Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
725
Ný Vísindasiðanefnd
Þegar Læknablaðið fór í prentun var Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra ekki búin að skipa nýja Vísindasiðanefnd
í samræmi við reglugerð sem hún gaf út 29. júlí síðastliðinn.
Þó lá fyrir hverjir nefndarmenn yrðu:
Formaður Ingileif Jónsdóttir líffræðingur, Karl G. Krist-
insson lækniren þau eru bæði tilnefnd af heilbrigðisráðherra,
Lovísa Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af land-
lækni, Gísli Baldur Garðarsson lögmaður, tilnefndur af dóms-
málaráðherra, og Stefán Baldursson skrifstofustjóri, til-
nefndur af menntamálaráðherra.
Varamenn verða í sömu röð: Þórður Harðarson læknir,
Ólöf Ásta Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir,
Gunnar Matthíasson sjúkrahúsprestur, Ragnheiður Braga-
dóttir dósent í lögurn og Gísli Ragnarsson aðstoðarskóla-
stjóri.
hafa neitað mönnum um birt-
ingu á niðurstöðum rannsókna
sem ekki er rétt staðið að. En
nú hefur þörfin aukist á því að
einhver geti gripið inn fyrr
eða meðan rannsóknin stendur
yfir.
í öðru lagi setti ég fram
hugmyndir um breytt fyrir-
komulag á siðanefndum stofn-
ana. Þær voru á þá leið að ég
taldi rétt að í stað nefnda sem
sjúkrahúsin skipuðu sjálf yrðu
skipaðar nefndir fyrir alla þá
sem vinna að rannsóknum,
sjúkrahúsin, Hjartavernd,
Krabbameinsfélagið og svo
framvegis, og að þessar
nefndir yrðu óháðar stofnun-
unum. Þetta var hugsað til
samræmis við nefndina sem
kveðið er á um í gagnagrunns-
lögunum og á að hafa eftirlit
með rekstrarleyfishafanum.
Þessi atriði náðu ekki fram að
ganga núna af lagatæknileg-
urn ástæðum en ég tel fulla
þörf á að huga að því hvort
ekki sé rétt að láta það sama
yfir alla ganga. Nú eru að
verða miklar breytingar á ís-
lensku rannsóknarumhverfi,
ýmsir aðilar að semja við er-
lendar stofnanir um stóra fjár-
styrki til rannsókna hér á
landi. Þess vegna er brýnt að
taka á þessu máli.
í þriðja lagi var bent á að
þegar eldri reglugerðin var
sett hefðu komið fram hug-
myndir um að Menntamála-
ráðuneytið sem ráðuneyti vís-
inda ætti fulltrúa í nefndinni
en að því hafi ekki orðið. Síð-
an hefur þetta oft verið til um-
ræðu og ég taldi ekki óeðlilegt
að þessi breyting yrði gerð. I
samræmi við þetta þótti mönn-
um eðlilegt að lögfræðingur-
inn í nefndinni kæmi frá
Dómsmálaráðuneytinu.
í fjórða lagi var rætt um að
reynt yrði að tryggja þátttöku
fulltrúa sjúklinga í nefndinni.
Mér var bent á að samtök
sjúklinga væru svo mörg að
erfitt gæti reynst að ná sáttum
um fulltrúa þeirra. Þess í stað
var farin sú leið að láta land-
læknisembættið tilnefna einn
fulltrúa sem að hluta mætti
líta á sem fulltrúa sjúklinga.
Varðandi nefndarskipanina
eins og hún endanlega varð
bendi ég á að til eru fordæmi
að svona skipan þar sem eru
Tölvunefnd og Réttarfars-
nefnd en þær eru báðar að
mestu leyti skipaðar af ráð-
herra án tilnefninga. Eg vil
ítreka það sem ég hef sagt áð-
ur að ég tel ekki skipta mestu
máli hver skipar nefndina
heldur hverjir veljast til setu í
henni. Það fólk sem nú hefur
valist til setu í nefndinni er
allt saman gott fólk, sjálfstætt
og traust og ég er þess fullviss
að það mun gegna störfum
sínum af kostgæfni,“ sagði
Sigurður Guðmundsson land-
læknir.
-ÞH