Læknablaðið - 15.04.1998, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
315
testóvíron. Fáir sjúklinganna höfðu notað reðurris-
dælur (4). Allir sjúklingamir fengu gentamýcín og
cefalósporín fyrir aðgerð en voru síðan áfram á
sýklalyfjum í 10 daga á eftir. 1 fyrstu þrjá sjúkling-
ana voru notaðar tveggja hluta prótesur frá Mentor.
I þessum prótesum er geymirinn lítill og staðsettur
í pungnum. Síðan höfum við notað þriggja hluta
prótesu frá Mentor, alfa-I. Geymirinn í henni er 100
ml og staðsettur í mjaðmagrind. Lengd prótesunnar
var frá 16 sm upp f 22 cm og reðurinn mældist að
jafnaði um 20 cm (16-24 sm). Engin aukaverkun
var í aðgerð. Aukaverkanir eftir aðgerð voru fáar.
Ein prótesan lak eftir eitt og hálft ár. Sjúklingarnir
dvöldu að jafnaði fjóra sólarhringa (tvo til fimm
daga) á sjúkrahúsi. Þrettán sjúklingar voru ánægðir
með notkun prótesunnar en einn var ekki viss.
Alyktun: Þrátt fyrir lítinn efnivið gefur þessi
rannsókn allgóðar upplýsingar um árangur með-
ferðarinnar. Eins og í fyrri rannsóknum eru slag-
æðasjúkdómarnir algengasta ástæðan og flestir
höfðu reynt aðrar meðferðir. Engar alvarlegar
aukaverkanir áttu sér stað og enginn hafnaði
prótesunni, til dæmis vegna sýkinga. Lengd reðurs
hér á landi virðist í lengra lagi miðað við upplýs-
ingar frá öðrum löndum. Sjúkrahúsdvöl má án efa
stytta. I heildina virðast karlmennirnir ánægðir, svo
árangur virðist góður.
E-47. Brotnir limir á íslandi. Greining,
meðferð og horfur
Guðmundur Geirsson', Pálmar Hallgrímsson2
Frá 'þvagfœraskurðdeild og 'röntgendeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur
Inngangur: „Fractura penis“ er það kallað þegar
reðurgroppa (corpus cavernosum) og/eða þvagrás-
argroppa (corpus spongiosum) rifna vegna lokaðra
áverka á getnaðarlim í fullri reisn. Vitað er um fjóra
sjúklinga sem fengið hafa slíka áverka hér á landi
og hafa þeir allir verið meðhöndlaðir á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. Markmið rannsóknarinnar var að
kanna greiningu, meðferð og horfur þessara sjúk-
linga.
Efniviður og aðferðir: Leitað var eftir upplýs-
ingum úr sjúkraskrám viðkomandi sjúklinga
varðandi greiningu og meðferð. Haft var samband
við þá mismunandi löngum tíma eftir aðgerð til að
meta horfur.
Niðurstöður: Um er að ræða fjóra karlmenn sem
voru frá 36 til 50 ára gamlir við áverka. Allir höfðu
þeir fengið áverka við samfarir. Hjá þremur þeirra
var áverkinn greindur með ómun auk klínískrar
skoðunar. Allir fóru þeir í bráðaaðgerð og reyndist
einn sjúklinganna vera með rifu á báðum reður-
groppum en hinir á annarri. Einn fékk rifu inn í
þvagrásargroppu. Omskoðun reyndist gagnleg til
að greina og staðsetja áverka. Engin vandamál hafa
komið fram hjá þeim tveimur sjúklingum sem
náðst hefur í, nú einu og tveimur árum eftir aðgerð.
Alyktun: Fractura penis er sjaldgæfur áverki á
Islandi. Omskoðun er gagnleg rannsókn, bæði til að
greina og staðsetja áverka fyrir skurðaaðgerð, en
það er sú meðferð sem mælt er með.
E-48. Samspil á taugaviðbrögðum milli
aftari hluta þvagrásar og þvagblöðru
Guðmundur Geirsson', Magnus Fall2
Frá 'þvagfœraskurðdeildum Sjúkrahúss Reykja-
víkur og 2Sahlgrenska Háskólasjúkrahússins í
Gautaborg
Tilgangur: Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að
hægt er að ræsa svokallað blöðrukuldaviðbragð
með kælingu á blöðru eða þvagrás, sem leiðir til
viðbragðssamdráttar á þvagblöðru (jákvætt ísvatns-
próf). I fyrri rannsóknum okkar hefur verið sýnt
fram á að kuldaviðbragð frá þvagblöðru mannsins
er uppbyggt á sama hátt og í tilraunadýrum. Minna
er vitað um taugaviðbrögð frá þvagrásinni. I þess-
ari klínísku rannsókn höfum við kannað viðbrögð í
þvagblöðru við þenslu og kuldaáreiti á blöðruháls
og aftari hluta þvagrásar.
Efniviður og aðferðir: Tuttugu og einn sjúkling-
ur með ofvirka blöðru og þekkt jákvætt ísvatnspróf
var rannsakaður. Meðalaldur þeirra var 48,5 ár, frá
15-75 ára. þeir gengust allir undir vatnsblöðrumæli
(cystometry) og ísvatnspróf í blöðru. Þvagrásin var
síðan rannsökuð með því að örva hana með mis-
munandi heitu vatni um sérstakan þvaglegg með
hliðarholum. Þrýstingur var samtímis mældur í
blöðru í gegnum þrýstinema.
Niðurstöður: Þensla á þvagrás leiddi til sam-
dráttar á þvagblöðru hjá sjö af 21 sjúklingi. Af
þeim voru þrír (14%) sem svöruðu eingöngu með
inndælingu á ísvatni. Hjá fjórum sjúklingum varð
samdráttur á blöðru við tog á blöðruhálsi.
Alyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar styðja að
kuldanæmt taugaviðbragð sé til staðar í aftari hluta
þvagrásar hjá manninum. Það er þó sýnu erfiðara
að framkalla taugaviðbrögð með þenslu eða kæl-
ingu á þvagrás heldur en þvagblöðru.
E-49. Blööruhálskirtilskrabbamein og
stökkbreytingar í p53 geni
Stefán Sigurðsson', Jón Tómasson2, Eiríkur Jóns-
son24, Steinunn Tliorlacius', Kristrún Benedikts-
dóttir', Laufey Tryggvadóttir, Hrafn Tulinius2, Jór-
unn E. Eyfjörð'
Frá 'Rannsóknastofu Krabbameinsfélags Islands í
sameinda- og frumulíjfrœði, 2Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags Islands, 3Rannsóknastofu Há-
skólans í meinafrœði, 4þvagfœraskurðdeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Inngangur: Krabbamein í blöðruhálskirtli er al-
gengasta krabbamein íslenskra karla. Aldursstaðlað
nýgengi var 63,6 á 100.000 íbúa árin 1990-1994.