Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 18
286
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Tafla II. Mælitölur Öxfirðinga samanborið við landsmeðaltal.
Karlar Konur
Öxarfjöröur Landið* Öxarfjöröur LandiÖ*
Fjöldi 69 693 57 731
Hæö 179,0 179,1 164,9 165,8
Þyngd 84,7 86,0 77,1 73,0
Þyngdarstuðull 26,5 26,8 28,3 26,6
Kólesteról 6,0 6,2 5,8 6,1
Slagbilsþrýstingur 124 127 126 123
Hlébilsþrýstingur 72 81 76 76
Fteykja** 41% 28% 23% 30%
* Reykjavík, Árnessýsla, MONICA 1993 (18)
** (20)
munurinn var ekki marktækur (p=0,13). Þegar
rannsóknin hófst reyktu 28 karlar (41%) og 13
konur (23%) eðá samtals 41 þatttakandi (33%).
Reykingasaga og núverandi reykingar eftir
magni sjást á mynd 1.
Aðeins tveir þátttakendur töldu sig neyta
áfengis oft/mikið, 34 af og til en 90 sjaldan eða
aldrei. Fjörutíu þátttakendur sögðu líðan sína
mjög góða, 83 sæmilega en þrír slæma, en þeg-
Fjöldi
90
pakkaár pakkaár dag á dag
Reykingasaga Núverandi reykingar
Mynd 1. Reykingar Öxfirðinga í aldurshópnum 35 til 65 ára.
ar spurt var sérstaklega um streitu sögðust 33
sjaldan vera spenntir 74 stundum og 19 oft.
Tuttugu og sjö hugsa daglega um hollt fæðuval,
17 „oft“ en 82 aðeins „stundum". I ofangreind-
um fjórum atriðum var ekki marktækur munur
á milli hópa innbyrðis.
Líkamsþjálfun kemur fram á töflu III og þar
sker hópur 5 sig verulega úr, þar sem 86% í
þeim hópi hreyfa sig reglulega en að meðaltali
57% í hinum hópunum.
Varðandi ættarsögu var ekki munur á milli
hópa, en samtals átti 21 þátttakandi fyrstu
gráðu ættingja sem hafði fengið slagæðasjúk-
dóm fyrir 50 ára aldur, 41 á milli 50 og 70 ára
en 64 höfðu ekki ættarsögu um þessa sjúkdóma
fyrir 70 ára aldur.
Níu þátttakendur voru á blóðþrýstingslækk-
andi lyfjameðferð við upphaf rannsóknarinnar
og fjórir í viðbót fundust með háþrýsting og
voru settir á lyfjameðferð á rannsóknartímabil-
inu. Algengi háþrýstings er því um 10% í rann-
sóknarhópnum.
Tafla IV sýnir breytingu á meðalþyngd á
rannsóknartímanum eftir hópum og samsvar-
andi breytingar á kólesteróli.
í heild léttust karlarnir um 0,6 kg (p=0,3) og
konurnar um 1,3 kg (p=0,06) að meðaltali á
tímabilinu, breytingin er marktæk ef bæði kyn-
in eru tekin saman (p=0,04).
Meðalkólesteról karla lækkaði samsvarandi
úr 6,4 í 5,9 eða um 0,5 mmól/1 (p=0,015) og
kvenna úr 6,4 í 5,8 eða um 0,6 mmól/1
(p=0,002) sem er marktækur munur. Ef bæði
kynin voru tekin saman var breytingin 0,6
mmól/l (p=0,0001).
A myndum 2 og 3 sjást breytingar á hreyf-
ingu og mataræði eftir hópum.
A rannsóknartímanum hætti einn að reykja
en þrír byrjuðu aftur. Meðalslagbilsþrýstingur
karla hækkaði á tímabilinu úr 128 í 130 (p=0,6)
og kvenna úr 128 í 131 (p=0,4). Hlébilsþrýst-
ingur karla var óbreyttur 81 en hjá konum
hækkaði hann úr 78 í 81 (p=0,13). Engin þess-
ara breytinga er tölfræðilega ntarktæk og ekki
heldur breytingar í einstökum hópum.
A töflu V eru breytingar í hópum 1, 2 og 4
bornar saman við hóp 3. Marktækur munur var
Tafla III. Líkamsþjálfun meira en 20 mínútur í senn.
Hópur Sjaldan/aldrei (%) 1-2svar i viku (%) 3svar í viku eöa oftar (%) Alls
1, 2, 3 og 4 36 (43) 40 (48) 8 0) 84
5 6 (14) 27 (64) 9 (22) 42
Samtals 42 (33) 67 (53) 17 (14) 126