Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1997, Page 71

Læknablaðið - 15.04.1997, Page 71
Fosamax (MSD, 940093) TÖFLUR, M 05 B A 04 R Hver tafla inniheldur: Alendronatum natríumsalt, samsvarandi Acidum alendronatum lOmg. Eiginleikar: Alendrónat er aminóbisfosfónat, sem hemur virkni beinæta (osteoclasta). Þegar alendrónat er gefið heldur beinmyndun áfram og efnið binst hýdroxýapatiti. Gefa þarf alendrónat stoðugt til að hemja virkni beinæta ó nýmynduðu yfirboröi beina. Alendrónat minnkar niðurbrot beina án beinna áhrifa á endurmótun beina og verka þvi gegn auknum hraða niðurbrots beina hjá konum eftir tiðahvörf. Beinmyndun verður meiri en beinaniðurbrot, sem leiðir til aukningar á beinmassa. Það bein, sem myndast þegar alendrónat er tekið, virðist eðlilegt að gerð og efnasamsetningu. Aðgengi er u.þ.b. 0,7%. Fæða og drykkir (þó ekki vatn) minnka aðgengi lyfsins. Pró- teinbinding lyfsins er um 78%. Ekkert bendir til þess að alendrónat sé umbrotið í líkamanum. U.þ.b. 50% af lyfinu skilst út i þvagi og litið eða ekkert í saur. Ábondingar: Lyfið skal aðeins nota við beinþynningu hjá konum eftir tiðahvörf. Frábendingar: Sjúkdómar í vélinda, sem seinka magatæmingu eins og þrengsli eða vélindislokakrampi. Vangeta til að standa eða sitja upprétt í a.m.k. 30 mínútur. Ofnæmi fyrir einhverju af innihalds- efnum lyfsins. Lágt kalsíum i blóði. Truflanir á kalsíum- og steinefna- efnaskiptum. Medganga og brjóstagjöf: Lyfið hefur hvorki verið rannsakað hjá þunguðum konum né konum með börn á brjósti, en lyfið er ekki ætlað konum á barneignaaldri. Varúð: Fosamax getur eins og önnur bífosfónöt valdið staðbundinni ertingu á slimhimnu í efri hluta meltingarfæranna. Aukaverkanir í vélinda, eins og vélindabólga, vélindasar og fleiður hafa verið skráð- ar hjá sjúklingum, sem hafa verið meðhöndlaðir með Fosamax. í nokkrum tilfellum hafa þær verið alvarlegar og þörf verið á sjúkra- húsinnlögn. Þess vegna á að fylgjast með sérhverju merki eða ein- kennum, sem benda til hugsanlegra áhrifa á vélinda, og sjúklingarnir skulu fá leiðbeiningar um að hætta meðferð með Fosamax, og leita læknis, ef þeir fá kyngingartregðu, verk við kyngingu, verk aftan brjóstbeins eða versnun á brjóstsviða. Hættan á að fá alvarlegar aukaverkanir í vélinda er meiri hjá sjúklingum, sem taka ekki Fosa- tnax samkvæmt fyrirmælum. Mjög mikilvægt er, að sjúklingum séu gefnar fullkomnar upplýsingar um skömmtun og að þeir skilji þær (sjá Skammtastærðir handa fullorðunum). Sjúklingarnir skulu upp- lýstir um, að ef þeir fylgja ekki leiðbeiningum, sé hætta á vandamál- um i vélinda meiri. Vegna ertandi áhrifa Fosamax á slímhimnu efri meltingarvegar og möguleika á versnun sjúkdóms, sem er til staðar, á að sýna varkárni, þegar lyfið er gefið sjúklingum með kvilla í efri hluta meltingarvegar, eins og kyngingartregðu, sjúkdóma í vélinda, magabólgu, skeifugarnarbólga eða magasar. Ekki er mælt með Fosamax handa sjúklingum með kreatínínklerans <35 ml/mín (sjá Skammtastæröir). Fosamax hefur ekki verið rannsakað hjá börnum og á þvi ekki að gefa þeim það. Lágt kalsíum i blóði á að meðhöndla áður en meðferð með Fosamax er hafin (sjá Frábendingar). Aðrar truflanir á steinefnaefnaskiptum (eins og t.d. D-vitamin skortur) á að meðhöndla vel. Aukaverkanir: Lyfið þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir hafa oftast verið vægar og skammvinnar og er venjulega ekki þörf á að hætta meðferð vegna þeirra. í tveimur stórum klíniskum rannsóknum sem stóðu í 3 ár og voru nánast eins í uppsetningu, þoldist Fosamax 10 mg/dag og sýndarlyf sambærilega. Algengar (>1 %): Meltingarlæri: Kviðverkir, hægðatregða, niðurgangur, kyngingar- tregða, uppþemba, bólga eða sár í vélinda, ógleði, uppköst, sár i munni og koki. Stodkerfi: Verkir í vöðvum, liðum og beinum Annad: Höfuðverkur. Skammvinn lækkun á kalsium i sermi. Sjaldgæfar (0.1-1%): Húd: Útbrot, hörundsroði, ofnæmisbjúgur, ofsakláði. Auk þessara aukaverkana eru eftirfarandi aukaverkanir taldar af rannsóknarlæknum sem mögulega, líklega eda örugglega tengdar lyfinu hjá 11% sjúklinga, sem medhöndladir voru med Fosamax 10 'ng/dag og með meiri tidni en hjá sjúklingum sem fengu sýndarlyf: vödvaverkir (Fosamax 4,1% vs sýndarlyf 2,5%), hægdatregda (3,1% vs 1,8%), nidurgangur (3,1% vs 1,8%), uppþemba (2.6% vs 0,5%) og böfudverkur (2,6% vs 1,5%). Sést hafa maga- eda skeifugarnarsár, sem sum voru alvarleg og með fylgikvillum, þrátt fyrir að orsaka- samband hafi ekki verið staðfest. I klíniskum rannsóknum hefur sést Qinkennalaus. væg skammvinn lækkun á kalsium og fosfati i sermi hjá 18% og 10% sjúklinga, sem tóku Fosamax á móti 12% og 3% sem tóku sýndarlyf. Milliverkanin Fosamax á ekki að gefa samtimis kalsiumbætiefnum, sýrubindandi lyfjum og öðrum lyfjum til inntöku, þar sem þau geta haft áhrif á frásog af alendrónati. Þess vegna á sjúklingurinn að bíða ' a.m.k. hálfa klukkustund eftir inntöku á Fosamax áður en önnur lyf efu tekin inn. Frásog af bisfosfónötum minnkar mikið þegar fæðu er neytt samtimis inntöku þeirra. °fskömmtun: Engar sérstakar upplýsingar liggja fyrir um meðferð við ofskömmtun alendrónats. Aukaverkanir frá meltingarfærum svo sem meltingaróþægindi, brjóstsviði, bólgur i vélinda, magabólgur eða sár gætu komið fram vegna ofskömmtunar. Reyna má gjöf mjólkur eða sýrubindandi lyfja til að binda alendrónat. Skammtastærðir handa fullorðnum: 10 mg einu sinni á dag. Lyfið skal taka a.m.k. 1/2 klst. áður en matar eða drykkjar er fyrst neytt að ^orgni. þar sem sumir drykkir (þ.m.t. ölkelduvatn), matur og sum M geta liklega minnkað frásog á alendrónati (sjá milliverkanir). Töflurnar eru teknar meö glasi af vatni eingöngu (sjá milliverkanir). Mikilvægt er, að sjúklingar með beinþynningu fái nægjanlegt kalsium i fæði. Engar skammtabreytingar eru nauðsynlegar fyrir aldraða né fyrir sjúklinga með væga skerðingu á nýrnastarfsemi (kreatíninklerans 35-65 ml/min). Ekki er ráðlegt að gefa lyfið *juklingum meö alvarlega truflun á nýrnastarfsemi (kreatínínklerans ml/min.). ^kanimtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. pakkningar og werð: 28 stk. (þynnupakkað) 5059 kr. (jan '97) 98 stk. (þynnupakkað) 15092 kr. (jan '97) FOSAMAX Rannsóknir sýna minnkaða hættu á öllurn tegundum beinbrota vegna beinþynningar -FIT (Fracture InterventionTrial) er umfangsmesta rannsókn sinnar tegundar, þar sem aðaltilgangur rannsóknarinnar var að sýna frammá minnkaða hættu á beinbrotum hjá konum sem hættar eru að hafa tíðir. Niðurstöður hjá 2027 sjúklingum liggja nú fyrir: Sjúklingahópur • 2027 sjúklingar • Aldur 55-80 ár • Tíðahvörf (> 2 ár) • Lítil beinþéttni í mjöðm (0,68 g/cm)* Aðferð • Slembiúrtaki gefið Fosamax eða sýndarlyf##* • Fylgt eftir í 3 ár Endapunktar • Beinbrot meðan á rannsókn stendur MERCK SHARP & DOHME FARMAS/A ehf.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.