Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 91
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
579
Fimmta þing norrænna
læknisfræðibókavarða
Norrænir læknisbókaverðir halda fimmta þing sitt í Viðskiptaháskólanum í Reykjavík, í júní-
byrjun, í fyrsta sinn á íslandi. Meðal fyrirlesara er prófessor Ronald E. LaPorte, Department
of Epidemiology WHO Collaborating Center for Diabetes Registries, Disease Monitoring &
Telecommunications. Hann nefnir erindi sitt: „The death and metamorphosis of biomedical
joumals". Erindið er á dagskrá fimmtudaginn 3. júní 1999 kl. 10:45 og mun fjalla um rafræn
tímarit, meðal annars aðgengi og notagildi, rétt greinarhöfunda gagnvart útgefendum og
hvaða áhrif vísindamenn geta haft á þróun rafrænna tímarita á netinu.
Fræðslustofnun læknafélaganna styrkir komu LaPorte og er það von okkar að læknar komi
og hlusti á erindi hans og annarra sem eru á dagskránni þennan morgun.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Sigtryggsdóttir Krabbameinsfélagi íslands, netfang:
sigsigtr@ krabb.is
Fræðslustofnun lækna
Námskeið í stjórnun
Með áherslu á hagfræði, rekstur og fjármálastjórn
Verður haldið á haustmisseri 1999.
Kenntverðureftirfarandiföstudagaog laugardaga: 17. og 18. september, 1., 2., 15., 16., 29.
og 30. október, 12., 13., 26. og 27. nóvember. Alls 88 kennslustundir.
Efni:
Hagfræði (grunnatriði), 16 kennslustundir: Kristján Jóhannsson lektor í vipskipta- og
hagfræðideild HÍ
Heilsuhagfræði, 12 kennslustundir: auglýst síðar
Fjármálastjórnun, 40 kennslustundir: Kristján Jóhannsson
Stjórnun, áætlun, skipulag, 20 kennslustundir: Hafsteinn Bragason vinnu- og skipu-
lagssálfræðingur
Gera verður ráð fyrir heimanámi og lýkur námskeiðinu með prófi.
Námskeiðið er metið til jafns við fimm einingar í háskólanámi.
Skráning hjá Margréti Aðalsteinsdóttur á skrifstofu Læknafélags íslands í síma 564 4100.
Verð: Kr. 45.000.
Námskeiðið er ætlað öllum læknum sem áhuga hafa á stjórnun en forgang hafa læknar í
stjórnunarstöðum og þeir sem lokið hafa grunnnámskeiði í stjórnun og rekstri sem haldið
var á vegum Fræðslustofnunar lækna síðastliðið haust.
í undirbúningsnefnd eru: Guðjón Magnússon, Jóhannes M. Gunnarsson, Kristján Jóhanns-
son, Ludvig A. Guðmundsson, Stefán B. Matthíasson og Sveinn Magnússon.