Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 323 Þorvaldur Veigar Guðmundsson „Niðurskurður bitnar alltaf á sjúklingum“ Fyrir skömmu kynnti stjórn Ríkisspítala hugmyndir að því hvernig brugðist yrði við minni fjárframlögum úr ríkissjóði. A fundinum var meðal annars boðaður ákveðinn niðurskurður á starfsemi á Landspítalanum. Þorvaldur Veigar Guðmunds- son lækningaforstjóri Landspít- alans sagði í samtali við Lækna- blaðið að á fjárlögum yfirstand- andi árs væru framlög til spítal- ans 487 milljónum minni en ver- ið hefði á síðasta ári. Það lægi í augum uppi að ekki væri unnt að halda starfsemi á spítalanum óbreyttri að gefnum þessum for- sendum. Þorvaldur Veigar sagði þetta pólitískar ákvarðanir sem lægju fyrir og stjórn spítalans þyrfti að leitast við að fara eftir þeim. Skilaboðin frá Alþingi væru alveg skýr: Landspítalinn ætti að skera niður þá starfsemi er þar fer fram. En hvar er fyrirhugað að beita niðurskurðarhnífnum? Þorvaldur Veigar lýsti þeim hug- myndum sem fram hafa komið. „Það er alveg ljóst að við munum aldrei ná því að spara áætlaðar 487 milljónir, en við höfum lagt fram áætlanir um það að ná ef til vill 200 milljóna sparnaði og auknum tekjum. Reynt verður að ná þessu fram með aðgerðum á ýmsum svið- um. Lagt er til að ákveðin þjónusta sem Landspítalinn annast nú verði færð annað. Hér er einkum um að ræða þjónustu sem bráða- spítali á ekki að þurfa að sinna heldur Tryggingastofnun og sveitarfélögin í sumum tilvik- um. í sjálfu sér mun kostnaður- inn sem fellur á hið opinbera ekkert minnka eða hverfa heldur einungis færast til innan ríkis- bókhaldsins, verða færður sem hluti hins félagslega pakka í stað heilbrigðismála. Ekki verður ráðið í ýmsar stöður sem losna, jafnhliða verður reynt að hagræða og fella saman ákveðna starfsemi eftir því sem unnt reynist. Leiga á húsnæði til starfs- manna verður hækkuð og eins hlutdeild starfsmanna í fæðis- kostnaði. Hert verður á innheimtu hluta sjúklinga í greiðslu fyrir þjón- ustu á göngudeildum. Farið verður fram á greiðslu frá ríkinu sem afturvirka leið- réttingu í sambandi við til- færslur á starfsmönnum og fleira sem við teljum að ekki hafi verið útreiknað á réttan hátt. Valaðgerðum á skurðstofu verður fækkað um 15 á viku, það þýðir óhjákvæmilega leng- ingu biðlista. Síðast en ekki síst er lagt til að hjartaþræðingum og kransæða- útvíkkunum verði fækkað um 10% sem er álíka mikið og öðr- um valaðgerðum." - Telur þú þennan niðurskurð alvarlegan fyrir starfsemi spítal- ans? „Auðvitað bitnar niðurskurður og sparnaðar alltaf á sjúklingum og það er ógerlegt að segja til um það hvort eða hvenær slíkur niðurskurður getur valdið slysi. Það er því ekki óeðlilegt að fé- lög sjúklinga taki fyrirhuguðum niðurskurði illa, þar má nefna til dæmis félög hjartasjúklinga og Geðhjálp, en það er tilgangslítið að snúa sér að stjórnendum spít- alans, þar er ekki meira fé að hafa nema taka það af öðrum hópum sjúklinga, þau ættu í raun að beina spjótum sínum að stjórnmálamönnunum, þeim sem ákvarðanirnar taka og ráð því fjármagni sem fer til lækn- inga. En varðandi hjartaþræðingar og kransæðaútvíkkanir er rétt að hafa í huga að við erum nú með- al fremstu þjóða í heimi bæði í árangri og fjölda aðgerða á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.