Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
547
sem flytja á í gagnagrunninn
(2).
2.1. Staða lcekna vegna
samninga heilbrigðisstofnana
við rekstrarleyfishafa
Gagnagrunnslögin segja
ekki til um hvaða aðili fyrir
hönd heilbrigðisstofnunar
ákveður hvort samið verður
við rekstrarleyfishafa. Liggur
beint við að telja að sú
ákvörðun sé í höndum stjórnar
stofnunar. Lögin áskilja að
heilbrigðisstofnun hafi sam-
ráð við læknaráð og faglega
stjórnendur áður en ákvörðun
er tekin. Með faglegum stjórn-
endum er væntanlega átt við
framkvæmdastjóra (forstjóra),
yfirlækni (lækningaforstjóra)
og hjúkrunarforstjóra (3).
Hvað felst í samráði? Sam-
kvæmt íslenskri orðabók þýðir
samráð sameiginleg ráðagerð
(4). Því mætti ætla að stjóm
heilbrigðisstofnunar megi
ekki taka ákvörðun í þessu
efni í andstöðu við sjónarmið
læknaráðs eða faglegra
stjómenda. Slík ályktun verð-
ur þó ekki dregin af þessu
orðalagi og væri í andstöðu
við venju um túlkun á því.
Skylda til samráðs tekur
ákvörðunarvaldið ekki frá
ákvörðunaraðila. Stjórn heil-
brigðisstofnunar er því heimilt
að semja við rekstrarleyfis-
hafa, jafnvel þótt samráð við
læknaráð og faglega stjórn-
endur leiði í ljós andstöðu
þeirra við gerð slíks samnings.
2.2. Samningar lœkna og
annarra sjálfstætt starfandi
heilbrigðisstarfsmanna við
rekstrarleyfishafa
Gagnagrunnslögin skil-
greina ekki hvað átt er við
með hugtakinu sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfs-
maður. Hugtakið heilbrigðis-
starfsmaður er skilgreint í lög-
um um réttindi sjúklinga og
merkir einstakling sem starfar
í heilbrigðisþjónustu og hlotið
hefur löggildingu heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra til
slíkra starfa. í ljósi samhengis
og venjulegrar málnotkunar
má ætla að þegar gagnagrunns-
lögin vísa til sjálfstætt starf-
andi heilbrigðisstarfsmanns sé
átt við einstakling sem hlotið
hefur löggildingu heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra og
sem starfar sjálfstætt, til dæm-
is á eigin starfsstofu og sem
heldur sjúkraskrá um sjúk-
linga.
Af ákvæðum gagnagrunns-
laganna má ráða að sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfs-
menn ákveði einir hvort þeir
semja við rekstrarleyfishafa
um afhendingu upplýsinga úr
sjúkraskrám.
2.3. Staða sjúklings ef
vörsluaðilar sjúkraskráa
ákveða að semja ekki við
rekstra rleyfishafa
í nefndaráliti heilbrigðis-
og trygginganefndar Alþingis
segir um þetta efni:
Þá getur sjúklingur ákveðið
þátttöku í gagnagrunninum
þótt heilbrigðisstofnun eða
sjálfstœtt starfandi heilbrigð-
isstarfsmaður sem varðveitir
sjúkraskrá hans semji ekki um
flutning upplýsinga í gagna-
grunninn (5).
Varaformaður heilbrigðis-
og trygginganefndar Alþingis
ítrekaði þessa túlkun í fram-
söguræðu með breytingartil-
lögum meirihluta nefndarinn-
ar og bætti við að með þessu
væri skýrt að réttur sjúklings
væri meiri en læknis hvað
varðaði þátttöku í grunninum.
Að þessu er og vikið í upp-
lýsingabæklingi landlæknis-
embættis um gagnagrunninn
(6). Þar er spurt hvemig fólk
geti komið því til leiðar að
upplýsingar um það fari í
gagnagrunninn. Spumingunni
er svarað svo í bæklingnum:
Lögin gera ráð fyrir því að
upplýsingar um alla sem ekki
hafna þátttöku verði fcerðar í
gagnagrunninn, með öðrum
orðum að þögn sé sama og
samþykki (svonefnt œtlað
samþykki).
Af svarinu mætti ráða að í
þessu efni eigi vörsluaðili
engan annan kost en að semja
um vinnslu upplýsinga úr
sjúkraskrám þeirra sem ekki
segja sig úr gagnagrunni. Svo
er þó ekki, eins og áður hefur
verið vikið að.
Gagnagrunnslögin gera
einnig ráð fyrir því að starfs-
menn vörsluaðila sjúkraskráa
vinni upplýsingamar úr sjúkra-
skránum. Ef vörsluaðili semur
ekki við rekstrarleyfishafa
verða engir starfsmenn á hans
vegum í þessu verkefni. Túlk-
un framsögumanns meirihluta
heilbrigðis- og trygginga-
nefndar og svar í bæklingi
landlæknis samrýmist ekki
skýru orðalagi gagnagrunns-
laganna í þessu efni. Ætla
verður þó að sjálfstætt starf-
andi heilbrigðisstarfsmenn
muni taka tillit til vilja sjúk-
linga, samanber það sem á eft-
ir er rakið.
2.4. Hvaða sjónarmið eiga
lceknar að leggja til grund-
vallar ákvörðun um hvort þeir
semja við rekstrarleyfishafa?
Hvað á læknir að gera þegar
rekstrarleyfishafi leitar eftir
samningi við hann um afhend-
ingu upplýsinga úr sjúkra-
skrám í vörslu hans? Ákvörð-
unin er hans og samkvæmt
gagnagrunnslögunum þarf
hann ekki að hafa samráð við
neinn.