Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 36
302 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 E-16. Skurðtæk lungnakrabbamein á Landspítalanum 1997 Kristinn B. Jóhannsson, Grétar Olafsson Frá hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans Lungnakrabbamein er erfiður sjúkdómur við að eiga og fimm ára lifun er lág. I hinum vestræna heimi er einungis 20-25% sjúklinga sem koma til aðgerða. Nýgengi krabbameins í lungum á Islandi hjá körlum, miðað við 100 þúsund íbúa 1989-1993, var 33,3% en 25,5% sömu ár hjá konum. Nýgengi fyr- ir árið 1997 liggur ekki fyrir. Fyrir aðgerð þarf að tryggja að sjúklingur sé með staðbundinn sjúkdóm og hann þarf að vera í góðu ástandi til þess að þola aðgerð. Teknar eru sneiðmyndir af þeim líffærum sem lungnakrabba- mein dreifir sér til, svo sem heila, lungum, miðmæti, lifur og nýrnahettum. Einnig er fram- kvæmt beinaskann. Eitlar í miðmæti eru athugaðir vel og ef þeir eru taldir eðlilegir að stærð er ekki framkvæmd speglun á miðmæti, annars er hún framkvæmd fyrir aðgerð. Almennt ástand sjúklings er athugað mjög vel, sérstaklega hjarta og lungna- starfsemi. Metið er fyrir hvern sjúkling hvort hann þoli að hluti af hans lunga eða allt sé fjarlægt. TNM-stigun er notuð fyrir aðgerð og einnig eftir aðgerð. Þá er hægt að flokka sjúklinga og gera sér betri grein fyrir horfum hvers og eins og hvort viðbótarmeðferðar sé þörf. Sjúklingar sem koma til aðgerðar eru venjulega á stigi 1 og stigi II. Nútíma rannsóknartækni hefur haft í för með sér að könn- unaraðgerðir á brjóstholi eru orðnar fáar. Arið 1997 var framkvæmd 21 brjóstholsaðgerð á sjúklingum með krabbamein í lungum á Landspít- alanum. Þetta voru 15 karlar og sex konur. Brott- nám á lungnalappa var framkvæmt hjá 11 sjúkling- um, lunga fjarlægt hjá fjórum og fleygskurður framkvæmdur hjá þremur. Ekki var gerlegt að nema æxlið brott hjá þremur sjúklingum, aðeins sýni tekið. Aðgerðirnar gengu vel. Sjúklingarnir dvöldu að meðaltali 8-14 daga á spítala nema þeir sem fengu aukakvilla, þeir dvöldu lengur. Einn sjúklinganna fékk lungnabólgu eftir brottnám lungnalappa í hitt lungað og dó 18 dögum eftir aðgerð. Nánar verður rætl um skurðaðgerðir við krabba- meini í lungum en það sést hve lítill hluti sjúkling- anna sem fá sjúkdóminn koma til skurðaðgerðar. Einnig verður rætt ítarlegar um horfur þeirra sjúk- linga sem búið er að framkvæma fullnaðar- (rad- ical) aðgerð á. E-17. Innanæðaraðgerðir með hjálp bors (Rotablator®) á slagæðar neðan hnés. Tvö sjúkratilfelli Antia Gunnarsdóttir', Halldór Jóhannsson', Einar H. Jónmundsson2, Kristján Eyjólfsson3 Frá 'handlœkninga-, 2röntgen- og 'lyflœkninga- deildum Landspítalans Innanæðaraðgerðir með belg til víkkunar á slag- æðarþrengslum skipa stöðugt stærra hlutverk hjá æðaskurðlæknum til meðferðar á sjúklingum með blóðþurrð til ganglima vegna slagæðaþrengsla. Er þessi meðferðartækni í örri þróun. Skilyrði fyrir að hægt sé að víkka æðarþrengsli út með belg er að hægt sé að þræða leiðara í gegnum þrengslin og koma belgnum að. Því verður að vera ákveðið innanæðarþvermál (lumen) til staðar. I þeim tilvikum þar sem þrengslin eru svo mikil að ekki tekst að koma belg inn er mögulegt að auka innanæðarþvermálið með bor (Rotablator®) þannig að hægt sé að koma belgnum að, til víkkunar á æðinni. A þennan hátt eru möguleikar til inn- anæðarvíkkana á litlum slagæðum enn auknir. Rotablator® er bor sem þakinn er demantsögnum og snýst á hraða upp að 190.000 snúningum á mfn- útu og þræðist yfir leiðara sem er 0,23 mm (0,009 tommur) í þvermál. Hér lýsum við tveimur sjúkratilfellum þar sem í fyrsta skipti á íslandi var framkvæmd inn- anæðarvíkkun á slagæðum neðan hnés með notkun bors og belgs hjá sjúklingum með krítíska blóð- þurrð í ganglimum. Tókust báðar aðgerðirnar vel. Alyktun: Blóðþurrð í fótum vegna lokunar eða þrengsla á slagæðum neðan hnés er erfið viðureign- ar og getur leitt til aflimunar á fótlegg. Árangurinn af þessum fyrstu aðgerðum var góður og gefur þar með möguleika á innanæðaraðgerðum hjá fleiri sjúklingum en áður. E-18. Blæðing, blóðgjöf og notkun blóð- skilju við hryggskekkjuaðgerðir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur María Sigurðardóttir', Björn Tryggvason', Sverrir Hilmarsson2, Ragnar Jónsson2 Frá 'svœfmga-og gjörgœsludeild og 'hœklunar- lœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Inngangur: Aukaverkanir blóðgjafablóðs eru vel þekktar, svo sem sýkingar af völdum HIV, lifr- arbólguveira og fleiri sýkingarvalda, bæling ónæm- iskerfisins og ónæmis- og ofnæmisviðbrögð. Fóst- urlát eru þekkt hjá konum vegna mótefnamyndunar eftir blóðgjöf. Æskilegt væri því að halda notkun blóðgjafablóðs í lágmarki. Eigin söfnun blóðs fyrir aðgerð væri því eftirsóknaverður kostur ásamt notkun blóðskilju í aðgerð. Efniviður og aðferðir: Á árunum 1992-1997 hafa verið gerðar 30 aðgerðir á 29 sjúklingum (27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.