Læknablaðið - 15.10.1999, Side 4
Er konudagurinn
versti dagur ársins?
Hvertafla inniheldur: Cetirizinum INN, díhýdróklóríð, 10 mg. Eiginleikar Cetirizín blokkar
Hl-viðtaka, en hefur nánast engin áhrif á H2-viðtaka. Lyfið hefur lítil andkólínvirk, adrenvirk
og serótónínlík áhrif. Lyfið hindrar histamíntengda snemmsvörun í ofnæmi og minnkar sækni
eósínófíla og þar með losun ýmissa boðefna í seinsvörun boðefnisins, hefur lítil slævandi
áhrif á miðtaugakerfið og eykur hvorki verkanir etanóls né díazepams. Frásogast hrattfrá
meltingarvegi og blóðþéttni nær hámarki eftir 1 klst. Próteinbinding í plasma er um 93%.
Helmingunartími lyfsins í blóði er um 10 klst. Verkun lyfsins hefst eftir u.þ.b. 25 mínútur frá
inntöku, nær hámarki eftir 4 klst og varir í a.m.k. 24 klst Lyfið skilst að mestu óbreytt út í þvagi.
Lyfjahvörf breytast lítið með aldri en helmingunartími lengist við nýrnabilun.
Ábendingar: Ofnæmisbólgur í nefi. Útbrot og kláði, sem stafa af histamínlosun.
Frábendingar Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins.
Meðganga og brjóstagjöf: Skaðleg áhrif á fóstur hafa ekki komið fram við dýratilraunir.
Reynsla af notkun lyfsins á meðgöngutíma er hins vegar lítil sem engin og ætti því að forðast
slíka notkun. Lyfið skilst út í móðurmjólk í verulegu magni og ætti ekki að nota það handa
konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Munnþurrkur. Þreyta og syfja.
Milliverkanir: Ekki þekktar. Athugið: Lyfið getur, stöku sinnum, haft slævandi verkun á heilann
með minnkaðri eftirtekt og viðbragðsflýti. Þetta getur verið varasamt fyrir stjórnendur véla og
ökutækja. Sjúklingar með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi geta þurft minni skammta en aðrir.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Ein tafla (10 mg) á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Börn eldri en 12 ára: Ein tafla á c
Lyfið er ekki ætlað börnum 12 ára og yngri.
Pakkningar: Pakkningarog hámarksverð 1.9/99:
10 stk. 600 kr.; 30 stk. 1.635 kr.; 100 stk. 4.373 kr.
ii skammta en aðrii
, DELTay
www.delta.is