Læknablaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
777
þessu umsamda tímabili er lokið það er í lok
þessa árs.
Staða heilsugæslu- og heimiiislækna
Kjaramál heilsugæslulækna eru sér á báti en
þeir hafa verið undir kjaranefnd síðan 11. sept-
ember 1996. Ljóst er að þetta fyrirkomulag
hefur ekki leyst vandann varðandi mönnun á
landsbyggðinni og á Stór-Reykjavíkursvæðinu
hafa heilsugæslulæknar unað misvel við ný
kjör sín og margs konar óvissa skapast meðal
annars um lífeyrissjóðsmál. Ef heilsugæslu-
læknar þurfa til frambúðar að búa við annars
konar launafyrirkomulag og allt öðru vísi að-
stæður en aðrir læknar er hætta á að þeir ein-
angrist í vaxandi mæli frá heildarsamtökum
lækna. Slíkt þarf að hindra.
Á síðustu árum hafa farið fram talsverðar um-
ræður um sjálfstætt starfandi heimilislækna.
Þrátt fyrir að fylgi við slíkt starfsfyrirkomulag
virðist hafa aukist meðal lækna og heilbrigðis-
yfirvalda og nokkrir sérfræðingar í heimilis-
lækningum hafi sótt um að fá að starfa sjálfstætt
hefur engin nýliðun orðið. Stjórn LR hefur skýra
stefnu í þessum málum og telur eðlilegt að
sérfræðingar í heimilislækningum hafi sambæri-
legar skyldur og réttindi og sérfræðingar í öðr-
um greinum læknisfræðinnar. Því hvetur félagið
sérfræðinga í heimilislækningum sem vilja
starfa sjálfstætt til að ná samningum við heil-
brigðisyfirvöld um slíkt starfsfyrirkomulag.
Mikilvægi faglegrar samvinnu
Mikilvægt er að óhindruð og fagleg sam-
vinna fari fram milli hinna ýmsu sérgreina.
Stjóm LR hefur beitt sér fyrir samvinnu sér-
greinanna á læknisfræðilegum forsendum. Að
frumkvæði stjórnar LR hefur verið skipuð sam-
eiginleg nefnd á vegum Geðlæknafélags Is-
lands og Félags íslenskra heimilislækna til að
ríða á vaðið í þessum efnum og koma með til-
lögur um hvernig samstarfinu verði best háttað.
Eins og kunnugt er á LR húsnæðið að
Skerplugötu 1 þar sem barnaheimilið Mýri hef-
ur verið rekið af myndugleik af foreldrafélagi
heimilisins. Húsið var keypt af stórhug fyrir
um áratug þegar dagheimilispláss skorti fyrir
börn lækna. Þetta vandamál er nú úr sögunni
og hyggst stjórn LR selja húsið.
Á síðustu árum hafa félagsfundir verið illa
sóttir. Því var tekin upp sú nýbreytni að blanda
saman gamni og alvöru, fræðslu og samveru til
að styrkja félagsandann. Haldin hafa verið svo-
kölluð fræðslukvöld. Til dæmis var farið á
jeppakynningu á bílasölu og síðan hlustað á
fyrirlestur og sýningu á nýjustu skurðtækni. I
annað sinn var kynning á eðalvínum og skoð-
unarferð á Reykjalund. Ágæt mæting hefur
verið á þessum fundum og gott tækifæri fyrir
menn að kynnast og lækna í ólíkum sérgreinum
að skiptast á skoðunum. Fyrirhugað er að
skipuleggja slík fræðslukvöld að jafnað einu
sinni á misseri.
Framtíðarsýn
Eins og við stofnun félagsins eru læknar enn
í dag í þörf fyrir að viðhalda og styrkja sam-
vinnu innan stéttarinnar. Þetta á við um kjara-
mál, félagsmál, menntun og fagleg málefni. Á
nýrri öld mun sérhæfing innan læknisfræðinnar
halda áfram að vaxa í takt við aukna þekkingu.
Margir óttast að aukin sérhæfing muni leiða til
þess að fræðigreinin muni brotna niður í marg-
ar einingar. En á sama tíma mun þörf sérfræð-
inga til að vinna saman að meðferð sjúklings-
ins aukast. Svo dæmi séu tekin verður sama
þörf fyrir gott samstarf milli sérfræðings í
hjartabilun og sérfræðings í hjartsláttarlruflun-
um um meðferð sjúklings með flókinn hjarta-
sjúkdóm og fyrir sérfræðing í heimilislækning-
um og barnalækni um rannsókn á barni sem
grunur leikur á að hafi truflun í þroskaferlum.
Læknum ber skylda til að vernda faglega
samvinnu sjúklingum til hagsbóta. Á sama hátt
ber læknum skylda til að stefna að því í kjara-
baráttu sinni að sú menntun og sérhæfing sem
þeir hafa fengið komi sjúklingunum til góða.
Sérfræðingurinn á að geta einbeitt sér að því að
stunda sérgrein sína ótruflað og af heilhug og
fá fyrir það sanngjörn laun. Komandi kynslóðir
lækna munu í minna mæli sætta sig við óeðli-
lega langan vinnudag, óhóflegt vaktaálag eða
margs konar aukavinnu enda mun slíkt verða
bannað með lögum og samþykktum Evrópu-
þjóða.
Læknum ber umfram allt að vernda faglegt
sjálfstæði stéttarinnar. Engin starfsstétt hefur
sambærilega menntun um lækningar eða sömu
yfirsýn um heilbrigðismál. Læknar hafa verið
helstu frumkvöðlar að nýjungum í greiningu og
meðferð sjúkra og eiga að sama skapi að vera
virkir þátttakendur í að móta og skipuleggja
heilbigðiskerfið í framtíðinni.
Olafur Þór Ævarsson
formaður Læknafélags Reykjavíkur