Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 78
342
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Gildar: Þær byggist á því að
farið hafi verið í gegnum niður-
stöður vísindarannsókna um efn-
ið og einnig að til sé staðar
klínísk og praktísk sérþekking.
Areiðanlegar: Tveir hópar
sérfræðinga á viðkomandi sviði
mundu búa til sömu verklags-
reglur og mismunandi hópar
lækna mundu nota verklagsregl-
urnar endurtekið á sama hátt við
sömu klínísku aðstæður.
Faglega viðeigandi og not-
hæfar: Verklagsreglurnar séu
skrifaðar út frá sjónarhóli við-
komandi hóps lækna (sérgrein-
ar). Auðvelt sé að nota þær í dag-
legu starfi.
Alhliða og sértækar: Verk-
lagsreglurnar hafi í huga sérstaka
sjúklingahópa og aðstæður þegar
litið er til frammistöðu læknis-
ins. Þær inniberi alla viðeigandi
þætti.
Sveigjanlegar: Þær innihaldi
og nefni hugsanlegar undanþág-
ur og rúm sé til að nota klíníska
dómgreind, einstaklingsmiðaða
meðferð og hafðar séu í huga
ákveðnar aðstæður á vinnustað
læknisins.
Á skýru og ótvíræðu máli:
Þær séu settar fram á rökréttan
og skipulegan máta. Notað sé
skýrt mál og nákvæmt orðalag.
Fræðandi: Form og orðalag
verklagsreglna tengist daglegu
starfi. Þær innihaldi mjög sér-
tækar ráðleggingar, en leggi þó
áherslu á aðalatriði. Það sé auð-
velt að nota þær við kennslu.
Aðlaðandi: Útlit veki áhuga
og notuð séu stutt ágrip.
Hvernig á að þróa
verklagsreglur?
Um er að ræða tvenns konar
nálganir við að þróa verklags-
reglur.
Ómiðstýrð nálgun: Hópur
lækna á ákveðnu svæði, hópstarf
lækna eða læknar á heilsugæslu-
stöð búa til verklagsreglur á
grundvelli sérþekkingar og
reynslu, sem tiltæk er og reyna
að komast að samkomulagi með
hópumræðu. Ef nauðsyn ber til
eru niðurstöður vísindarann-
sókna skoðaðar og sérfræðingar
kallaðir til. Einnig geta aðrir fag-
aðilar úr hópi heilbrigðisstarfs-
manna verið ráðgefandi. Kostur-
inn við þessa nálgun er að hún er
fræðandi fyrir þátttakendur, hún
eykur ábyrgðartilfinningu þeirra
og þeir finni að þetta sé þeirra
mál og um leið aukast líkindin á
að þessu sé vel tekið. Ókosturinn
við þessa nálgun er að hún getur
verið of erfið fyrir hinn venju-
lega lækni, sem skortir nauðsyn-
lega hæfni og sérþekkingu.
Miðstýrð nálgun: Hópur
lækna með viðurkennda sér-
þekkingu á viðkomandi efni þró-
ar verklagsreglur með því að
rýna ítarlega í vísindarannsóknir
og klíníska sérþekkingu. Þetta
getur átt sér stað í formi skipu-
lagðra samráðsfunda. Kosturinn
við miðstýrða nálgun er vísinda-
legur grunnur og viðurkenning á
sérþekkingu hópsins, sem býr til
verklagsreglurnar. Ókostur getur
verið að þeir sem eiga að nota
verklagsreglurnar hafni þeim á
þeirri forsendu að þeir hafi ekki
verið hafðir með í ráðum við
þróun þeirra.
Samþáttun á miðstýrðum og
ómiðstýrðum verklagsreglum
tryggir líklega best að hægt sé að
koma þeim í notkun á árangurs-
ríkan máta.
Ýmsar aðferðir er hægt að
nota við gerð verklagsreglna.
Þær helstu eru:
Lands- eða héraðsbundnir
samráðsfundir: Á fjölmennum
fundi fulltrúa mismunandi hópa
eru kynnt drög vinnuhóps um
efnið. Tilgangur fundarins er að
fá athugasemdir og leita samráðs
um verklagsreglurnar.
Hópur sérfræðinga: Vinnu-
hópur sérfræðinga á sértæku
sviði hittist reglulega. Þeir reyna
að þróa verklagsreglur og leitast
við að komast að samkomulagi
með því að rýna í niðurstöður
vísindarannsókna og með hóp-
umræðu. Þessari vinnu er hægt
að fylgja eftir með samráðs-
fundi.
Rýni í niðurstöður vísinda-
rannsókna: Þessi aðferð saman-
stendur af kerfisbundinni söfnun
upplýsinga og mati á vísinda-
rannsóknum á ákveðnu sviði til
að safna í sarpinn við gerð verk-
lagsreglna.
Gæðahópar - staðbundnir
samráðshópar: Hópur starfandi
lækna reynir að ná samráði um
verklagsreglur með skipulegri
umræðu og því að skiptast á
reynslu viðkomandi, niðurstöðu
rýni í vísindarannsóknir og að
leita ráðgjafar sérfræðinga.
Delphi aðferð: Þetta er skrif-
leg, nafnlaus (anonym) aðferð,
þar sem hópur lækna gefur álit
sitt á vissum verklagsreglum
með rökum með og á móti. Þetta
er gert á spurningablaði. Niður-
stöður svörunar fara aftur til
nefndarinnar og álit þeirra á
breyttum verklagsreglum er
fengið. I sumum tilvikum reynir
nefndin að komast að samkomu-
lagi.
Prófun á hentugleika verk-
lagsreglna: Farið er yfir verk-
lagsreglurnar af læknum eða
öðrum heilbrigðisstarfsmönnum
eða þær eru notaðir til reynslu í
daglegu starfi til að prófa hent-
ugleika og til að koma auga á
hvað hindri notkun þeirra.
Óháð heimilun á notkun
(independent authorization):
Verklagsreglurnar eru metnar af
óháðri nefnd eða ráði, sem skoð-
ar þróunaraðferð og árangur og
gefur opinbert samþykki sitt.
Niðurlag
Gerð og dreifing verklags-
reglna og skilmerki fyrir góða
læknisþjónustu eru hornsteinar
gæðaþróunar. Slík starfsemi á
sér nú stað meðal flestra ná-
grannaþjóða okkar. Oftast er
starfið unnið í litlum hópum sér-
fræðinga á viðkomandi sviði og
byggja þeir vinnu sína á rýni í
niðurstöður vísindarannsókna og
með því að skiptast á reynslu
sinni. Hjá lítilli þjóð eins Islend-
ingum verður ekki nema að litlu
leyti hægt að þróa verklagsreglur