Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 27

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 215 mörgum, grunnum eða skarpt afmörkuðum (punched out) en í vélinda sjúklings númer 7 var lýst blöðrum. Herpes simplex veira-1 ræktaðist frá 10 sjúklingum, úr vélindasýnum sjö einstak- linga, munni tveggja og húðsári eins. Hjá átta sjúklingum greindust innlyksur í vélindasýnum við smásjárskoðun. Hjá fjórum þessara sjúk- linga greindust einnig margkjama risafrumur í sýnunum. Mótefnamælingar voru gerðar á sermi 10 einstaklinga, ELISA mælingar hjá okkar sjúk- lingum en mögnuðar (komplement) bindipróf hjá hinum sex. I sermi fimm sjúklinga voru mótefni neikvæð í fyrsta sýni en mælanleg í seinna sýni. Hjá einum sjúklingi voru aðeins IgM mótefni mælanleg í fyrsta sýni. Hjá tveim- ur sjúklingum varð marktækt fall mótefna í sermi frá fyrsta til annars sýnis en í einu tilfelli var marktæk hækkun mótefna mæld milli fyrsta og annars sýnis. Allir sjúklingar okkar voru meðhöndlaðir með acíklóvír en aðeins einn sjúklinganna sem lýst hafði verið áður. Svörun einkenna hans við lyfjameðferðinni var mjög góð (11). Ekki var getið um tímalengd einkenna hjá sex sjúkling- um en hjá 10 vöruðu þau frá innan við fimm dögum og allt að fimm vikum. Okkar sjúkling- ar lágu á sjúkrahúsi í einn til þrjá daga. Umræða Hér er lýst fjórum tilfellum herpes simplex vélindabólgu sem greind voru á Landspítalan- um árið 1997 í að öðru leyti heilbrigðum ein- staklingum og 12 tilfellum að auki sem lýst hafði verið í rituðu máli. Tilfellunum sem fund- ust í rituðu máli var lýst á 10 ára tímabili en engum tilfellum hefur verið lýst síðastliðin 10 ár. McBane og félagar lýstu þó herpes simplex vélindabólgu hjá annars heilbrigðum einstak- lingi árið 1991 en tilfellið fullnægði ekki okkar skilmerkjum (4). Fá tilfelli voru útilokuð vegna þess að þau fullnægðu ekki skilmerkjum okkar (4,9,10). Samkvæmt þessu virðist herpes simpl- ex vélindabólga í annars heilbrigðum einstak- lingum sjaldgæf en líklegt er að sjúkdómurinn sé vangreindur. Sumir hafa væg einkenni og leita því ekki læknis, hjá öðrum sem leita lækn- is er ekki talin þörf á speglun. Auk þess geta einkenni frumsýkingar í munni yfirskyggt ein- kenni frá öðrum líffærum. Megin einkenni hópsins voru ungur aldur (meðalaldur 26 ár) og karlkyn (14/16). Meðal- aldur ónæmisbældra sjúklinga með herpes simplex veiru vélindabólgu er hins vegar hærri og kynjahlutfallið er jafnara (4). Hinn ungi aldur kemur ekki á óvart því rannsóknir hafa sýnt að 40-60% vestrænna þjóða hefur mælan- leg mótefni gegn herpes simplex veirum við þrítugsaldur (12). Ekki er ljóst hvers vegna karlmenn eru í svo miklum meiri hluta. Vél- indabólga er ef til vill algengari meðal karla. Olíklegt er að karlar leiti til læknis fremur en konur vegna einkenna vélindabólgu en mögu- legt er að þeir séu frekar speglaðir vegna ein- kenna sinna því rannsóknir benda til að karl- menn séu frekar rannsakaðir í þaula og með- höndlaðir vegna einkenna en konur (13,14). Verkur við kyngingu var algengasta einkenni hópsins og beindist því athyglin eðlilega að vélinda. Tveir sjúklingar höfðu reyndar verk í uppmagálssvæði sem versnaði við að borða. Hjá tilfelli eitt voru einkenni í upphafi rakin til hjarta vegna breytinga í hjartalínuriti og voru því mæld hjartaensím og gerð hjartaómun. Hjá tilfelli tvö var megineinkennið í upphafi verkur undir hægra rifjabarði sem vakti grun um gall- steinasjúkdóm. Versnun einkenna þrátt fyrir meðferð með sýrudæluhemlum hjá sjúklingum 1, 3 og 4 og hiti voru vísbendingar um að ekki væri um vélindabólgu af völdum sýrubakflæðis að ræða heldur af öðrum toga. Nokkrir sjúk- linganna sem lýst var í rituðu máli voru taldir hafa vélindabólgu vegna bakflæðis og sendir heim á fljótandi fæði, sýrubindandi og/eða sýruhamlandi lyfjum, en komu aftur til læknis vegna aukinna einkenna (sjúkratilfelli 5 og 7). Greinilegt er því að auðvelt er að missa af sjúk- dómsgreiningunni ef einkenni sjúklings benda á annað líffæri en vélinda eða ef einkenni eru væg og/eða batna fljótt. Innan við helmingur sjúklinganna hafði sýnileg mein í húð og/eða slímhúð. Flestir höfðu sár í eða við munn en tveir sjúklingar höfðu húðmein. Bólga í vélinda getur verið af ýmsum toga. Algengust er bólga vegna sýrubakflæðis. Lyf, töflur og hylki geta einnig skaðað líffærið og má þar nefna tetracýklínsambönd. Helsta sýk- ingin sem herjar á vélinda er candidiasis. Þær veirur sem eru þekktar að valda vélindabólgu auk herpes simplex veiru eru cytomegalo veira og varicella zoster veira. Sýnataka hjálpar iðu- lega að greina milli þessara orsaka. Fyrsta sýnilega mein í herpes simplex vélindasýkingu eru blöðrur sent síðar springa og verða að sár- um (15). Blöðrur virðast hins vegar sjaldan sjást við speglun þessara sjúklinga (4) og í samræmi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.