Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1999, Síða 78

Læknablaðið - 15.06.1999, Síða 78
DIOVAN Einföld og áhrifarík blóðþrýstingsmeðferð. Nýr angíótensín II hemill. Thorarensen Lyf Vainagarðar 18 104 Rcykjavik Simi 530 7100 DIOVAN VALSARTAN Eiginleikar: Angíótensín II binst sérhæfðum viðtökum sem eru staðsettir í frumuhimnum í ýmsum vefjum. Vegna sterkra æðaþren&jandi áhrifa hefur angíótensín II bein áhrif á blóðþrýsting og stuðlar að auki að minnkun natríum útskilnaðar og örvun á aldósterón seytingu. Díóvan er sterkur og sérhæfður angíótensín II viðtaka blokkari sem er virkur við inntöku. Hjá flestum sjúklingum eftir gjöf eins skammts, koma áhrif á blóðþrýsting fram á innan við 2 klukkustundum og hámarkslækkun blóðþrýstings næst innan 4-6 klukkustunda. Áhrifin vara í meira en 24 klukkustundir eftir inntöku. Við endurtekna lyfjagjöf næst hámarkslækkun blóðþrýstings, með hvaða skammtUem er, yfirleitt innan 2-4 vikna og er viðhaldið með langtímameðferð. Ef Diovan er gefið samhliða hýdróklórtíasíði fæst marktæk umframlækkun á blóðþrýstingi. Ábendingar: Hækkaður blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga.Alvarleg lifrarbilun, skorpulifur og gallteppa. Alvarlega skertnýmastarfsemi (kreatínklerans < 10 ml/mín) og sjúklingar í blóðskilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er reynsla af notkun Diovan hjá bamshafandi konum, en eins og fyrir önnur lyf sem hafa áhrif á renín-angíótensín-aldósterón kerfið, ætti ekki að nota Diovan á meðgöngu. Ef þungun verður á meðan á meðferð stendur skal hætta Diovan meðferð eins fljótt og hægt er. Ekki er ráðlagt að konur með bam á brjósti noti Diovan.Varúö: Natríumskort og/eða minnkað blóðrúmmál á að leiðrétta áður en meðferð er hafin með Diovan - t.d. með því að minnka skammta af þvagræsilyfjum. Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með nýmaslagæðaþröng báðu megin eða með þrengingar tila annars nýrans, ósæðar- eða míturlokuþrengsli eða hjartavöðvakvilla með þrengingu, alvarlega hjartabilun eða vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu. Ekki ætti að meðhöndla sjúklinga með aldósterónheilkenni með Diovan þar sem sjúkdómurinn hefur áhrif á renín-angíótensín kerfið. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir hafa komið fram ísamanburðarrannsóknum þar sem lyfleysa var notuð og sjúklingamir meðhöndlaðir með Diovan. Tíðni aukaverkana var sambærileg við það sem kom fram með lyfleysu. Algengar (>1 %): Höfuðverkur, svimi, veirusýkingar, sýkingar í efri öndunarvegi, hósti, niðurgangur, þreyta, nefslímubólga, skútabólga, bakverkir, kviðverkir, ógleði, kokbólga, liðverkir, hlutleysiskymingafæð (neutropenia). Sjaldgæfar (<1%): Liðbólgur, þróttleysi (asthenia), támbólga, blóðnasir, þunglyndi, maga- og gamabólga, krampar í fótum, vöðvakrampar, vöðvajirautir, taugahvot (neuralgia), svefnleysi, svimi. Mjög sjaldgæfar: Lækkun á hemóglóbíni og hematókrít og hækkun á lifrargildum. Lýst hefur verið einu tilfelli af ofsabjúg (angioedema). Milliverkanir: Samtímis notkun kalíumuppbótar, kalíumsparandi þvagræsilyfja, saltuppbótar sem inniheldur kalíum eða annarra lyfja sem geta aukið kalíumþéttni (heparín o.s.f.v.) ætti að nota með mikilli varúð og með tíðum mælingum á kalíum. Auka má áhrifin á háþrýsting með því að gefa önnur há þrýstingslyf samtímis. Við samtímis notkun Diovan og litíumsalta er ráðlagt að mæla styrk litíums í blóði. Ofskömmtun: Enn er engin reynsla komin á ofskömmtun af Diovan. Helsta einkenni ofskömmtunar gæti verið áberandi lágþrýstingur með svima. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ráðlagður skammtur af Diovan er 80 mg einu sinni á dag. Auka má skammtinn í 160 mg einu sinni á dag. Diovan á að taka með vökva, en má taka óháð máltíðum. Diovan má einnig gefa með öðrum blóðþrýstingslyfjum. Samtímis gjöf þvagræsilyfja, svo sem hýdróklórtíasíð mun lækka blóðþrýsting enn meira hjá þessum sjúklingum. Ekki þarf að aðlaga skammta sérstaklega fyrir sjúklinga með skerta nýmastarfsemi (kreatínklerans > 10 ml/mín). Hjá sjúklingum með vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu ætti skammtur af valsartan ekki að fara yfir 80 mg. Skammtastærðir handa börnum: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Diovan hjá bömum Pakkningar og verö: Töflur 80 mg:28 stk. (þynnupakkað) 3.416 kr., 98 stk. (þynnupakkað) 9.842 kr. th NOVARTIS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.