfrávik 734 g). Aldur við greiningu var 3,9 ár (staðalfrávik 3,2). Aldur við aðgerð var 8,35 ár (staðalfrávik 2,96). Eitt hundrað tuttugu og þrír drengir höfðu launeista vinstra megin, 187 höfðu launeista hægra megin og 70 höfðu laun- eistu báðum megin. Eistað/eistun voru færð niður hjá 364, eistað fjarlægt hjá sjö og fannst ekki hjá fjórum. Staðsetning eistans var í náraganginum hjá 195, uppi í kviðarholi hjá 36 en ektópískt hjá 120. Fylgikvillar voru fáir og einungis átta þörfn- uðust enduraðgerðar. Helmingur drengja/karla með launeista hafa einnig nárakviðslit, ýmist sömu megin eða hinum megin við launeistað. Aðrir kvillar voru sjaldgæfari. Ályktun: Töf á greiningu launeista hjá drengj- um er töluverð (í dag er ráðlögð aðgerð við tveggja til þriggja ára aldur) og greinast þeir 3,9 ára. Aðgerð er að meðaltali þó ekki gerð fyrr en rúmum fjórum árum eftir greiningu. Aðgerðin er einföld og örugg, fylgikvillar eru fáir og engir alvarlegir. Tíðni nárakviðslits hjá þessum hópi er mjög há og því nauðsynlegt að missa ekki af því við fyrstu aðgerð. E-2. Speglun þvagleiðara með mínískópi Arsœll Krístjánsson Frá Domus Medica Inngangur: Með tilkomu mínískópa á síðari árum hefur speglun þvagleiðarans (ureter) orðið mun auðveldari. Lítið þvermál mínískópsins (7F, 2,3 mm) hefur gert útvíkkun (orfice) þvagleiðar- ans nánast óþarfa. Hér verður gerð grein fyrir notkun mínískóps (Candela, Wolf) til greiningar og meðferðar. Efniviður og aðferðir: Hjá 40 sjúklingum var speglun á þvagleiðara gerð og reyndust 34 hafa stein. í fjórum tilvikum var steinn losaður, ýtt upp til nýrna oj> meðhöndlaður með höggbylgjutækni (ESWL). I 30 tilvikum var litarefnisleysir (Cand- ela MDL-2000) notaður við sundrun steina. Nítj- án steinar voru í neðsta hluta þvagleiðarans og 11 í miðhluta. Stærð steina vareftirfarandi: 0,5-l,0cm hjá 15 sjúklingum, 1,0-1,5 cm hjá 14 sjúklingum og yfir 1,5 cm hjá einum sjúklingi. Fimm sjúklingar höfðu tvo eða fleiri steina. Hjá þremur sjúkling- um var æxli greint og vefjasýni tekið. Hjá þremur sjúklingum var JJ-leggur sem hafði færst úr stað fjarlægður með hjálp mínískópsins. Niðurstöður: Meðallegutími á sjúkrahúsi var

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.