Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 66

Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 66
558 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Konurnar breyta starfínu í annarri framtíðarskýrsl- unni er staldrað við þær breyt- ingar sem eru að verða á kynjahlutföllum í læknastétt. I Danmörku eru konur orðnar rúmlega 30% af læknastétt- inni og sú tala á eftir að hækka verulega á næstu árum. Þann- ig voru konur 64% af nýút- skrifuðum læknum vorið 1997. Eins og Sveinn Magnússon nefndi í fyrstu greininni um læknaskortinn má slá því föstu að aukinn fjöldi kvenna í læknastétt muni breyta lækn- isstarfinu frá því sem verið hefur. Konur sætta sig ekki við þau starfskjör sem læknar af karlkyni hafa látið sér lynda og er þar átt við langar og strangar vaktir, langan vinnu- tíma og ósveigjanlegar kröfur um viðveru. Þær vilja geta Sigurður Guðmundsson land- lœknir segir breytta verkaskipt- ingu heilbrigðisstétta bera á góma í umrœðum manna á meðal. sameinað starfið lífi fjölskyld- unnar og eru jafnvel reiðubún- ar að fórna einhverju af starfs- framanum til þess að ná því markmiði. Fjölgun kvenna í læknastétt er því líkleg til þess að stuðla að manneskjulegra starfsumhverfi á sjúkrahúsum. Norskar framtíðarspár í fyrstu greininni um læknaskortinn var vitnað til greina eftir tvo norska lækna (3) þar sem þeir gerðu tilraun til að tlokka læknaskortinn niður í fjóra undirflokka. Þeir reyndu líka að spá í framtíðina og drógu upp mynd af hugs- anlegri þróun heilbrigðisþjón- ustunnar í fjórum ímynduðum læknishéruðum. Þar er ýmis- legt forvitnilegt að finna en forvitnilegast er að lesa um hina jákvæðu þróun í Gleði- fjarðarfylki eins og henni er lýst frá sjónahóli ársins 2010. í þessu fylki hafa sveitarfé- lög sameinast um rekstur „heilbrigðismiðstöðva“ sem íft3 Cipramil * -einstæðir eiginleikar TÖFLUR; N 06 AB 04 Hver tafla inniheldur: Citalopramum INN, hýdróbrómíð, samsvarandi Citalopram- um INN 10 mg, 20 mg eða 40 mg. Eiginleikar: Cítalópram er tvíhringlaga ftalen-afleiða og er virkt gegn þunglyndi. Verkunarháttur lyfsins er vegna sértækrar hindrunar á upptöku serótóníns í heila. Lyfið hefur engin áhrif á endurupptöku noradrenalíns, dópamíns eða GABA. Lyfiðog umbrotsefni þess hafa því enga anddópamín-, andadren-, andserótónín-, og and- histamínvirka eða andkólínvirka eiginleika. Jafnvel við langtíma notkun hefur lyfð engin áhrif á fjölda viðtaka fyrir boðefni í miðtaugakerfi. Aðgengi eftir inntöku er yfir 80%. Hámarksblóðþéttni næst eftir 1-6 klst. Stöðug blóðþéttni næst eftir 1-2 vik- ur. Próteinbinding er um 80%. Dreifingarrúmmál er u.þ.b. 14 l/kg. Lyfið umbrotn- ar áður en það útskilst; um 30% í þvagi. Umbrotsefni hafa svipaða en vægari verk- un en cítalópram. Helmingunartími er um 36 klst. en er lengri hjá öldruðum. Lyfð hefur hvorki áhrif á leiðslukerfi hjartans né blóðþrýsting og eykur ekki áhrif alkó- hóls. Lyfið hefur væga róandi verkun. Ábendingar: Þunglyndi. Felmturköst með eða án víðáttufælni (panic disorder with or without agrophobia). Frábendingar: Engar þekktar. Varnð: Gæta skal vaniðar við gjöf lyfsins við skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkunin er ógleði allt að 7%. Algengar (> 1%): Almennar: Höfuðverkur, sviti, þreyta, slen, titringur, breytingar á þyngd og svimi. Æðakerfi: Þungur hjartsláttur. Miðtaugakerfi: Svefntruflanir, skyn- truflanir og órói. Meltingarfæri: Ógleði, breytingará hægðavenjum, meltingaróþæg- indi og þurrkur í munni. Þvagfæri: Erfiðleikar við að tæma þvagblöðru. Augu: Sjónstill- ingarerfiðleikar. Sjaldgæfar (0,1%-1%): Almennar: Almenn lasleikatilfinning. Geispar. Miðtauga- kerfi: Æsingur, rugl, erfiðleikar við einbeitingu, minnkuð kynhvöt og truflun á sáðláti. Meltingarfæri: Aukið munnvatnsrennsli. Húð: Útbrot. Öndunarfæri: Nefstífla. Augu: Stækkað Ijósop. Mjög sjaldgæfar (< 0,1%): Miðtaugakerfi: Mania. Aukaverkanir eru oft tímabundnar og ganga yfir enda þótt meðferð sé haldið áfram. Milliverkanir: Varast ber samtímis gjöf MAO-hemla og skulu að minnsta kosti líða 14 sólarhringar á milli þess að þessi tvö lyf séu gefin nema MAO-hemill hafi mjög skamman helmingunartíma. Lyfið hefur mjög væg hamlandi áhrif á cýtókróm P450-kerfiðL Meðganga og brjóstagjöf: Reynsla af gjöf lyfsins hjá barnshafandi konum er mjög takmörkuð, en dýratilraunir benda ekki til fósturskemmandi áhrifa. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk en í dýratilraunum hefur lítið magn lyfsins fund- ist í mjólk. Skammtastærðir handa fullorðnum: Lyfið ergefið einu sinni á dag, en skammtar eru breytilegir. Þunglyndi: Upphafsskammtur er 20 mg á dag, en má auka í 40 mg á dag, ef þörf krefur. Ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. Hjá sjúklingum eldri en 65 ára er ráðlagður skammtur helmingur ofangreindra skammta þ.e. 10 - 30 mg á dag, að hámarki 40 mg á dag. Mikilvægt er að gefa lyfið a.m.k. í 2-3 vikur áður en árangur meðferðarinnar er metinn. Meðferðarlengd 4-6 mánuðir eftir svörun sjúkl- ings. Felmturköst: Lágir skammtar eru notaðir í upphafi meðferðarvið felmturköstum til að draga úr líkum á versnun sjúkdómsins. Ráðlagður upphafsskammtur er þannig 10 mg á dag. Eftir einnar viku meðferð er skammturinn aukinn í 20 mg á dag. Venjulegur viðhaldsskammtur er 20-30 mg á dag. Ef svörun er ófullnægjandi má auka skammtinn en ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. Viðmeð- ferð á felmturköstum nær árangur hámarki eftir u.þ.b. 3 mánuði og er viðvarandi við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakkningar og hámarksverð frá apótekum í maí 1999: Töflur 10 mg: 28 stk. (þynnupakkað) - 2.607-, 100 stk. (glas) - 7.446-. Töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakk- að) - 4.362-, 56 stk. (þynnupakkað) - 7,798-, 100 stk. (glas) - 13.144.Töflur 40 mg: 28 stk. (þynnupakkað) - 7.359-, 56 stk. (þynnupakkað) - 13.607-, 100 stk. (glas) - 23.306-. Hámarksmagn sem má ávísa er sem svarar 30 daga skammti. Samþykktur sérlyfjaskrártexti dags. 4. september 1998. Markaðsleyfishafi: Lundbeck, Danmörku Umboð á íslandi: Austurbakki hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.