Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 10
278
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Niðurstöður: Eitthundrað og fimmtíu sjúk-
lingar voru meðhöndlaðir með sýklalyfjum í
janúar og febrúar 1996. Hlutfall ráðlegginga
um breytingu á meðferð var 74% á deild 12-G,
65% á 11-E en 33% og 32% á 11-A og 11-B.
Fylgt var 80% ráðlegginga á deild 11-E en 93-
100% á öðrum deildum. Algengustu ástæður
ráðlegginga um breytingar á sýklalyfjameðferð
voru: stöðvun meðferðar (33%), lækkun
skammta (31%) og breytingar á meðferð úr
stungulyfi í meðferð um munn (19%). Lág-
markssparnaður var metinn 70-210.000 krónur
á mánuði ef reiknað var með að ráðleggingar
hefðu áhrif í einn til þrjá daga. I mars voru 4%
varnandi meðferðar fyrir skurðaðgerðir á deild
12-G í samræmi við samþykktar leiðbeiningar.
Alyktanir: Niðurstöður okkar styðja nauð-
syn þess að bæta sýklalyfjameðferð á Landspít-
alanum. Sýklalyfjaeftirliti var vel tekið og ráð-
leggingum fylgt í 80-100% tilvika. Eftirlit með
sýklalyfjanotkun á Landspítalanum öllum gæti
leitt til sparnaðar sem næmi allt að 30-36%
sýklalyfjakostnaðar.
Inngangur
Mikil umræða fer fram um heilbrigðiskerf-
ið, ekki síst um vaxandi kostnað sem fylgir því,
einkum rekstri stóru sjúkrahúsanna. Hluti þessa
kostnaðar felst í lyfjanotkun. Fjórðungur til
þriðjungur allra sjúklinga á sjúkrahúsum í þró-
uðum löndum er meðhöndlaður með sýklalyfj-
um (1,2). Á flestum sjúkrahúsum nemur kostn-
aður vegna sýklalyfjanotkunar 20-50% af
heildarlyfjakostnaði (3—5) en á Landspítalan-
um var hlutfallið 12-14% á árunum 1994—
1996. Sem dæmi um kostnað við notkun sýkla-
lyfja á sjúkrahúsum má nefna að á Landspítal-
anum var varið um 50 milljónum króna til
kaupa á sýklalyfjum árið 1996. Könnun á
Borgarspítalanum (Sjúkrahúsi Reykjavíkur)
haustið 1994 leiddi í ljós að í allt að 50% til-
fella þar sem sýklalyljum var beitt var notkun á
einhvern hátt ábótavant (Anna Þórisdóttir,
óbirtar niðurstöður fengnar í janúar 1997).
Rannsókn á Landspítalanum 1994 sýndi að um
55% ávísana á sýklalyf voru annað hvort rang-
ar eða þeim var ábótavant (6). Erlendar rann-
sóknir hafa sýnt svipaðar niðurstöður hvort
heldur um var að ræða sjúkrahús, göngudeildir
eða langtíma dvalarstofnanir (7). Einnig hafa
erlendar rannsóknir leitt í ljós að unnt er að
spara umtalsverðar fjárhæðir með virku sýkla-
lyfjaeftirliti (1,2,8). Því var líklegt að bæta
mætti sýklalyfjanotkun á stóru sjúkrahúsunum
í Reykjavík.
Síðla sumars 1995 var hafið sýklalyfjaeftirlit
á Landspítalanum. Meginmarkmið með eftirlit-
inu eru bætt sýklalyfjameðferð, lækkun kostn-
aðar vegna sýklalyfjanotkunar og síðast en
ekki síst að minnka líkur á ónæmismyndun
meðal sýkla.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
framkvæmd og kostnaðaráhrif sýklalyfjaeftir-
lits á nokkrum deildum Landspítalans um
tveggja mánaða skeið. Áhersla var lögð á að
meta sparnað í kjölfar ráðlegginga um breyt-
ingar á sýklalyfjameðferð. Einnig var könnuð
notkun varnandi sýklalyfjameðferðar í einn
mánuð á einni skurðdeild spítalans.
Efniviður og aðferðir
Tímabil: Athugunin náði yfir þrjá mánuði
árið 1996. Áhrif gæðaeftirlits með sýklalyfja-
ávísunum voru könnuð í janúar og febrúar.
Notkun varnandi sýklalyfjameðferðar var at-
huguð í mars.
Deildir: Eftirliti var beitt á fjórum deildum,
12-G (almenn handlækningadeild), 11-A (al-
menn lyflækningadeild), 11-B (fimm daga lyf-
lækningadeild) og deild 11-E (blóðfræðihluta).
Framkvœmd gœðaeftirlits með sýklalyfja-
ávísunum: Upplýsingum um alla sjúklinga á
sýklalyfjum á ofangreindum deildum var safn-
að á sérstök eyðublöð, sem sérfræðingur í smit-
sjúkdómum og klínískur lyfjafræðingur viðuðu
að sér daglega. Farið var yfir helstu þætti
sýklalyfjameðferðarinnar síðari hluta dags, oft
með læknum viðkomandi sjúklinga. Væri talin
ástæða til breytinga á meðferðinni var þeim
upplýsingum miðlað til lækna sjúklingsins, oft-
ast munnlega en einnig skriflega á sérstökum
eyðublöðum. Fjöldi sjúklinga var skráður svo
og ráðleggingar um breytingar og hvort þeim
var fylgt. Einnig var eðli breytingartillagna
skráð, það er hver var meginástæða tillögu um
breytingu á meðferð. Ef ráðleggingu um breyt-
ingu á meðferð var fylgt, var mismunur á
kostnaði við fyrri meðferð og við nýju með-
ferðina reiknaður fyrir hvern sólarhring. Slíkar
breytingar voru ávallt gerðar síðla dags þegar
sýnt þótti að ekki yrðu gerðar frekari breyting-
ar þann dag á sýklalyfjameðferð.
Breyting úr stungulyfsmeðferð í meðferð
með töflum: Notuð voru ákveðin skilmerki
(fullnægja þurfti fjórum af fimm) þegar lagðar
voru fram ráðleggingar um að skipta úr með-