Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 74
338
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
með langvinna sjúkdóma í
minna mæli (5), ber ekki að for-
dæma það heldur ræða við sjúk-
linginn um líkur eða skort á lík-
um fyrir því að slík meðferð hafi
áhrif. Að sjálfsögðu ber læknin-
um skylda til að vara sjúklinginn
við ef hann telur skottulækning-
una hættulega eða að hún muni
seinka bata. Grundvallarreglan
er að gefa sér tíma til að ræða og
fræða.
Mér hefur orðið tíðrætt um
það hversvegna hinn upplýsti
nútímamaður leitar til skottu-
lækna í þeim mæli sem raun ber
vitni. Sumir vilja kenna post-
modernistunum um (4) Þeir boði
mönnum þá kenningu að efast
um öll gildi og stuðli þannig að
upplausn í þjóðfélaginu. Mér
finnst sú skýring nokkuð lang-
sótt en hugsanlega gæti sú andúð
sem virðist ríkja á vísindum al-
mennt og þar á meðal læknavís-
indunum átt einhvern þátt í að
gera menn fráhverfa þeim eða
jafnvel fjandsamlega, en undir
þá andúð kynda margir frönruðir
skottulækninga. Ég held að við
verðum að beina sjónum okkar
að læknunum sem, þrátt fyrir
mikla sigra læknavísindanna,
hafa gefið almenningi óraunhæf-
ar vonir um árangur. Það hefur
ýtt undir þá skoðun að við eigum
rétt á því að lífið sé verkjalaus
dans á rósum. I þessu sambandi
má benda á markmiðið um heil-
brigði fyrir alla árið 2000. Fjöl-
miðlunin hefur einnig átt sinn
þátt í því að stuðla að þessari
lífsskoðun með því að leggja
áherslu á firrtan veruleika og svo
er það blessað fjármagnið. I
skottulækningum og alls kyns
skottulyfjum er mikið fjármagn,
hugsanlega álíka eða meira en í
fýkniefnum. Þann þátt megum
við aldrei vanmeta.
Sá sem hyggst leita til skottu-
læknis, eða kaupa skottulyf ætti
að spyrja sjálfan sig eftirfarandi
spurninga:
Getur skottulækningin verið
mér hættuleg og þá hvernig?
Lofar skottulæknirinn mér
fullum bata, hugsanlega á öllum
mínum kvillum? Slíkar fullyrð-
ingar eiga að kveikja á hættuljós-
um.
Liggja fræðilegar rannsóknir
til grundvallar lækningunni og
þá hverjar?
Hvað kostar lækningin?
Sé heilbrigða skynsemin, sem
okkur er öllum gefin í mismun-
andi mæli þó, í vafa eftir að hafa
svarað spurningunum er það mitt
ráð að fara á næstu heilsugæslu-
stöð og ræða við gamla góða
heimilislækninn áður en lengra
er haldið. Það sparar að minnsta
kosti peninga.
HEIMILDIR
1. Egils saga Skallagrímssonar.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
2. Jarvis WT. Quackery: a national
scandal. Clin Chem 1992; 38:
1573-84.
3. Obirtar upplýsingar frá Holl-
ustuvernd ríkisins.
4. Sampson W. Antiscience trends
in the rise of the “alternative
medicine” movement. Ann NY
Acad Sci 1996; 775: 188-96.
5. Mar LA, McSimmis S. Alternati-
ve therapies 1990: an overview.
Viðauki
Helstu hugtök skottulækninga ásamt þýðingum
Valkostur Alternative
Ohefðbundinn Unorthodox
Ovenjulegur Unconventional
Viðbótar Complementary
Heilstæður Holistic
Sameindasamhæfður Orthomolecular
Smáskammtalækningar Grasalækningar Handayfirlagning Handan lækning Reikun Homeopatia
Austræn læknisfræði, kínversk, indversk
Fyrirmyndarbreyting
Öldungadeild LÍ
Muniö Viöeyjarferöina laugardaginn 9. maí.
Stjórnin