Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
331
Fréttir frá Nesstofusafni
Líkan: Nesstofa, Lyfjafræðisafnið og fyrir-
hugað safnhús lækningaminjasafnsins,
fremst á myndinni.
Bygging safnhúss fyrir Nes-
stofusafn hefur lengi verið til um-
ræðu án þess þó að af fram-
kvæmdum hafi orðið. Á síðasta
ári var stigið mikilvægt skref í
þessu máli. í árslok 1996 var
safninu úthlutaður byggingarreit-
ur fyrir húsið norðanvert við Nes-
stofu á Seltjarnarnesi. I framhaldi
af því ákvað byggingarnefnd'
safnsins í samvinnu við Arki-
tektafélag íslands að efna til lok-
aðrar samkeppni um hönnun nýja
safnhússins. Að loknum nauðsyn-
legum undirbúningi var auglýst
forval vegna samkeppninnar.
Mikill áhugi var meðal arkitekta á
verkefninu. Þrjátíu og tveir aðilar
lýstu sig viljuga að taka þátt.
Byggingarnefndin ákvað að
bjóða fjórum aðilum þátttöku í
keppninni. Árangur af samkeppn-
inni var mjög góður og tillögum-
ar uppfylltu allar þær kröfur sem
gerðar voru. Niðurstaða dóm-
nefndar var engu að síður ein-
róma. Tillaga þeirra Sólveigar
Berg Björnsdóttur og Ásdísar H.
Ágústsdóttur þótti öðmm tillög-
um betri og varð hún því fyrir
valinu.
I umsögn dómnefndar um til-
löguna segir meðal annars: Tengsl
byggingarinnar við núverandi
hús og land er sérstaklega frum-
legt og hugvitsamlegt. Byggingin
er stílhrein og gott framlag nú-
tíma arkitektúrs sem hluti af
mannvirkjum staðarins. Hún er
samsett af tveimur formum, ein-
faldur rétthyrningur stendur sem
útvörður að útivistarsvœðinu
annars vegar og ávalur, Ijós sal-
urinn ásamt anddyri snýr að hinu
manngerða umhverfi hins vegar.
Tilraun höfunda að tengja útivist-
arsvœði inn á þak byggingarinn-
ar og um leið draga úr áhrifum
hennar af hlaði Nes-
stofu er látlaus og
sannfœrandi, auk
þess sem þetta gefur
byggingunni aukið
vœgi í umhvetfinu, án
þess þó að draga úr
mikilvœgi þessa nýja
húss.
Urslit í samkeppn-
inni voru tilkynnt við
hátíðlega athöfn
anddyri Þjóðminja-
safns Islands 15.
ágúst að viðstöddum
menntamálaráðherra
Birni Bjamasyni. Við
sama tækifæri var
opnuð sýning á tillög-
unum sem bárust í
samkeppnina og stóð hún til mán-
aðamóta ágúst/september.
I framhaldi af samkeppninni
var gengið frá samningi við þær
Ásdísi og Sólveigu og VSB verk-
fræðistofuna um hönnun nýja
safnhússins. Hönnuninni á að
ljúka í maí 1998.
Talsverðir fjármunir eru til í
sjóði sem renna eiga til bygging-
arinnar. Þar er fyrst að nefna
höfðinglega gjöf prófessors, Jóns
Steffensens sem í erfðaskrá sinni
ánafnaði stórum hluta eigna sinna
til uppbyggingar nýs safnhúss í
Nesi. Læknafélag Islands hefur
einnig heitið stuðningi sínum.
Framlög hafa verið veitt á fjárlög-
um ríkisins til verksins. Og loks
ber að nefna að á hátíðarfundi,
30. október 1997, í tilefni 70 ára
afmælis Tannlæknafélags íslands,
gaf félagið 500.000 kr. til bygg-
ingar nýja safnhússins. Verkefnið
er þó ekki fullfjármagnað og enn
er óljóst hvenær hægt verður að
ráðast í framkvæmdir.
Árið 1992 voru opnaðar sýn-
ingar á vegum safnsins í vestari
hluta Nesstofu. Þar til nýtt safn-
hús rís munu sýningar safnsins
verða þar. Safnið hefur nú fengið
eystri hluta hússins til umráða. Sá
hluti hússins hefur ekki verið
gerður upp og liggur því fyrir að
koma honum í það horf sem hann
var er landlæknir bjó þar og starf-
aði. Þegar aðalsýningum safnsins
hefur verið komið fyrir í nýju
sýningarhúsnæði er ætlunin að
búa Nesstofu að öllu leyti sem
líkast því sem hún var á dögum
Bjarna Pálssonar landlæknis að
húsgögnum og öðru innanstokks.
Starfsemi safnsins eykst jafnt
og þétt þó aðsókn að safninu
þyrfti að vera meiri. Skipulagðar
heimsóknir hópa eru uppistaðan í
aðsókn að safninu. Samsetning
hópanna er ólík og tilefni heim-
sóknanna mismunandi. Sem
dæmi má nefna þátttakendur á
ráðstefnum og á námskeiðum er
tengjast heilbrigðismálum, starfs-
fólk sjúkrahúsa, heilsugæslu-
stöðva og fyrirtækja og útivistar-
hópa. Þá hafa fyrirtæki, stofnanir