Læknablaðið - 15.06.1999, Síða 70
562
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
varúðar, bæði vegna sjálfs sín
og annarra sem koma að henni
til aðstoðar. Við þurfum líka
að geta bjargað okkur út úr
þyrlunni ef eitthvað kemur
fyrir.
Hins vegar er það þjálfun í
læknisstörfum og umönnun
sjúklinga um borð í vélinni en
hún er mjög frábrugðin því
sem er á spítölum. Okkur
vantar mörg af helstu hjálpar-
tækjum okkar, svo sem hlust-
pípu og gott vinnuljós. Maður
er að vinna í miklum hávaða
og titringi og oft í lélegri lýs-
ingu svo maður verður að
reiða sig á rafræn hjálpartæki
og mjög náið eftirlit með
lífsmörkum sjúklings."
- Hvemig er þyrlan útbúin?
„Við erum ánægðir með út-
búnaðinn sem er vel saman
settur. Við erum hins vegar oft
Æfingaflug undirbúið, Hafsteinn
Hreiðarsson flugstjóri til vinstri
og Magiti Óskarsson stýrimaður
og leiðangursstjóri hlýða Tómasi
Vilhjálmssyni yfir ferðaáœtlunina
en Tómas er að lœra að stjórna
spil TF-LÍF.
Og á neðri myndinni krýpur
Tómas í dyrum þyrlunnar og
leiðbeinir flugmönnunum að
bíldekki sem hanit œtlar að láta
lóðabelg síga ofan í.
stjórnar spilinu ef síga þarf
eftir sjúklingi.
„Það eru tveir menn í
áhöfninni sem geta farið niður
með spilinu því auk stýri-
mannsins fáum við læknarnir
reglulega þjálfun í sigi eftir
ákveðinni áætlun. Við getum
farið niður í fjalllendi og einn-
ig niður í skip en það gerist
orðið mjög sjaldan. Stýri-
mennirnir eru orðnir það vel
þjálfaðir í sjúkraflutningum
að þeir geta í flestum tilvikum
farið niður og búið um slasaða
menn ef á þarf að halda.“
Starfsskilyrðin gerólík
Starfið um borð í þyrlu
hlýtur að vera allfrábrugðið
því að ganga vaktir á venju-
legri sjúkrahúsdeild.
„Já, þetta er injög ólíkt því.
Útköllin eru líka afskaplega
mismunandi. Allt frá því að
aðstoða áhöfnina við björgun-
arstörf þar sem enginn er slas-
aður upp í það að vera flutn-
ingur á mjög veikum eða slös-
uðum sjúklingum, jafnvel
mörgum í einu. Við höfum
tekið upp í fjóra menn sam-
tímis í vélina.
Áður en læknir hefur störf á
þyrluvaktinni þarf hann að
ganga í gegnum ansi stífa
þjálfun þar sem höfuðáherslan
er annars vegar lögð á um-
gengni við þyrluna sem er
mjög varasöm þegar hún er í
gangi. Þar þarf að gæta fyllstu
Utbúnaður
TF-LÍF
TF-LÍF er af gerðinni
Aerospatiale Super Puma og
er með fullkominn búnað til
sérhæfðrar hjálpar og endur-
lífgunar. Viðbragðstími frá
útkalli er að meðaltali 30
mínútur. Meðal tækja um
borð eru:
• Hjartarafsjá (lifepack 10)
• Ytri gangráður
• Propaq vaktari af full-
komnustu gerð
• Öndunarvél
• Sog
• Brjóstholsskeri
• 37°C heitur vökvi í æð
Auk þess ýmis annar bún-
aður: spelkur, hálskragar,
KED bakspelkur, bakbretti
fyrir börn, fullkominn lyfja-
kassi og hitakassi fyrir ný-
buraflutninga.