Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
329
eru nú um 500 sjúklingar með
insúlínháða sykursýki og um
2.000 með insúlínóháða sykur-
sýki. I fyrrnefnda hópnum þurfa
svo til allir á meðferð að halda
en í hinum hópnum eru heldur
yngri sjúklingar og er heldur
lægra hlutfall meðal þeirra sem
hætt er við augnsjúkdómum.
í „Eye World” þar sem meðal
annars er greint frá áætluninni
„Sykursýki 2000” þar sem stefnt
er að því að útrýma blindu af
völdum sykursýki í Bandaríkjun-
um er bent á að það sé ekki
óraunhæfur draumur. „Hætta á
blindu meðal sykursjúkra hefur
nánast verið upprætt á Islandi,
landi þar sem fyrir hendi er for-
varnakerfi svipað því sem mælt
er með í Bandaríkjunum í her-
ferðinni Sykursýki 2000,” segir í
ritinu.
Þá kemur fram í grein í Ocular
Surgery News þar sem greint er
frá þessu starfi á Islandi að í Evr-
ópu og Bandaríkjunum sé hlut-
fall blindu meðal sjúklinga með
sykursýki yfir 2% en á Islandi
hafi það fallið úr 2,4% árið 1980
niður í 0,6% árið 1994. Þar segir
að kostur við íslenska forvama-
kerfið sé meðal annars sá að leit
og meðferð sé í höndum sömu
lækna og það stuðli að góðum
árangri.
-jt-
NORVOLD
Norrænt samstarf um rannsóknir á ofbeldi og
heilsufarslegum afleiðingum þess
Verið er að hefja samstarf um
rannsóknir sem einkum munu
beinast að heimilisofbeldi og
kynferðislegu ofbeldi (nauðgun-
um) á Norðurlöndunum. Verkefn-
ið mun njóta stuðnings frá Nor-
rænu ráðherranefndinni á næstu
þremur ámm og er því stýrt af
prófessor Berit Schei Þrándheimi,
Guðrúnu Agnarsdóttur yfirlækni
Reykjavík og Karin Helweg-
Larsen réttarlækni Kaupmanna-
höfn í samvinnu við aðra lækna á
þessu sviði á Norðurlöndunum.
Aðaláhersla verður lögð á að
kanna umfang þessa vanda, gera
sér grein fyrir því heilsufarslega
tjóni sem af honum hlýst og
kanna hvemig má bæta úr því eða
koma í veg fyrir það. í því skyni
verður tekið mið af þeim könnun-
um sem þegar hafa verið gerðar
eða eru í bígerð og gerðar kann-
anir í þeim löndum þar sem engar
upplýsingar liggja fyrir um tíðni
og afleiðingar slíks ofbeldis. Enn-
fremur verður gerður samanburð-
ur á því hvemig þolendum kyn-
ferðisbrota er sinnt og sérstaklega
hugað að starfi neyðarmóttaka
þar sem þær er að finna á Norður-
löndum í þeim tilgangi að skil-
greina norrænan staðal um þjón-
ustu við þolendur. Rannsóknir
verða einnig gerðar á því hvernig
réttarlæknisfræðileg þjónusta er
skipulögð á Norðurlöndunum og
hvemig megi bæta menntun heil-
brigðisstarfsfólks til að taka á
móti, rannsaka og meðhöndla
þolendur kynferðisbrota.
Oskað er eftir samstarfi sem
flestra um þetta verkefni bæði
þeirra rannsóknarhópa sem þegar
vinna á þessu sviði og einnig ann-
arra sem vilja taka þátt.
Því er boðað til fundar þar sem
NORVOLD verkefnið verður
kynnt og staða mála í rannsókn-
um á kynferðislegu ofbeldi á
Norðurlöndunum.
Fundurinn verður haldinn í Eg-
tved Pakhus, Asiens Plads,
Christianshavn í Kaupmanna-
höfn, 20. apríl næstkomandi kl.
9.00 til 15.00. Þátttökugjald
ásamt hádegisverði er 150 dansk-
ar krónur. Allir eru velkomnir.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í
fundinum fyrir 10. apríl eða
áhuga á verkefninu til Karin
Helweg-Larsen, DIKE, Svane-
mpllevej 25, DK 2100, sími: 00
45 39 20 77 77, bréfsími: 00 45
39 20 80 10, netfang: khl@
dike.dk eða til Guðrúnar Agn-
arsdóttur, sími: 567 4700, bréf-
sími: 567 3979, netfang: gud
runag@rhi.hi.is