Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 20
518
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Heilablóðfallseiningin hefði getað tekið við
85% sjúklinga en 15% voru of veikir til þess.
Alyktanir: Dánarhlutfall sjúklinga með heila-
blóðfall var lægra og hlutfall sjúklinga sem út-
skrifaðist heim var hærra en lýst hefur verið í
sambærilegum erlendum rannsóknum. Það
gæti bent til að heilablóðfall sé vægari sjúk-
dómur hér á landi en í öðrum vestrænum lönd-
um.
Inngangur
Heilablóðfall er þriðja algengasta dánaror-
sökin og ein algengasta ástæðan fyrir varan-
legri fötlun á Vesturlöndum. Um þriðjungur
þeirra sem lifir áfallið hlýtur varanlega fötlun
og þarfnast aðstoðar við athafnir daglegs lífs.
Margir þeirra þarfnast langtímavistunar á
stofnunum (1,2). Hérlendis má búast við 650-
700 heilablóðfallstilfellum árlega (3).
Sjúkrahús Reykjavíkur tekur á móti öllum
heilablóðfallssjúklingum sem til sjúkrahússins
leita á vaktdögum þess. A sjúkrahúsinu er þess-
um sjúklingahópi veitt bráðaþjónusta og full
endurhæfing. I legunni á sjúkrahúsinu ræðst
hvort sjúklingur andast vegna heilablóðfalls,
útskrifast heim eða á hjúkrunardeild.
A síðustu árum hefur verið sýnt fram á, í
slembiröðuðum rannsóknum, að sjúklingum
með heilablóðfall farnast betur á sérhæfðum
heilablóðfallseiningum (stroke units) en á al-
mennum legudeildum. Tekist hefur að lækka
dánartíðni (mortality) og bæta horfur þannig að
fleiri geta útskrifast heim jafnframt því sem
legutími er skemmri en á almennum deildum
(4,5). Heilablóðfallseining hefur verið starf-
rækt á endurhæfinga- og taugalækningadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur síðan 1992.
Rannsókn þessi lýsir sjúklingum sem greind-
ust með heilablóðfall á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
á árunum 1996-1997 með tilliti til legutíma,
dánarhlutfalls og afdrifa við útskrift. Skoðuð
var hlutdeild heilablóðfallseiningar í þjónustu
við þennan sjúklingahóp.
Efniviður og aðferðir
Sjúkrahús Reykiavíkur annast helming bráða-
vakta á höfuðborgarsvæðinu. Flestir sjúklingar
sem greinast með heilablóðfall á sjúkrahúsinu
leggjast beint inn á lyflækningadeildir eða
heilablóðfallseiningu. Lyflækningadeildir eru í
aðalbyggingu í Fossvogi og þar leggjast veik-
ustu sjúklingarnir inn. Heilablóðfallseining er í
byggingu endurhæfinga- og taugalækninga-
deildar um tvo kílómetra frá aðalbyggingunni.
Sérfræðingar og deildarlæknar sem starfa á
taugalækningadeild annast heilablóðfallssjúk-
linga á bráðamóttöku og eru ráðgefandi um
meðferð þeirra á legudeildum í aðalbyggingu í
Fossvogi. Læknarnir skráðu upplýsingar um
einkenni og áhættuþætti sjúklinga með heila-
blóðfall jafnóðum og þeir greindust á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur á árunum 1996-1997. For-
senda greiningar var skilgreining Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar á heilablóðfalli: „Bráð
merki um staðbundna (eða útbreidda) truflun á
heilastarfsemi sem varir í meira en 24 klukku-
stundir (eða veldur dauða) án þess að önnur or-
sök liggi fyrir en blóðflæðistruflun.“ Síðar
voru skráðar niðurstöður rannsókna, legutími
og upplýsingar um afdrif sjúklinga við útskrift.
Skráningin náði til allra sjúklinga sem læknar
heilablóðfallseiningar fengu vitneskju um á
bráðamóttöku og á legudeildum. Til viðbótar
var kannaður listi frá sjúklingabókhaldi sjúkra-
hússins yfir alla sjúklinga sem fengu greining-
arnar ICD 431-439 árið 1996 og ICD 161-168
árið 1997. Sjúklingar með skammvinna heila-
blóðþurrð (transient ischemic attack, TIA),
innanskúmsblæðingu (subarachnoid hemorr-
hage) eða heilablæðingu vegna arfgengs mýl-
ildissjúkdóms (hemorrhage due to hereditary
cystatin C amyloid angiopathy) voru útilokaðir
frá rannsókninni.
Lýst er aldursdreifingu hópsins, einkennum,
áhættuþáttum, dánarhlutfalli (case-fatality),
legutíma og afdrifum við útskrift. Algengi mál-
stols, meðvitundarskerðingar og lömunar í út-
limum hefur verið notað til að bera saman
alvarleika einkenna hjá hópum heilablóðfalls-
sjúklinga. Þessi einkenni voru sérstaklega at-
huguð í rannsóknarhópnum.
Til að varpa ljósi á hver hlutdeild heilablóð-
fallseiningar í meðferð heilablóðfallssjúklinga
hefði mest getað orðið voru kannaðar ástæður
þess að sjúklingar lögðust ekki inn á heilablóð-
fallseiningu.
Tölfræðileg marktækni var reiknuð út með t-
prófi (Student's t-test) og kíkvaðrats-prófi.
Upplýsingar voru tölvuskráðar með leyfi
tölvunefndar.
Niðurstöður
Árin 1996-1997 greindist heilablóðfall 377
sinnum hjá 359 einstaklingum á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. Einn sjúklingur fékk heilablóðfall
þrisvar, 16 tvisvar og 342 fengu heilablóðfall