Læknablaðið - 15.06.1999, Qupperneq 103
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
591
Félag friðargæsluliða á íslandi (FFÍ)
Allmargir íslendingar hafa á undanförnum
áratugum tengst friðargæslu Sameinuðu þjóð-
anna á ýmsan hátt og á síðustu árum sambæri-
legu starfi á vegum NATO og ÖSE. Felstir hafa
starfað við heilbrigðisþjónustu eða löggæslu.
Félag friðargæsluliða á Islandi var stofnað
22. janúar 1999. Tilgangur félagsins er að:
• Efla kynni þeirra, sem hafa gegnt friðar-
gæslu eða sambærilegum störfum.
• Kynna friðargæslu og friðarstörf og vera til
ráðgjafar um þessi mál.
• Gæta hagsmuna þeirra, sem gegna eða hafa
gegnt friðargæslu eða sambærilegum störf-
um.
• Vinna með sambærilegum erlendum félög-
um.
Fyrsti aðalfundur félagsins var haldinn 27.
mars 1999. í stjórn voru kjörnir:
Formaður: Halldór Baldursson læknir, sími
552 1124, netfang, halldorba@isholf.is
Varaformaður: Björn Halldórsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn, netfang, bh@rls.is
Ritari: Stefán Alfreðsson, hjúkrunarfræðing-
ur, netfang stalf@isholf.is
Gjaldkeri: Erla K. Sigurgeirsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur, sími 561 1345
Meðstjórnandi: Lars Hólm, sími 557 2710
Þeim læknum, sem íhuga að fara til friðar-
gæslustarfa, er eindregið bent á að hafa sam-
band við einhvern stjórnarmeðlim Félags frið-
argæsluliða á Islandi. Félagið getur á ýmsan
hátt liðsinnt friðargæsluliðum og fjölskyldum
þeirra áður en starfið hefst, meðan friðargæslu-
liðar eru erlendis og eftir heimkomuna.
Fréttatilkynning
Eiginleikar: Verkunarháttur: Formóteról er öflugur sértækur
[jyÍq* beta2-örvi sem veldur slökun á sléttum vöðvum í berkjum.
Formóteról hefur þess vegna berkjuvíkkandi áhrif hjá
fö)=Wl!frlk)H iihfllpr* siúklin9um meú tímabundna þrengingu í öndunarvegum.
llUiryUÍIUId Berkjuvíkkun hefst fljótt, innan 1-3 mín. eftir innúðun og
verkunarlengd er að meðaltali 12 klst. eftir einn skammt. Lyfjahvörf: Frásog: Innúðað
formóteról frásogast hratt. Hámarksþéttni í plasma næst um 15 mín. eftir innúðun. í
rannsóknum hefur komið fram að meðalmagn af formóteróli sem berst til lungna eftir
innúðun með Turbuhaler-tæki er um 21-37% af mældum skammti. Heildaraðgengi
(sýstemískt) fyrir það magn sem berst til lungna er um 46%. Dreifing og umbrot Plasma-
próteinbinding er um 50%. Formóteról er umbrotið með beinni glúkúróníðtengingu og 0-
afmetýleringu. Ensímið sem veldur O-afmetýleringu hefur ekki verið greint. Heildar-
plasmaklerans og dreifingarrúmmál hafa ekki verið ákvörðuð. Útskilnaður: Formóteról
skilst að mestu leiti út sem umbrotsefni. Eftir innúðun, útskilst 6-10% af gefnum skammti í
þvagi á óbreyttu formi. Um 20% af skammti gefnum í æð skilst út í þvagi á óbreyttu formi.
Lokahelmingunartími eftir innúðun er áætlaður 8 klst. Ábendingar: Einkenni um
berkjuþrengingu hjá sjúklingum með astma. Oxis Turbuhaler má gefa til að lina berkju-
þrengingu þegar meðferð með barksterum hefur ekki reynst árangursrík. Frábendingar:
Ofnæmi fyrir formóteróli. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla er af notkun
lyfsins hjá konum á meðgöngutíma. í dýrarannsóknum á formóteróli hefur það valdið
fylgjulosi sem og dregið úr lífslíkum nýbura og fæðingarþyngd. Þessi áhrif komu fram við
talsvert hærri þéttni lyfsins en fást við klíníska notkun Oxis Turbuhaler. Þar til frekari
upplýsingar liggja fyrir skal einungis nota Oxis Turbuhaler á meðgöngutíma að vel íhuguðu
máli. Ekki er vitað hvort formóteról berst í brjóstamjólk kvenna. Oxis Tubuhaler skal því
ekki gefa konum með barn á brjósti. Formóteról hefur fundist í litlu mæli í mjólk rotta.
Varúð: Astma-sjúklingar, sem þurfa meðferð með beta2-örva, ættu einnig að fá hæfilega
bólgueyðandi meðferð með barksterum. Sjúklingum skal ráðlagt að taka áfram bólgu-
eyðandi lyf eftir að meðferð með Oxis Turbuhaler er hafin, jafnvel þó að dragi úr
einkennum. Ef einkennin hverfa ekki, eða ef auka þarf skammta af beta2-örvum, bendir
það til þess að sjúkdómurinn sé að versna og að endurmeta skuli astmameðferðina.
Hvorki skal hefja meðferð né auka skammta við versnun sjúkdóms. Gæta skal varúðar hjá
sjúklingum með skjaldvakaóhóf (thyrotoxicosis) eða alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma
eins og blóðþurrðar hjartasjúkdóma (ischemic heart diseases), hraðsláttarglöp
(tachyarrhythmias) og alvarlega hjartabilun. í byrjun er mælt með tíðari blóðsykurs-
mælingum hjá sykursjúkum vegna hættu á blóðsykurshækkun af völdum beta2-örva.
Alvarleg kalíumþurrð getur orðið við beta2-örva meðferð. Sérstakrar varúðar skal gæta
hjá sjúklingum með bráðan alvarlegan astma, þar sem sú hætta sem er til staðar getur
aukist við súrefnisskort (hypoxia). Kalíumþurrð getur aukist við samtímis meðferð með
xantínafleiðum, sterum og þvagræsilyfjum. Þess vegna skal fylgjast með kalíumgildum í
sermi. Oxis Turbuhaler inniheldur 450 ng af mjókursykri í hverjum skammti. Þetta magn
hefur venjulega ekki í för með sér hættu fyrir sjúklinga með mjólkursykuróþol. Engin gögn
eru fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Áhrif skertrar lifrar- eða
nýrnastarfsemi á lyfjahvörf formóteróls og lyfjahvörf hjá öldruðum eru óþekkt. Þar sem
brotthvarf formóteróls byggist aðallega á umbrotum má búast við hærri gildum hjá
sjúklingum með alvarlega skorpulifur. Aukaverkanir: Algengar (>1 %): Miðtaugakerfi:
Höfuðverkur. Hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttarónot. Beinagrindarvöðvar: Skjálfti. Sjald-
gæfar (0,1-1%): Miðtaugakerfi: Æsingur, eirðarleysi, svefntruflanir. Beinagrindarvöðvar:
Vöðvakrampar. Hjarta- og æðakerfi: Hraðsláttur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Útbrot,
ofsakláði. Öndunarvegir: Berkjusamdráttur. Efnaskipti: Kalíumþurrð/-blóðkalíumhækkun.
Skjálfti og hjartsláttarónot geta komið fram en eru venjulega væg og minnka við
áframhaldandi notkun. Eins og við á um alla meðferð með innúðalyfjum, getur þverstæður
(paradoxial) berkjusamdráttur komið fram í einstaka tilvikum. Milliverkanir: Engar
sértækar rannsóknir á milliverkun hafa verið gerðar á Oxis Turbuhaler. Samtímis meðferð
með öðrum adrenvirkum lyfjum getur aukið óæskileg áhrif Oxis Turbuhaler. Samtímis
meðferð með xantínafleiðum, sterum eða þvagræsilyfjum geta aukið hættuna á kalíum-
þurrð við notkun beta2-örva. Kalíumþurrð getur aukið hættu á hjartsláttartruflunum hjá
sjúklingum á meðferð með digitalis. Kínidín, dísópýramíð, prókaínamíð, fentíazín,
andhistamín (terfenadín) og þríhringlaga geðdeyfðarlyf geta lengt QT-bilið og aukið hættu
á sleglahjartsláttartruflunum. Beta-blokkarar geta dregið úr eða komið í veg fyrir verkun
Oxis Turbuhaler. Oxis Turbuhaler skal þess vegna ekki gefa samtímis beta-blokkurum
(þ.m.t. augndropar) nema brýna nauðsyn beri til. Ofskömmtun: Engin reynsla er á meðferð
ofskömmtunar. Að líkindum leiðir ofskömmtun til áhrifa sem eru einkennandi fyrir beta2-
örva: Skjálfti, höfuðverkur, hjartsláttarónot og hraðsláttur. Lágþrýstingur, efnaskipta-
blóðsýring (metabolic acidosis), kalíumþurrð og blóðsykurshækkun geta einnig komið
fyrir. Veita skal stuðningsmeðferð og meðferð gegn einkennum. Skammtastærðir handa
fullorðnum: Venjulegir skammtar: 4,5-9 iig einu sinni til tvisvar á dag. Skammtinn má gefa
að morgni og/eða að kvöldi. Skammt að kvöldi má gefa til þess að koma í veg fyrir að
sjúklingur vakni vegna einkenna næturastma. Sumir sjúklingar geta þurft 18 itg einu sinni
eða tvisvar á dag. Forðast skal stærri skammta en 18 ng. í klínískum rannsóknum hefur
verið sýnt fram á að verkunarlengd lyfsins er um 12 klst. Ávallt skal leitast við að gefa
lágmarks skammt sem verkar. Skammtastærðir handa börnum: Engin gögn eru
fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Athugið: Oxis Turbuhaler er tæki
sem er drifið með innöndun. Það þýðir að þegar sjúklingur andar að sér í gegnum
munnstykki tækisins berst lyfið með innöndunarloftinu til loftvega. Mikilvægt er að
leiðbeina sjúklingum um að anda kröftuglega og djúpt að sér í gegnum munnstykkið til
þess að tryggja hámarksskammt. Þar sem lítið magn af lyfinu er gefið í hverjum skammti,
er mögulegt að sjúklingur finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við gjöf.
Upplýsingar um lyfið fylgja hverri pakkningu þess. Geymsla: Lyfið skal geyma í
umbúðunum vandlega lokuðum. Pakkningar og verð (október 1997): Innúðaduft 4,5
míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 3712 (hluti sjúklings 1.499 kr.).
Innúðaduft 9 míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar i Turbuhaler-úðatæki - 4512 (hluti
sjúklings 1.500 kr.
Greiðslufyrirkomulag B.
Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco h.f.