Læknablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 93
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
581
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
Geðsvið
Deildarlæknar
Lausar eru til umsóknar þrjár stöður deildarlækna við geðsvið Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Stöðurnar veitast frá 1. júlí eða síðar eftir samkomulagi. Tvær stöðurnar eru við bráðamót-
tökudeild A-2 og ein við dagdeildir geðsviðs á Hvítabandi.
Vaktir (staðarvaktir) eru við bráðaþjónustu- og móttökudeild. Um er að ræða fjölbreytt störf
við greiningu, meðferð og endurhæfingu. Ráðning í heilsársstöðu gefur möguleika á þátt-
töku í hópmeðferðardeild þar sem um er að ræða langtíma innsæismeðferð.
Ýmsir möguleikar eru á rannsóknarverkefnum og góð fræðsla er í boði. Stöðurnar leggja
góðan grunn að framhaldsnámi í ýmsum greinum læknisfræðinnar, en einnig góðar til við-
haldsmenntunar reyndra lækna eða fyrir þá, sem eru að koma heim úr sérnámi.
Allar frekari upplýsingar gefa Halldór Kolbeinsson forstöðulæknir geðsviðs Sjúkrahúss
Reykjavíkur, Ásgeir Karlsson yfirlæknir og Ingvar Kristjánsson sérfræðingur hópmeðferðar-
deild.
Skriflegar umsóknir berist Halldóri Kolbeinssyni forstöðulækni geðsviðs Sjúkrahúss Reykja-
víkurfyrir 15. júní næstkomandi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum fjámálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
Svæfingalæknir
Laus er til umsóknar staða sérfræðings við svæfinga- og gjörgæsludeild. Umsækjandi skal
hafa fullgild réttindi í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði. Starfinu fylgir vaktaskylda og
þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta.
Góð vinnuaðstaða og tækjakostur er á svæfinga- og gjörgæsludeild og framkvæmdar eru
3500 skurðaðgerðir á ári að meðaltali. Deildin veitir einnig þjónustu við verkjameðferð við
fæðingar og vegna langvarandi verkja.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum sjúkrahúslækna. Nánari upplýsingar gefur
Girish Hirlekar yfirlæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar í síma 463 0100.
Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil, fyrri störf, reynslu í kennslu og vísindastörfum,
sendist á þar til gerðum eyðublöðum í tvíriti til Þorvaldar Ingvarssonar framkvæmdastjóra
lækninga, netfang thi@fsa.is fyrir 1. júní næstkomandi.