Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 76
736
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Er heildarskipulag
rannsóknaumhverfisins
gott?
Rannsóknaumhverfið hefur
verið að færast í átt til aukinn-
ar samkeppni um fjármagn. A
vissum sviðum er þessi sam-
keppni hörð, sem getur bitnað
•á mannlegum samskiptum.
Slík samkeppni er að sumu
leyti góð en hefur einnig sínar
skuggahliðar. Það góða er
meðal annars að rannsókn
verður að skila árangri til að
fá áframhaldandi fjárstuðn-
ing, sem hlýtur að teljast eðli-
leg krafa meðan ekki er farið
út í öfgar. Það neikvæða er
meðal annars að vísindamenn
stjórna í minna mæli en oft
áður hvað er rannsakað. I nú-
verandi skipulagi verða ýmsar
verðugar rannsóknir útundan
vegna þess að enginn fæst til
að fjármagna þær. Styrkir eru
yfirleitt til skamms tíma,
venjulega eins árs í senn, sem
gerir alla skipulagningu ákaf-
lega erfiða. I mörgum tilvik-
um hefur verið farið illa með
fjármuni innlendra rann-
sóknasjóða þar sem veittir
hafa verið ágætir styrkir til að
byggja upp rannsóknaaðstöðu
en síðan hafa ekki fengist
styrkir til að greiða laun þeirra
sem áttu að nýta aðstöðuna
(þetta pildir sérstaklega um
RANNIS). Það er einnig
gagnrýnivert að hjá RANNÍS
virðist stöðugt meira fé varið í
yfirbyggingu og skrifstofu-
bákn sem ekki skilar sér í betri
þjónustu til viðskiptavina og
má þar nefna sem dæmi ótrú-
legt og botnlaust klúður með
rafræn umsóknareyðublöð.
Verða einhverjar
rannsóknir útundan?
Eins og málum er nú háttað
verða útundan bæði grunn-
rannsóknir og aðrar rannsókn-
ir þar sem ekki er nein bein
ágóðavon. Undanfarið hefur
verið erfitt að fjármagna
grunnrannsóknir, þetta hefur
verið sérstaklega áberandi
undanfarinn áratug og vanda-
málið er ekki bundið við Is-
land heldur gildir um alla Evr-
ópu og sennilega víðar. Rann-
sóknasjóðir ESB hafa dregið
mjög úr styrkveitingum til
grunnrannsókna og hefur það
verið yfirlýst stefna. Þeir segj-
ast styrkja hagnýtar rannsókn-
ir en aðildarríkin verði sjálf að
styrkja grunnrannsóknir. Það
er eins og þessi stefna hafi
ekki náð að skila sér til rann-
sóknasjóða hér á landi sem
enn benda fólki á að sækja urn
styrki til grunnrannsókna til
ESB. Þetta ástand er mjög erf-
itt fyrir þá sem stunda grunn-
rannsóknir og afleitt fyrir
framtíðina því eins og allir
vita hljóta hagnýtar rannsókn-
ir alltaf að byggja á grunn-
rannsóknum; án grunnrann-
sókna verða engar hagnýtar
rannsóknir. Annað dæmi um
rannsóknir sem verða útundan
eru klínískar rannsóknir á efn-
um sem ekki er hægt að selja
dýru verði og hagnast á. Flest-
ar klínískar rannsóknir eru
stórar og dýrar og verða því
ekki framkvæmdar nema ein-
hver leggi mikla fjármuni af
mörkum. Það er yfirleitt ekki
á færi rannsóknasjóða að veita
svo stóra styrki og þess vegna
eru langflestar klínískar rann-
sóknir kostaðar af lyfjafram-
leiðendum. Dæmi um slíkt
vandamál er melatónín sem er
náttúrulegt efni sem enginn
getur fengið einkaleyfi á og
þess vegna ekki haft verulegar
tekjur af að selja. Melatónín
er áhugavert efni sem gæti
hugsanlega haft ýmiss konar
notagildi til lækninga en það
er illa rannsakað vegna þess
að enginn sér þar ágóðavon.
Talið er að lyfjaframleiðendur
séu í staðinn að þróa efni sem
verka eins og melatónín og
þeir geti fengið einkaleyfi fyr-
ir. Sem annað dæmi mætti
nefna að fólínsýra lækkar
hómócýstein í blóði en hátt
hómócýstein er einn af sterk-
um áhættuþáttum fyrir hjarta-
og æðasjúkdóma. Til að sýna
fram á að fólínsýra minnki
hættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum þarf að gera stóra,
framskyggna klíníska rann-
sókn sem stæði í nokkur ár og
yrði þess vegna mjög dýr. Fól-
ínsýra er ódýrt náttúrulegt
efni og enginn hefur áhuga á
að kosta slíka rannsókn sem er
mjög bagalegt vegna þess að
gjöf fólínsýru er kannski ódýr
og einföld aðferð til að draga
úr þessum sjúkdómum.
Hvernig er staða
rannsókna á íslandi?
Staða læknisfræðirann-
sókna á Islandi er bæði góð og
slæm. Eins og aðrar rannsókn-
ir hér á landi búa þær við fjár-
svelti einkum að því sem
varðar framlög stjórnvalda til
vísinda. Þessi framlög eru í
stíl við það sem gerist hjá
þjóðum sem við viljum helst
ekki bera okkur saman við.
Þrátt fyrir þetta fjársvelti
blómstra læknisfræðirann-
sóknir á íslandi á ýmsan hátt
og eru skýringarnar á því fjöl-
margar; þar má nefna dugnað
og óeigingjarnt starf margra
vísindamanna, margt er unnið
í sjálfboðavinnu eða á lágu
kaupi og útsjónarsemi er oft
mikil við útvegun á erlendu
fjármagni.
Læknisfræðirannsóknir eru
unnar víða og á mismunandi
forsendum. Rannsóknir við
læknadeild HI eru öflugar eins
og sést til dæmis af ráðstefnu