Læknablaðið - 15.04.1997, Side 32
224
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
barn með þessa sjúkdóma. Samspil erfðaþátta er
greinilega mikilvægt í þessum ferli og nota má
aðhvarfsgreiningarlíkön til að sundurgreina og
meta mikilvægi hinna ýmsu þátta í samspili við
aðra eiginleika eða utanaðkomandi áhrif.
E-7. Þriggja lyfja svæðisbundin innan-
bastsverkjameðferð eftir aðgerðir. Að-
ferðarfræði og gæðaeftirlit
Gísli Vigfússon, Oddur Fjalldal, Þorsteinn .SV.
Stefánsson
Frá svœfingadeild Landspítalans
Inngangur: Mikilvægi bættrar verkjameðferð-
arþjónustu eftir aðgerðir hefur orðið ljósari með
bættri menntun heilbrigðisstarfsfólks. Aukin
þekking á tilurð og eðli verkja kallar á nýjar að-
ferðir og endurmat gamalla leiða til bættrar
verkjameðferðar. Á síðustu árum hefur ný aðferð
við innanbasts (epidural) verkjameðferð rutt sér
til rúms. Hún byggir á bættri þekkingu á lyfjafræði
verkjalyfja og verkunarmynstri þeirra í líkaman-
um. í árslok 1995 var hafinn undirbúningur á
svæfingadeild Landspítalans að því að bæta
árangur verkjameðferðar eftir aðgerðir með
þriggja lyfja svæðisbundinni (segmental) innan-
bastsverkjameðferð. Meðferð þessi kallaði á
fræðslu, samvinnu og gæðaeftirlit á deildum.
Aðferð: Hjúkrunarstarfsfólki og læknum á
handlækningadeildum spítalans var kynnt hin
væntanlega verkjameðferð. Kynntar voru reglur
við meðferð verkja eftir aðgerð með innanbasts-
sídreypi og parasetamóli og áhætta samfara inn-
anbastsverkjameðferð, verkun og aukaverkun
lyfjanna. Kennd var greining og meðhöndlun
aukaverkana innanbastsdeyfinga. Haldið var
námskeið í notkun sérstakra verkjadæla. Haft var
samráð við lyfjafræðinga spítalans um lyfja-
íblöndun og sérfræðinga sýkladeilda um fyrning-
artíma lyfjablöndunnar. Lögð var sérstök áhersla
á eftirlit og skráningu. Hverjum sjúklingi fylgdi á
deild sérstakt eftirlitsblað, þar sem skráð voru á
fjögurra klukkustunda fresti lífsmörk sjúklings,
fylgikvillar, lyfjagjafir, hreyfimat og verkjamat í
hvfld og hreyfingu. Hjúkrunarfræðingar fengu
kennslu í verkjamati samkvæmt VAS skema.
Svæfingalæknir á vakt fylgdi meðferðinni eftir,
heimsótti sjúklinga tvisvar á sólarhring og var
tengiliður við starfsfólk legudeilda.
Ályktanir: Eins árs reynsla af þriggja lyfja inn-
anbastsverkjameðferð og parasetamóls eftir að-
gerðir sýnir verulega bættan árangur verkjameð-
ferðar á deildum svo og bætta andlega og líkam-
lega líðan sjúklinga. Samvinna svæfingadeildar og
legudeilda hefur aukist og batnað. Góð skráning
og eftirlit auðveldar mat á árangri og fylgikvillum
og um leið reglulegt endurmat á meðferðaráætlun
til bættrar þjónustu. Svæðisbundin innanbasts-
verkjameðferð er áhrifarík aðferð til að minnka
slæma verki eftir aðgerðir. Aðferð þessi er þó
ekki án áhættu, sem getur jafnvel í einstökum
tilfellum verið lífshættuleg. Pví er stöðug fræðsla
heilbrigðisstarfsfólks, gott eftirlit og skráning for-
senda góðs árangurs.
E-8. PCA. Sjúklingastýrð verkjameð-
ferð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri
Girisli Hirlekar, Sigríður Tryggvadóttir
Frá svœfinga- og gjörgœsludeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri
PCA er að ryðja sér til rúms á Islandi sem ein
aðaltæknin í verkjameðferð. Svæfingalæknar á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hafa notað
PCA í eitt ár og vilja segja frá reynslu sinni af því.
Eitt hundrað þrjátíu og þrír sjúklingar fengu
PCA frá mars 1996 til febrúar 1997. Deildaskipt-
ing var eftirfarandi.
Deild Fjöldi sjúklinga (%)
Kvensjúkdómadeild 92 (69)
Bæklunardeild 32 (24)
Barnadeild 5 (4)
Handlæknisdeild 4 (3)
Samtals 133 (100)
Reynslan af meðferðinni hefur verið afar góð.
Sjúklingar voru spurðir álits á PCA. Niður-
staðan var eftirfarandi.
Álit Fjöldi sjúklinga (%)
Mjög góð 37 (40)
Góð 44 (47)
Sæmileg 11 (12)
Léleg 1 (1)
Samtals 133 (100)
Notkun PCA mun greinilega fara vaxandi á
næstu árum á FSA.
E-9. Líðan ferlisjúklinga heima eftir
hnéliðspeglanir
Girish Hirlekar
Frá svœfingadeild og vöknun Fjórðungsjúkra-
hússins á Akureyri
Inngangur: Talsverð aukning hefur orðið á
ferliaðgerðum á undanförnum árum. Speglanir á
hnélið eru oftast gerðar sem ferliaðgerðir. Verkir