Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 32

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 32
300 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 E-ll. Eitlataka úr holhönd við brjósta- krabbamein Þórhallur Agústsson', Þorvaldur Jónsson', Jón Gunnlaugur Jónasson2 Frá 'skurðlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 2Rannsóknastofu Háskólans í meinafrœði Eitlataka úr holhönd er hluti af hefðbundinni meðferð við brjóstakrabbameini, hvort sem brjóst er að fullu fjarlægt eða ekki. Aðgerðinni fylgja aukaverkanir og deilt er um ábendingar og tækni. Gerð var afturskyggn könnun á fjölda og ástandi holhandareitla í öllum sýnum sem bárust Rann- sóknastofu HI í meinafræði á fimm ára tímabili, 1990-1994, úr aðgerðum vegna brjóstakrabbameins hjá konum þar sem eitlataka var framkvæmd. Alls barst 461 sýni frá 456 konum á aldrinum 28- 88 ára (miðaldur 58 ár). Eitlameinvörp fundust í 41,0% sýna þar sem brjóstaæxlið var ífarandi krabbamein og voru meinvörp í >4 eitlum í 16,7%. Hvort tveggja var óháð því af hvaða vefjagerð brjóstaæxlið var. Hjá konum 70 ára og eldri voru eitlameinvörp í 41,2 % sýna. Meðalstærð allra æxla í brjósti var 24 mm. Væru eitlameinvörp til staðar var meðalstærð 30,5 mm, en 19,5 mm ef ekki fund- ust meinvörp. Æxli var 10 mm eða minna hjá 87 konum (18,9%) og höfðu 18 þeirra (25,3%) eitla- meinvörp, en helmingur þó aðeins í einum eitli. Fylgni milli æxlisstærðar og eitlameinvarpa var því í heildina lítil. Meðalfjöldi eitla í sýnum var 11,2. Fjöldi eitla var sambærilegur hvort sem æxli var 10 mm eða minna eða stærra, og hvort sem meinvörp voru til staðar eða ekki. Ekki var heldur munur á fjölda eitla hjá konum 70 ára og eldri samanborið við yngri konur eða hvort gert var algjört brjósta- brottnám eða ekki. Islenskir skurðlæknar virðast þannig framkvæma staðlaða eitlahreinsunaraðgerð fremur en tak- markaða eitlasýnitöku til stigunar brjóstakrabba- meins, og er umfang eitlahreinsunar óháð klínísku stigi sjúkdómsins. Þó eitlataka reyndist “óþörf’ hjá 60% kvenna fundust ekki áreiðanlegir forspárþætt- ir um eitlaneikvæðan sjúkdóm til þess að lækka mætti þetta hlutfall án þess að skerða öryggi stigun- ar. Merking og brottnám á markeitli gæti hugsan- lega breytt þessu. Athygli vekur að eitlameinvörp voru jafnalgeng hjá konum á hópskoðunaraldri og hjá konum yfir þeim aldursmörkum. E-12. Aðgerðir við brjóstakrabbameini og vefjarannsókn sýna úr þeim. Gæða- könnun Þórhallur Agústsson', Þorvaldur Jónsson', Jón Gunnlaugur Jónasson2 Frá 'skurðlœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 2Rannsóknastofu Háskólans í meinafrœði Ymsir þættir eru notaðir til þess að meta gæði meðferðar á brjóstakrabbameini. í afturskyggnri rannsókn voru kannaðir nokkrir þættir sem lúta að skurðaðgerð og meinafræðiskoðun sýna. Öll vefja- rannsóknarsvör frá Rannsóknastofu HI í meina- fræði á fimm ára tímabili, 1990-1994, við aðgerðum vegna brjóstakrabbameins þar sem eitla- taka úr holhönd var framkvæntd voru yfirfarin. Sýni bárust úr 468 aðgerðum. Sjö voru frá karl- mönnum. Konur 70 ára og eldri voru 85 (18,2%). Aðgerðir voru framkvæmdar af 31 skurðlækni. Þar af framkvæmdu 22 læknar sex aðgerðir eða færri, þrír læknar 10-29 aðgerðir og sex læknar 30 að- gerðir eða fleiri. Fullt brottnám á brjósti var fram- kvæmt hjá 276 konum (60%). Æxlin voru nokkru stærri í þeim hópi en hjá þeim konum sem héldu brjóstinu, en munurinn var ekki tölfræðilega mark- tækur. Aldur beggja hópa var sambærilegur. Enginn eitill fannst í fjórum sýnum, einn til þrír eitlar í 28 (6,0%) og fjórir til sex eitlar í 61 sýni (13,0%). Færri en þrír og færri en sex eitlar voru marktækt oftar í sýnum frá þeim hópi skurðlækna sem gerðu fæstar aðgerðir en frá þeim hópi sem flestar aðgerðir gerðu. Eitlataka úr holhönd var fram- kvæmd hjá 36 sjúklingum (7,8%) með setkrabba- mein, en í einu slíku tilfelli fundust eitlameinvörp. Sýni voru skoðuð af 11 meinafræðingum og skoðuðu sex þeirra 50 sýni eða lleiri. Fjöldi eitla í sýnum var sambærilegur hjá þeim meinafræðingum sem flest sýni skoðuðu. I vefjarannsóknarsvari var ekki gefin upp stærð frumæxlis í brjósti í 36 tilfell- um (7,7%). Alltaf var sagt hvort meinvörp fundust í holhandareitlum, en í 71 tilfelli (15,2%) var ekki getið um fjölda holhandareitla, þar af hjá sjö sjúk- lingum með eitlameinvörp. Á rannsóknartímanum voru aðgerðir fram- kvæmdar af mörgum skurðlæknum og voru heimt- ur á holhandareitlum betri hjá þeim sem flestar aðgerðir gerðu. Hlutfall brottnámsaðgerða var hátt og skýrist ekki af aldri sjúklinga og ekki nema að hluta af stærð æxlis. Eitlataka var framkvæmd hjá hópum sjúklinga þar sem ábending er umdeild, svo sem við setkrabbamein og hjá einstaklingum 70 ára og eldri. Misbrestur var á upplýsingum sem varða miklu um stigun og fylgimeðferð, samanber stærð æxlis og fjölda eitla. E-13. Hormónaviðtakamælingar í brjóstakrabbameinum. Samanburður tveggja aðferða við viðtakaákvörðun Jón Gunnlaugur Jónasson', Sigurrós Jónasdóttir', Aðalgeir Arason', Helgi Sigurðsson2, Bjarni A. Agnarsson' Frá 'Rannsóknastofu Háskólans í meinafrœði, 2krabbameinslœkningadeild Landspítalans Tilgangur: Að bera saman niðurstöður tveggja aðferða við að meta hormónaviðtaka í brjósta-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.