Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 56
322
Umræða og fréttir
Formannsspjall
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Stjórnunarhlutverk lækna
Á allra seinustu árum hefur
orðið mikil breyting á starfsum-
hverfi lækna, sérstaklega á
sjúkrahúsum. Fagstéttir, sem áður
tóku við þar sem læknirinn leið-
beindi, hafa nú í sumum tilfellum
meira sjálfstæði en áður.
Ekki má gleyma hvernig þetta
er til komið. Með aukinni tækni
og umfangi hefur það orðið lækn-
inum nauðsynlegt að láta afmörk-
uð verkefni í hendur annarra, án
þess að ábyrgðarsvið hans hafi
þrengst.
Læknar bera samkvæmt lögum
ábyrgð á greiningu og meðferð
þeirra sem til þeirra leita - á því
liggur enginn vafi. Þeir bera
þannig hina endanlegu ábyrgð á
allri ákvarðanatöku í meðferðar-
og umönnunarferli sjúklinga
sinna. Læknanámið er í eðli sínu
stjórnunarnám og læknisstarfið í
eðli sínu stjómunarstarf þar sem
læknirinn lærir að skipuleggja
starf sitt og annarra meðal annars
með virkri teymisvinnu. Eiginlegt
stjórnunamám þar sem læknirinn
lærir að leiða rekstur á starfsemi
tengdri lækningum hefur vantað í
nám lækna. Nefnd á vegum
læknasamtakanna og Háskóla Is-
lands, undir forystu Sigurðar
Thorlacius núverandi trygginga-
yfirlæknis, lagði til fyrir nokkrum
árum að stjórnunarnám lækna
yrði bætt og það yrði gert í sam-
vinnu við Endurmenntunarstofn-
un. Af þessu hefur ekki orðið
nema að litlu leyti. Er þetta mjög
miður og úr því verður að bæta.
Læknar gera sér sjálfir fyllilega
grein fyrir því að þeir verða að
Frá ljósmyndastofu Landspítalans.
axla þá ábyrgð að stjórna lækn-
inga- og meðferðarstarfsemi,
enda er henni best fyrir komið í
þeirra höndum.
Læknar sem sinna stjórnun
njóta ekki sannmælis hjá kolleg-
um sínum. Þeim er oft, beint eða
óbeint, gert erfitt fyrir að rækja
hlutverk sitt og eru minntir á íjar-
lægð sína frá sjúklingum. Þetta
verður ekki hvati fyrir þá lækna
sem vilja og geta sinnt stjórnunar-
stöðum. Þessu þurfum við að
breyta. Við þurfum að styðja við
kollega okkar sem taka á sig þá
ábyrgð að vera í forsvari í heil-
brigðisþjónustu og í stjórnsýsl-
unni. Þeirra hlutverk er mjög
mikilvægt fyrir umfang og eðli-
lega þróun lækninga.
Fræðslustofnun lækna mun á
næstu misserum athuga mögu-
leika á auknu stjórnunarnámi
lækna og er það vel. Þá er pen-
ingagjöf prófessors Tómasar
Helgasonar til læknasamtakanna
til eflingar stjómunarnámi lækna
ómetanleg í þessu tilliti.
Stjórnunarhlutverk lækna er
óumdeilt. Læknar þurfa að taka
virkari þátt í stjómun heilbrigðis-
stofnana. Tryggja verður að fag-
leg sérþekking þeirra hafi nauð-
synleg áhrif á daglegan rekstur
heilbrigðisstofnana og þróun
heilbrigðiskerfisins.
Guðmundur Björnsson
form@icemed.is