Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 34
226
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
við rannsóknir á sjúklingum með óútskýrðar
blæðingar frá meltingarvegi.
E-12. Sjaldgæf orsök kviðverkja hjá níu
ára stúlku. Sjúkratilfelli með umfjöllun
jón Hersir Elíasson, Stefán E. Matthíasson, Þröst-
ur Laxdal
Frá barna- og skurdlœkningadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur
Níu ára stúlka kom á bráðamóttöku með sólar-
hringssögu um kviðverki, uppköst og niðurgang.
Skoðun var þá sakleysisleg. Sólarhring eftir inn-
löng var ástand hennar versnandi og eymsli voru
þá til staðar yfir botnlangastað. Pess vegna fór
hún í skurðaðgerð. Þar kom í ljós pylsulaga fyrir-
ferð sem reyndist vera garnasmokkun (intussus-
ception). í toppnum var Meckels poki.
Við lýsum hér þessu sjúkratilfelli og lítum yfir
fræðigreinar um efnið.
E-13. Adventitial cystic degeneration í
lærslagæð. Sjaldgæft sjúkratilfelli á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
Haraldur Hauksson*, Þorgeir Þorgeirsson**
Frá *handlœkningadeild og **meinafrœðideild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
Adventitial cystic degeneration er sjaldgæf
ástæða þrengingar og lokunar æða án æðakölkun-
ar (atherosclerosis) og er næstum eingöngu þekkt
í hnésbótarslagæð (arteria poplitea). Orsök er
ekki þekkt þó ýmsar kenningar séu uppi. Um er
að ræða slímfyllt holrúm í vegg æðarinnar sem
geta valdið þrengingu og þess vegna blóðþurrðar-
helti (claudicatio intermittens). Sjúklingur er
gjarnan ungur maður sem ekki reykir og eru æðar
að öðru leyti eðlilegar. Yfir 200 tilfellum hefur nú
verið lýst í læknisfræðiritum. Arið 1987 fann jap-
anskur læknir (Shikawa) að 195 tilfellum hafði
verið lýst en þar af voru 28 staðsett í ytri mjaðm-
arslagæð og/eða -bláæð (arteria og/eða vena iliaca
externa) eða lærslagæð og/eða -bláæð (arteria og/
eða vena femoralis).
Lýst er 40 ára karlmanni sem stundaði íþróttir
og hafði vaxandi blóðþurrðarhelti í hægri fæti og
lá við lokun á lærslagæð samkvæmt æðamynda-
töku. í aðgerð kom í ljós að æðaveggurinn var
ummyndaður í stinnt blöðrukennt æxli (tumor).
Gert var hlutabrottnám á æðinni og sett innskots-
hjáveita (interpositions graft) úr PTFE gerviefni.
Sjúkdómsgreining var staðfest við meinafræði-
skoðun og sjúklingur er einkennalaus 11 mánuð-
um eftir aðgerð. Einnig er greint frá annars konar
meðferðarmöguleikum.
E-14. ígulgerlabólga í kviðarholi
Haraldur Hauksson*, Þorgeir Þorgeirsson**,
Nick Cariglia***, Sltree Datye*
Frá *handlœkningadeild, **meinafrœðideild og
***speglanadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri
Igulgerlabólga (actinomycosis) er langvinn
granulomatus sýking sem birtist aðallega með
þrenns konar hætti, það er sem sýking á hálsi/
andliti, í brjóstholi eða í kviðarholi. Þó þetta sé
sjaldgæfur og lúmskur sjúkdómur í kviðarholi er
mikilvægt að þekkja til hans og hafa hann með í
mismunagreiningu við til dæmis grun um æxli eða
langvarandi bólgusjúkdóma í kviði. Lækning get-
ur verið erfið, einkum ef um útbreidda kviðar-
holssýkingu er að ræða, því endurkoma sjúkdóms
er tíð ef ekki er auk skurðaðgerðar beitt réttri og
langvarandi sýklalyfjameðferð.
Arið 1990 var 50 ára karlmaður lagður inn á
FSA með mánaðarsögu um 10 kg þyngdartap og
kviðverki. Fyrir aðgerð bentu rannsóknir til að
hann gæti verið með Crohns sjúkdóm, eitlaæxli
(lymphoma) eða annan æxlisvöxt í eða við þver-
ristil. Framkvæmt var hlutabrottnám á þverristli
og smágirni. Greining fékkst ekki fyrr en PAD lá
fyrir. Eftir aðgerð fékk sjúklingur langvarandi
penicillínmeðferð, sem þó var nokkuð styttri og
annars konar en víða er mælt með. Sjúklingur er
einkennalaus sjö árum eftir aðgerð.
E-15. Blæðingar í efri hluta meltingar-
vegar: Uppgjör á Landspítalanum 1994
ívar Gunnarsson, Bjarni Þjóðleifsson, Margrét
Oddsdóttir, Jónas Magnússon
Frá handlœkningadeild Landspítalans, lyflœkn-
ingadeild Landspítalans, læknadeild HÍ
Afdrif einstaklinga með blæðingu frá efri hluta
meltingarvegar, sem leggjast inn á Landspítal-
ann, eru ekki kunn. Árið 1994 voru áhættuþættir
kannaðir framskyggnt, ennfremur var könnuð sú
meðferð sem beitt var og árangur.
Sjúklingar sem komu til speglunar vegna efri
blæðingar eða voru innlagðir vegna blæðingar
voru skráðir. Kannað var aldur, kyn, áhættuþætt-
ir, greiningaraðferðir, fyrri saga og meðferð. Alls
voru 125 sjúklingar skráðir, 66 karlar og 59 konur.
Meðalaldur var 64 ár (bil 23-93), hjá konum 70 ár
(bil 23-93) og körlum 58 ár (bil 27-85). Sextíu og
fimm sjúklingar voru með blóðug uppköst, 60
sortusaur (melena). Speglanir voru 114, ein rönt-
genrannsókn, 10 sjúklingar voru ekki speglaðir. í
114 speglunum greindust sjúklingar með 43
skeifugarnarsár, 31 magasár, tvö sár í maga og
skeifugörn, 13 vélindabólgur, átta Mallory Weiss,