Læknablaðið - 15.06.1999, Page 78
DIOVAN
Einföld og áhrifarík
blóðþrýstingsmeðferð.
Nýr angíótensín II hemill.
Thorarensen Lyf
Vainagarðar 18 104 Rcykjavik Simi 530 7100
DIOVAN
VALSARTAN
Eiginleikar: Angíótensín II binst sérhæfðum viðtökum sem eru staðsettir í frumuhimnum í ýmsum vefjum. Vegna sterkra æðaþren&jandi áhrifa hefur angíótensín II
bein áhrif á blóðþrýsting og stuðlar að auki að minnkun natríum útskilnaðar og örvun á aldósterón seytingu. Díóvan er sterkur og sérhæfður angíótensín II viðtaka
blokkari sem er virkur við inntöku. Hjá flestum sjúklingum eftir gjöf eins skammts, koma áhrif á blóðþrýsting fram á innan við 2 klukkustundum og hámarkslækkun
blóðþrýstings næst innan 4-6 klukkustunda. Áhrifin vara í meira en 24 klukkustundir eftir inntöku. Við endurtekna lyfjagjöf næst hámarkslækkun blóðþrýstings, með
hvaða skammtUem er, yfirleitt innan 2-4 vikna og er viðhaldið með langtímameðferð. Ef Diovan er gefið samhliða hýdróklórtíasíði fæst marktæk umframlækkun á
blóðþrýstingi. Ábendingar: Hækkaður blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga.Alvarleg lifrarbilun, skorpulifur
og gallteppa. Alvarlega skertnýmastarfsemi (kreatínklerans < 10 ml/mín) og sjúklingar í blóðskilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er reynsla af notkun Diovan
hjá bamshafandi konum, en eins og fyrir önnur lyf sem hafa áhrif á renín-angíótensín-aldósterón kerfið, ætti ekki að nota Diovan á meðgöngu. Ef þungun verður á
meðan á meðferð stendur skal hætta Diovan meðferð eins fljótt og hægt er. Ekki er ráðlagt að konur með bam á brjósti noti Diovan.Varúö: Natríumskort og/eða
minnkað blóðrúmmál á að leiðrétta áður en meðferð er hafin með Diovan - t.d. með því að minnka skammta af þvagræsilyfjum. Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins
hjá sjúklingum með nýmaslagæðaþröng báðu megin eða með þrengingar tila annars nýrans, ósæðar- eða míturlokuþrengsli eða hjartavöðvakvilla með þrengingu,
alvarlega hjartabilun eða vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu. Ekki ætti að meðhöndla sjúklinga með aldósterónheilkenni með Diovan þar sem
sjúkdómurinn hefur áhrif á renín-angíótensín kerfið. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir hafa komið fram ísamanburðarrannsóknum þar sem lyfleysa var notuð
og sjúklingamir meðhöndlaðir með Diovan. Tíðni aukaverkana var sambærileg við það sem kom fram með lyfleysu. Algengar (>1 %): Höfuðverkur, svimi, veirusýkingar,
sýkingar í efri öndunarvegi, hósti, niðurgangur, þreyta, nefslímubólga, skútabólga, bakverkir, kviðverkir, ógleði, kokbólga, liðverkir, hlutleysiskymingafæð (neutropenia).
Sjaldgæfar (<1%): Liðbólgur, þróttleysi (asthenia), támbólga, blóðnasir, þunglyndi, maga- og gamabólga, krampar í fótum, vöðvakrampar, vöðvajirautir, taugahvot
(neuralgia), svefnleysi, svimi. Mjög sjaldgæfar: Lækkun á hemóglóbíni og hematókrít og hækkun á lifrargildum. Lýst hefur verið einu tilfelli af ofsabjúg (angioedema).
Milliverkanir: Samtímis notkun kalíumuppbótar, kalíumsparandi þvagræsilyfja, saltuppbótar sem inniheldur kalíum eða annarra lyfja sem geta aukið kalíumþéttni
(heparín o.s.f.v.) ætti að nota með mikilli varúð og með tíðum mælingum á kalíum. Auka má áhrifin á háþrýsting með því að gefa önnur há þrýstingslyf samtímis.
Við samtímis notkun Diovan og litíumsalta er ráðlagt að mæla styrk litíums í blóði. Ofskömmtun: Enn er engin reynsla komin á ofskömmtun af Diovan. Helsta
einkenni ofskömmtunar gæti verið áberandi lágþrýstingur með svima. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ráðlagður skammtur af Diovan er 80 mg einu sinni á
dag. Auka má skammtinn í 160 mg einu sinni á dag. Diovan á að taka með vökva, en má taka óháð máltíðum. Diovan má einnig gefa með öðrum blóðþrýstingslyfjum.
Samtímis gjöf þvagræsilyfja, svo sem hýdróklórtíasíð mun lækka blóðþrýsting enn meira hjá þessum sjúklingum. Ekki þarf að aðlaga skammta sérstaklega fyrir
sjúklinga með skerta nýmastarfsemi (kreatínklerans > 10 ml/mín). Hjá sjúklingum með vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu ætti skammtur af valsartan
ekki að fara yfir 80 mg. Skammtastærðir handa börnum: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Diovan hjá bömum Pakkningar og verö: Töflur 80 mg:28
stk. (þynnupakkað) 3.416 kr., 98 stk. (þynnupakkað) 9.842 kr.
th NOVARTIS