Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 52
716
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Afhending upplýsinga úr sjúkraskrám
Bréf til stjórna heilbrigðisstofnana
Vegna þeirra lækna, sem lýstu því yfir í desember fyrra árs, að þeir myndu ekki afhenda upp-
lýsingar í gagnagrunn á heilbrigðissviði nema samkvæmt skriflegri ósk sjúklinganna og að
beiðni þessara lækna, fól stjórn Læknafélags Islands lögfræðingi að semja texta bréfs til stjórna
heilbrigðisstofnana, sem mætti þessum yfirlýsta vilja læknanna en félli jafnframt að gildandi
landslögum um þessi mál. Hér á eftir fer texti bréfsins og getur hver og einn læknir nýtt sér
texta þess með réttri aðlögun eftir atvikum. Bréfið er að finna á heimasíðu LÍ www.icemed.is á
rafrænu formi og má sækja það þangað til hægðarauka fyrir þá, sem ráða yfir þeirri tækni.
Stjórn LÍ
Til stjórnar ...
[Dagsetning]
Efni: Osk um að upplýsingar úr sjúkraskrám verði ekki afhentar til flutnings í miðlægan
gagnagrunn nema að fengnu upplýstu samþykki sjúklings.
Samkvæmt lögum um gagnagrunn á heilbrigðissviði nr. 139/1998 skal rekstrarleyfishafi
gagnagrunnsins semja við heilbrigðisstofnanir um afhendingu upplýsinga sem unnar hafa verið
úr sjúkraskrám. Lögin eru skýr um það að heilbrigðisstofnunum er ekki skylt að semja við
rekstrarleyfishafa um þessa afhendingu. Sömuleiðis eru lögin skýr um það að heilbrigðisstofn-
anir geta bundið afhendinguna margvíslegum skilyrðum og ákveðið hvaða upplýsingar verði
afhentar úr sjúkraskránum. Aður en heilbrigðisstofnun tekur ákvörðun í málinu skal hún hafa
samráð við læknaráð viðkomandi stofnunar og faglega stjórnendur hennar.
Undirritaður starfaði sem læknir á heilbrigðisstofnun yðar um nokkurt skeið. I fjölmörgum
sjúkraskýrslum á stofnuninni eru því upplýsingar um sjúklinga sem ég hef annast.
Ég vil tilkynna stjórn stofnunarinnar að ég tel afhendingu upplýsinga úr sjúkraskrá án þess að
fyrst sé aflað samþykkis sjúklings fyrir þeirri afhendingu vera brot á siðareglum lækna og þeim
trúnaði við sjúklinga sem læknar eru bundnir af. Ég fer þess því á leit við stjórnina að hún
ákveði, taki hún ákvörðun um að semja við rekstrarleyfishafa gagnagrunns á heilbrigðissviði
um afhendingu upplýsinga sem unnar verða úr sjúkraskrám, að hún skilyrði afhendinguna við
það að viðkomandi sjúklingur veiti upplýst samþykki fyrir henni og tilgreini hvaða upplýsingar
hann samþykki að verði sendar í miðlægan gagnagrunn.
Verði stjórnin ekki við þessum tilmælum mínum lýsi ég fullri ábyrgð á hendur henni vegna
hugsanlegra lögsókna sjúklinga um brot á reglum um friðhelgi einkalífs og tel mig ekki geta
borið ábyrgð á slíkum ákvörðunum.
Virðingarfyllst,
Afrit:
Formaður læknaráðs
Lækningaforstjóri / Yfirlæknir
Stjórn Læknafélags íslands
Landlæknir