Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.1998, Side 78

Læknablaðið - 15.04.1998, Side 78
342 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Gildar: Þær byggist á því að farið hafi verið í gegnum niður- stöður vísindarannsókna um efn- ið og einnig að til sé staðar klínísk og praktísk sérþekking. Areiðanlegar: Tveir hópar sérfræðinga á viðkomandi sviði mundu búa til sömu verklags- reglur og mismunandi hópar lækna mundu nota verklagsregl- urnar endurtekið á sama hátt við sömu klínísku aðstæður. Faglega viðeigandi og not- hæfar: Verklagsreglurnar séu skrifaðar út frá sjónarhóli við- komandi hóps lækna (sérgrein- ar). Auðvelt sé að nota þær í dag- legu starfi. Alhliða og sértækar: Verk- lagsreglurnar hafi í huga sérstaka sjúklingahópa og aðstæður þegar litið er til frammistöðu læknis- ins. Þær inniberi alla viðeigandi þætti. Sveigjanlegar: Þær innihaldi og nefni hugsanlegar undanþág- ur og rúm sé til að nota klíníska dómgreind, einstaklingsmiðaða meðferð og hafðar séu í huga ákveðnar aðstæður á vinnustað læknisins. Á skýru og ótvíræðu máli: Þær séu settar fram á rökréttan og skipulegan máta. Notað sé skýrt mál og nákvæmt orðalag. Fræðandi: Form og orðalag verklagsreglna tengist daglegu starfi. Þær innihaldi mjög sér- tækar ráðleggingar, en leggi þó áherslu á aðalatriði. Það sé auð- velt að nota þær við kennslu. Aðlaðandi: Útlit veki áhuga og notuð séu stutt ágrip. Hvernig á að þróa verklagsreglur? Um er að ræða tvenns konar nálganir við að þróa verklags- reglur. Ómiðstýrð nálgun: Hópur lækna á ákveðnu svæði, hópstarf lækna eða læknar á heilsugæslu- stöð búa til verklagsreglur á grundvelli sérþekkingar og reynslu, sem tiltæk er og reyna að komast að samkomulagi með hópumræðu. Ef nauðsyn ber til eru niðurstöður vísindarann- sókna skoðaðar og sérfræðingar kallaðir til. Einnig geta aðrir fag- aðilar úr hópi heilbrigðisstarfs- manna verið ráðgefandi. Kostur- inn við þessa nálgun er að hún er fræðandi fyrir þátttakendur, hún eykur ábyrgðartilfinningu þeirra og þeir finni að þetta sé þeirra mál og um leið aukast líkindin á að þessu sé vel tekið. Ókosturinn við þessa nálgun er að hún getur verið of erfið fyrir hinn venju- lega lækni, sem skortir nauðsyn- lega hæfni og sérþekkingu. Miðstýrð nálgun: Hópur lækna með viðurkennda sér- þekkingu á viðkomandi efni þró- ar verklagsreglur með því að rýna ítarlega í vísindarannsóknir og klíníska sérþekkingu. Þetta getur átt sér stað í formi skipu- lagðra samráðsfunda. Kosturinn við miðstýrða nálgun er vísinda- legur grunnur og viðurkenning á sérþekkingu hópsins, sem býr til verklagsreglurnar. Ókostur getur verið að þeir sem eiga að nota verklagsreglurnar hafni þeim á þeirri forsendu að þeir hafi ekki verið hafðir með í ráðum við þróun þeirra. Samþáttun á miðstýrðum og ómiðstýrðum verklagsreglum tryggir líklega best að hægt sé að koma þeim í notkun á árangurs- ríkan máta. Ýmsar aðferðir er hægt að nota við gerð verklagsreglna. Þær helstu eru: Lands- eða héraðsbundnir samráðsfundir: Á fjölmennum fundi fulltrúa mismunandi hópa eru kynnt drög vinnuhóps um efnið. Tilgangur fundarins er að fá athugasemdir og leita samráðs um verklagsreglurnar. Hópur sérfræðinga: Vinnu- hópur sérfræðinga á sértæku sviði hittist reglulega. Þeir reyna að þróa verklagsreglur og leitast við að komast að samkomulagi með því að rýna í niðurstöður vísindarannsókna og með hóp- umræðu. Þessari vinnu er hægt að fylgja eftir með samráðs- fundi. Rýni í niðurstöður vísinda- rannsókna: Þessi aðferð saman- stendur af kerfisbundinni söfnun upplýsinga og mati á vísinda- rannsóknum á ákveðnu sviði til að safna í sarpinn við gerð verk- lagsreglna. Gæðahópar - staðbundnir samráðshópar: Hópur starfandi lækna reynir að ná samráði um verklagsreglur með skipulegri umræðu og því að skiptast á reynslu viðkomandi, niðurstöðu rýni í vísindarannsóknir og að leita ráðgjafar sérfræðinga. Delphi aðferð: Þetta er skrif- leg, nafnlaus (anonym) aðferð, þar sem hópur lækna gefur álit sitt á vissum verklagsreglum með rökum með og á móti. Þetta er gert á spurningablaði. Niður- stöður svörunar fara aftur til nefndarinnar og álit þeirra á breyttum verklagsreglum er fengið. I sumum tilvikum reynir nefndin að komast að samkomu- lagi. Prófun á hentugleika verk- lagsreglna: Farið er yfir verk- lagsreglurnar af læknum eða öðrum heilbrigðisstarfsmönnum eða þær eru notaðir til reynslu í daglegu starfi til að prófa hent- ugleika og til að koma auga á hvað hindri notkun þeirra. Óháð heimilun á notkun (independent authorization): Verklagsreglurnar eru metnar af óháðri nefnd eða ráði, sem skoð- ar þróunaraðferð og árangur og gefur opinbert samþykki sitt. Niðurlag Gerð og dreifing verklags- reglna og skilmerki fyrir góða læknisþjónustu eru hornsteinar gæðaþróunar. Slík starfsemi á sér nú stað meðal flestra ná- grannaþjóða okkar. Oftast er starfið unnið í litlum hópum sér- fræðinga á viðkomandi sviði og byggja þeir vinnu sína á rýni í niðurstöður vísindarannsókna og með því að skiptast á reynslu sinni. Hjá lítilli þjóð eins Islend- ingum verður ekki nema að litlu leyti hægt að þróa verklagsreglur

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.