Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 72
336
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
lengur í hug að lækna berkla
með jurtaseyði, þó suraum finn-
ist það ágætt lyf við krabba-
meini. En skottulæknum leggst
alltaf eitthvað til og nú hefur al-
næmi bæst í hóp þeirra sjúkdóma
sem læknisfræðin hefur ekki
svar við. Trúlega munu því
skottulækningar fylgja í liumátt
eftir læknisfræðinni meðan ein-
hverjir sjúkdómar eru til sem
ekki er hægt að lækna eða eitt-
hvert líkamlegt eða andlegt
ástand sem við erum ekki sátt
við og við sjáum ekki framá ann-
að í náinni framtíð.
Þekking og blekking
Það er einkennandi fyrir
skottulækningar að aðferðafræði
þeirra breytist ekki í grundvall-
aratriðum í tímans rás. Beitt er
altækum loforðum til lausnar
vandamála (mynd 1).
En hversvegna er svo mikill
uppgangur í skottulækningum í
vestrænum þjóðfélögum sem
raun ber vitni? Samkvæmt upp-
lýsingunt frá 1992 (2) eyða
Bandaríkjamenn sem svarar 30
milljörðum dala í skottulækning-
ar og skottulyf. Frá árinu 1980
hefur verið sótt um leyfi hér á
landi fyrir 5173 tegundum af
svokölluðum náttúruvörum og
leyfi verið veitt fyrir 3245 (3)
Engar sölutölur liggja fyrir um
þessar vörutegundir. Ekki liggja
heldur fyrir neinar tölur urn það
hve mikli fé Islendingar verja í
annars konar skottulækningar, en
aldrei heyrist kvartað yfir verð-
inu á þessum vörum eða þjónust-
unni.
Við lifum í upplýsingaþjóðfé-
lagi, þar sem aðgangur að þekk-
ingu er góður. Það er auðvelt að
dreifa þekkingu og reyndar líka
blekkingu því getur fáfræði varla
verið orsök þess að skottulækn-
ingar blómstra.
Læknisfræðin hefur heldur
aldrei haft svör við jafnmörgum
heilbrigðisvandamálum og nú og
almenningur hefur aldrei vitað
jafn mikið um líkama sinn og
starfsemi hans og nú.
Þá má líka fullyrða að fólk á
Vesturlöndum og sums staðar
annars staðar í heiminum hefur
aldrei verið hraustara en nú. Um
það vitnar síhækkandi meðalald-
ur.
Þar sem athuganir hafa verið
gerðar á skottulækningum á
Vesturlöndum kemur í ljós að
notkun þeirra er útbreiddust
meðal sæmilega upplýsts fólks í
efri- og miðstéttum en ekki eins
og búast mætti við meðal fá-
tækra og fáfróðra. Ekki verður
því heldur kennt um að aðgengi
að læknishjálp sé takmarkað,
sumir vilja jafnvel halda því
fram að í sumum þróuðum lönd-
um, þar á meðal Islandi, sé það
of mikið. Eðlilegt er að almenn-
ingur leiti til skottulækna í van-
þróuðum löndum og víða gera
skottulæknar mikið gagn með
því að létta biðina eftir því að
ýmis dagleg heilbrigðisvanda-
mál leysist af sjálfu sér. Því hafa
ýmsar þjóðir, þar á meðal Kín-
verjar og Indverjar. tekið þann
kost að upplýsa skottulæknana í
stað þess að banna starfsemi
þeirra. Þannig má nýta þá um
leið og reynt er að koma í veg
fyrir að þeir geri skaða. Þessar
þjóðir leyfa lfka verslun með alls
kyns skottulyf bæði úr jurta- og
dýraríkinu. En það svarar ekki
spurningunni um það hvers
vegna skottulækningar þrífast í
löndum með háþróaða læknis-
fræði og, að því sem best verður
séð, nægilegt aðgengi að henni.
Ekki er heldur hægt að sjá að
hliðstæðar framfarir hafi orðið í
Efnaskipta- meðferð Hreinsun
Lífsmáttur Valfrelsi
Andi Hreinn
Heilun Kjarni
Vald Lífrænn
Eðlilegur Onæmis-
örvun
Bæn
Mynd 2. íðorðasafn skottu-
lækninga.
skottulækningum og læknis-
fræði, nema helst í auglýsinga-
tækni, íðorðasafn skottulækn-
inga er gott dæmi þess (mynd 2).
Wallace Sampson kallar þetta
orðabók fáránleikans (4) því orð-
in eru notuð til að fela raunveru-
lega merkingu þeirra og búa til
gerviveruleika. Við skulum
skoða nokkur þessara orða nán-
ar.
Orðið heilun er nýtt orð í ís-
lensku máli og er notað af for-
mælendum skottulækninga til að
þynna út hugtakið lækningu,
sem fáist aðeins við sjúkdóm en
ekki við sjúklinginn í heild. Þetta
er að verða þjóðtrú sem boðuð
er, fyrst og fremst af einstakling-
um eða hópum sem fjalla uin
læknisfræði af vankunnáttu eða
til að blekkja.
Allir sjúkdómar hafa áhrif á
líkamann í heild og í mismun-
andi mæli á félagslegt umhverfi
sjúklingsins og lækning á hvaða
sjúkdómi sem er hefur áhrif á
líkamann í heild og á félagslegt
unthverfi hins læknaða. Skoðum
einfalt dæmi. Lófakreppa er
sjúkdómur í bandvef lófans sem
veldur því að fingurnir kreppast
smátt og smátt. Þessi sjúkdómur
hefur ekki áhrif á líkamann í
heild, en hann getur valdið því
að sjúklingurinn verður óvinnu-
fær og fer það eftir því hvert
starf hans er. Þannig getur þessi
meinlitli sjúkdómur haft mikil
áhrif á félagslega stöðu og fé-
lagslegt umhverfi sjúklingsins.
Með tiltölulega einfaldri skurð-
aðgerð er ekki aðeins hægt að
rétta úr fingrunum heldur einnig
að bæta félagslegar aðstæður
sjúklingsins.
I þjóðfélagi þar sem stöðugt er
klifað á kostnaði við að lækna
fólk geta einstakir þættir lækn-
inga sem taka tíma orðið útund-
an, til dæmis umhyggja. Þar er
mjög auðvelt að boða þá trú að
læknar lækni ekki sjúklinga
heldur sjúkdóma. Vanræksla
þessara þátta myndar tómarúm
sem skottulæknar sækja inn í.